Síða 1 af 2

Stöð2 hættir dreifingu í önnur kerfi

Sent: Fös 30. Maí 2025 11:09
af wicket
https://stod2.is/dreifing/

Núna þarf annað hvort að nota appið þeirra eða hafa myndykil frá Vodafone. Þannig að kúnnar Símans eða NovaTV þurfa að kaupa þetta beint af SÝN.
Er með myndlykil frá Símanum heima og nota Símaappið uppi í bústað og nenni alls ekki að breyta eða þurfa að flakka á milli appa eða HDMI inputta til að horfa á tv.

Hef keypt Stöð2Sport í gegnum Símann en það verður þá ekki í boði lengur, bara vesen.

Re: Stöð2 hættir dreifingu í önnur kerfi

Sent: Fös 30. Maí 2025 12:12
af falcon1
Er þetta ekki kallað "að pissa í skóinn sinn"?

Re: Stöð2 hættir dreifingu í önnur kerfi

Sent: Fös 30. Maí 2025 12:20
af GuðjónR
Er einhver að kaupa aðganga að Stöð 2 í dag? :shock:

Re: Stöð2 hættir dreifingu í önnur kerfi

Sent: Fös 30. Maí 2025 12:22
af falcon1
GuðjónR skrifaði:Er einhver að kaupa aðganga að Stöð 2 í dag? :shock:

Gamla fólkið

Re: Stöð2 hættir dreifingu í önnur kerfi

Sent: Fös 30. Maí 2025 12:37
af g0tlife
Þú getur keypt aðgang að Stöð2 einu sinni á ári í einn mánuð og horft á allt sem þeir hafa framleitt á þeim tíma.

Re: Stöð2 hættir dreifingu í önnur kerfi

Sent: Fös 30. Maí 2025 12:38
af GuðjónR
falcon1 skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Er einhver að kaupa aðganga að Stöð 2 í dag? :shock:

Gamla fólkið

Já auðvitað, um að gera að flækja þetta ennþá meira fyrir gamla fólkið. Vel gert Sýn!

Re: Stöð2 hættir dreifingu í önnur kerfi

Sent: Fös 30. Maí 2025 12:40
af gutti
Spurning merki hvort fara í gjaldþrot með þessu :-k

Re: Stöð2 hættir dreifingu í önnur kerfi

Sent: Fös 30. Maí 2025 12:42
af wicket
GuðjónR skrifaði:Er einhver að kaupa aðganga að Stöð 2 í dag? :shock:

Snýst um Stöð 2 Sport f. mig að minnsta kosti, þetta beinir mér bara í átt að IPTV þjónustum frekar.

Re: Stöð2 hættir dreifingu í önnur kerfi

Sent: Fös 30. Maí 2025 12:53
af falcon1
GuðjónR skrifaði:
falcon1 skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Er einhver að kaupa aðganga að Stöð 2 í dag? :shock:

Gamla fólkið

Já auðvitað, um að gera að flækja þetta ennþá meira fyrir gamla fólkið. Vel gert Sýn!

Segðu. Ég veit ekki hvað foreldrar mínir munu gera, eiga alveg nóg með tækin eins og staðan er í dag. Þurfa ekki á fleiri myndlyklum að halda.

Re: Stöð2 hættir dreifingu í önnur kerfi

Sent: Fös 30. Maí 2025 13:00
af rapport
Er ekki bara hægt að fá að setja upp Stöð 2 appið á þessum android afruglurum Símans?

Ég hef ekki verið að kaupa áskriftir af innlendum aðilum og flakka yfirleitt á milli efnisveita með því að loka/opna app í Android TV...

Ef Síminn vill ekki leyfa uppsetningu á öppum á afruglarana sem þeir útvega þá eru þeir alveg eins "rót vandans" eins og Stöð 2

Re: Stöð2 hættir dreifingu í önnur kerfi

Sent: Fös 30. Maí 2025 16:14
af wicket
rapport skrifaði:Er ekki bara hægt að fá að setja upp Stöð 2 appið á þessum android afruglurum Símans?

Ég hef ekki verið að kaupa áskriftir af innlendum aðilum og flakka yfirleitt á milli efnisveita með því að loka/opna app í Android TV...

Ef Síminn vill ekki leyfa uppsetningu á öppum á afruglarana sem þeir útvega þá eru þeir alveg eins "rót vandans" eins og Stöð 2


Held reyndar að þessir SímaSTB´s keyri Linux, ekki Android.

Re: Stöð2 hættir dreifingu í önnur kerfi

Sent: Fös 30. Maí 2025 19:24
af mikkimás
falcon1 skrifaði:Er þetta ekki kallað "að pissa í skóinn sinn"?


Svona eins og þegar þeir tóku fréttirnar úr opinni sjónvarpsdagskrá?

Lyktar eins fyrir mér.

Re: Stöð2 hættir dreifingu í önnur kerfi

Sent: Fös 30. Maí 2025 20:33
af svanur08
Væri til í stöð 2 sport, en verðið okur.

Re: Stöð2 hættir dreifingu í önnur kerfi

Sent: Fös 30. Maí 2025 22:16
af Hestur
Ja hérna, þessi sjónvarpsstöð er svo á leiðinni í þrot.

Re: Stöð2 hættir dreifingu í önnur kerfi

Sent: Lau 31. Maí 2025 23:56
af natti
Eru myndlyklar ekki bara barn síns tíma?
Bara iOS app fyrir appletv eða android app fyrir annað stöff og/eða sjónvörpin beint.

Re: Stöð2 hættir dreifingu í önnur kerfi

Sent: Sun 01. Jún 2025 11:27
af GuðjónR
mikkimás skrifaði:Svona eins og þegar þeir tóku fréttirnar úr opinni sjónvarpsdagskrá?

Ég horfði oft á fréttirnar hjá þeim áður en þeim var læst. En eftir að þeir opnuðu aftur hef ég ekki kíkt á þær í eitt einasta skipti.

Með því að læsa fréttunum þá skáru þeir frá stóran hóp fólks sem horfði á auglýsingar fyrir og eftir fréttir, þannig að auglýsendur fengu minna fyrir peninginn og þeir væntanlega tapað hluta af þeim.

Re: Stöð2 hættir dreifingu í önnur kerfi

Sent: Sun 01. Jún 2025 13:04
af depill
Er þetta eithvað óeðlilegt. Ég skil alveg fyrir einhverjum árum var þetta fáranlegt.

Enn ég er t.d. með F1TV í appi, Netflix í sér appi og finnst ekkert skrítið að ég geti ekki opnað Sjónvarp Símans appið og opnað Netflix. Mér fyndist bara jafn skrítið að Visir yrði að birta fréttinar líka á mbl.is.

Er þetta ekki bara týpískt að vera smá smeykt við breytingar, enn myndlykarnir eru bara úreldir og helstu rökin áður voru að það var sífellt verið að "böndla" Internetið við Sjónvarpið, þannig þú varðst að auka eina þjónustu til að fara í aðra.

Ef Vodafone/Stöð 2 gerir það í haust, skal ég alveg vera outraged og ef þau prísa þetta heimskt að þá skil ég líka alveg að fólk verði fúlt, enn svo er bara framboðið af afþreyfingu orðið þannig að það er ekki sífellt hægt að hækka verðið og búast við að fólk kyngi því. Ég væri alveg til að borga aðeins meira fyrir Íslenska lýsendur á F1, enn Stöð 2 Sport rukkar of mikið og þess vegna kaupi ég bara F1TV beint.

Enn það að ég þurfi að vera með Stöð 2 Appið til að vera með Stöð 2 og Sjónvarp Símans appið til að vera með það, finnst mér bara eðlilegt í nútíma dreifingu fyrir þessa fjölmiðla.

Re: Stöð2 hættir dreifingu í önnur kerfi

Sent: Mán 02. Jún 2025 22:33
af arons4
depill skrifaði:myndlykarnir eru bara úreldir.

Vissulega, en ef þessi blessuðu öpp gætu nú bara virkað sem skildi. Gerir ekki annað en að frjósa hjá mér stöð 2 appið.

Re: Stöð2 hættir dreifingu í önnur kerfi

Sent: Þri 03. Jún 2025 21:02
af russi
Einn svona hliðarspurning við þetta allt.
Ég veit að Sjónvarpinu Símans móttakarinn er alveg sama hvort hann er TV-Vlani eða bara einhverju interneti.
Er það sama með Vodafone móttakarann? Eða er hann enn þannig að hann þarf að vera sér TV-Vlani?

Re: Stöð2 hættir dreifingu í önnur kerfi

Sent: Þri 03. Jún 2025 21:11
af Vaktari
russi skrifaði:Einn svona hliðarspurning við þetta allt.
Ég veit að Sjónvarpinu Símans móttakarinn er alveg sama hvort hann er TV-Vlani eða bara einhverju interneti.
Er það sama með Vodafone móttakarann? Eða er hann enn þannig að hann þarf að vera sér TV-Vlani?



Þarf ekki að vera á sér tv lani.
Getur verið á sér tv lani og gegnum venjulegt internet.
Annaðhvort með snúru eða þráðlaus.
Ef þú ert með allar erlendar stöðvar hjá vodafone og ert með myndlykilinn bara tengdan gegnum internet þá færðu ekki allar stöðvar inn á lykilinn.

Re: Stöð2 hættir dreifingu í önnur kerfi

Sent: Mið 04. Jún 2025 08:38
af Jón Ragnar
depill skrifaði: Ég væri alveg til að borga aðeins meira fyrir Íslenska lýsendur á F1, enn Stöð 2 Sport rukkar of mikið og þess vegna kaupi ég bara F1TV beint.



Viaplay er með íslenska lýsingu.

Nota það slatta þótt það kosti 4000kr á mánuði, en UFC er einnig partur af pakkanum, ásamt golfi etc

Re: Stöð2 hættir dreifingu í önnur kerfi

Sent: Mið 04. Jún 2025 15:42
af depill
Jón Ragnar skrifaði:
depill skrifaði: Ég væri alveg til að borga aðeins meira fyrir Íslenska lýsendur á F1, enn Stöð 2 Sport rukkar of mikið og þess vegna kaupi ég bara F1TV beint.



Viaplay er með íslenska lýsingu.

Nota það slatta þótt það kosti 4000kr á mánuði, en UFC er einnig partur af pakkanum, ásamt golfi etc


Já það var hvatinn, enn f1tv premium er game changer sem ég get ekki farið til baka. Ég vill þá á f1tv fyrir bara auka pening :D

Re: Stöð2 hættir dreifingu í önnur kerfi

Sent: Fös 06. Jún 2025 16:54
af GuðjónR
Þá vitum við það...

Re: Stöð2 hættir dreifingu í önnur kerfi

Sent: Fös 06. Jún 2025 22:10
af appel
Verður áhugavert að fylgjast með í næstu viku. Ljóst að einhverjar breytingar eru framundan.

Re: Stöð2 hættir dreifingu í önnur kerfi

Sent: Þri 10. Jún 2025 16:38
af Revenant
Líkleg ástæða fyrir þessum breytingum: Boða komu HBO Max til landsins á ný