Mig langaði að byrja nýjann þráð hérna um athyglisvert Youtube efni. Þarf ekki að vera tengt tölvum.
Sá t.d. í þessum þræði https://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=9&t=99727 myndband um fiska. Ekki mitt áhugamál en uppbyggilegt og fróðlegt. Svo pælingin er að senda svona myndbönd inn í þennan þráð sem ykkur langar að deila með okkur hinum.
Það mun alveg pottþétt eitthvað fara í pirrurnar á einhverjum, tæklum boltann ekki manninn.
Hérna kemur myndband frá Johnny Harris, hef blendnar skoðanir á honum, en þetta myndband er hinsvegar mjög gott.
Hef verið mikið að fylgjast með Colin Furze grafa göng og bunker og svo núna neðanjarðar bílageymslu með lyftu fyrir Delorean bílinn sinn. Mæli með.
Re: Á hvað ertu að horfa? Youtube þráðurinn
Sent: Fös 23. Maí 2025 09:19
af GullMoli
Undanfarið hef ég verið töluvert í smíða rásum, erum reglulega í viðhaldi/breytingum og núna langar mig að smíða frístandandi geymslu á lóðinni. Þessi er með mjög flott myndbönd um flest allt og horfi reglulega á: https://www.youtube.com/@HomeRenoVisionDIY
Svo er það annað random dót, að miklu leiti kominn með leið á LTT og öðru tækni rásum því ég hef minni áhuga á því að pæla í þessu en áður. Það er aðalega kannski Fireship til að fá recap af AI þróun vikunnar.
Mustard! koma samt bara 3-4 video á ári vegna þess hversu high quality þau eru. Fjallar mest um þotur og flugvélar, en líka allskonar eins og kafbáta, leiðangur á norðurskautið og núna nýjasta sjóslys: https://www.youtube.com/@MustardChannel
Ég hef rosalega gaman af þessum gaur sem er kannski fyndið því ég er kominn alveg með upp í kok að gera við og viðhalda bílum. En hann útskýrir vel, er með skítamix, sýnir t.d. að Bentley rukkar bull upphæðir fyrir varahluti eins og tölvukerfið í bílana, sem er hægt að kaupa á $50 úr Volvo, sama kerfið. Hann fær eiginlega bílviðgerðir til að líta út fyrir að vera mun einfaldari en þær eru, eða hvað?