Síða 1 af 1

Aðstoð með skjával

Sent: Þri 06. Maí 2025 14:43
af Silly
Hæ,

Þar sem ég vildi ekki vera að "ræna" þræði frá öðrum þá ákvað ég frekar að búa til nýjan þráð.

Ég er búin að vera á leiðinni í þó nokkra mánuði að kaupa mér nýjan aðaltölvu skjá til að nota næstu árin. Ég hef verið að rúlla 2 skjá setup mörg ár og er nú með 43" 4K LED 60hz sjónvarp sem skjá og aukalega 28" 4K 60hz AOC skjá sem aukaskjá. Ég notast við aðalskjáinn sem vinnu, leik og annað og vill geta tengt við hann PC tölvuna mína, sem er i9 14900K með Nvidia 3080Ti skjákorti. Ég er síðan með tengt við sjónvarpið PS5 Pro og Xbox Series X vélar sem ég nota mikið til að spila leiki, taka upp úr, streyma ofl.

Svo það sem ég er að leita eftir er helst sæmilegur skjár sem er með fínt HDR fyrir gaming, 120hz+ stuðning, Hdmi 2.1 og VRR og slíkt.

Í sambandi við upplausn þá hef ég lengi bara spáð í 4K útaf leikjavélunum, annars hefði ég líklega verið búin að fá mér 1440p skjá fyrir löngu síðan. Ég er engan vegin á móti því, lengi vel var ekki endilega hentugt að fá sér slíkt útaf leikjavélunum. Ef þeir aftur á móti geta downscalað 4K frá consoled í HDR þá er það strax betra.

Ég veit að þetta snýst alltaf um peninga þegar upp er staðið, ég er að reyna að halda þessu undir 150k helst, og geri mér grein fyrir að ég þarf að gera vissar málamiðlanir fyrir vikið eins og er við að búast. Er bara að reyna að finna eitthvað sem hentar mér eins og er, í framtíðinni er alltaf hægt að kaupa betra og dýrara og gera þennan "nýja" skjá að nr.2 þá.

Ég er of nálægt skjánum svo að þessar 43" sem ég fékk mér á sínum tíma eru bara alltof stórar fyrir mig. Enda orðinn gamall hálf blindur kall klárlega í dag. Flestir skjáir sem ég hef skoðað hafa verið um 27-32"+ og mig grunar að það verði fínt fyrir mig. Ég er komin með pínu ógeð að skoða tölvuskjái eftir að hafa verið að pæla í þessu í ófáa mánuði og er farið að langa að finna eitthvað svo ég get svissað imbanum út og látið hann í hefðbundin sjónvarpshlutverk og fengið mér meiri gaming skjá.

Ég er opin fyrir curved eða 21:9 ramma skjá þess vegna, þó mig grunar að 16:9 henti samt en vel

Hérna eru ýmis skjáir sem ég hef skoðað og reynt mér að lesa dóma um;

Alienware 27" AW2725DF
https://elko.is/vorur/alienware-27-aw2725df-leikjaskjar-348533/AW2725DF
Alienware 27" AW2725QF https://elko.is/vorur/alienware-27-aw2725qf-leikjaskjar-373076/AW2725QF
Samsung 32" Odyssey G7 SAS32DG702 https://elko.is/vorur/samsung-32-odyssey-g7-sas32dg702-leikjaskjar-379214/SAS32DG702
Samsung 28" Odyssey G7 https://elko.is/vorur/samsung-28-odyssey-g7-ls28bg700-leikjaskjar-321163/LS28BG700EPXEN
Acer Nitro XV275U https://tl.is/acer-nitro-xv275k-p3-27-qhd-mini-led-tolvuskjar.html
Gigabyte 27" AORUS FO27Q3 https://tolvutaekni.is/collections/rymingarsala/products/gigabyte-27-aorus-fo27q334-leikjaskjar-qd-oled-360hz-qhd-2560x1440-1ms-usb-c-displayport-hdmi-kvm-switch
Gigabyte M32UP https://tolvutek.is/Tolvuskjair/Gigabyte-M32UP-32%22-IPS-UHD-160Hz-HDR400-1ms-KVM-leikjaskjar/2_39564.action

Þið vonandi fyrirgefið mér langlokuna, ég á til að sökkva mér í svona rannsóknir og týnast smá í þeim án þess að finna góðan endapunkt :)

Allar ábendingar og punktar eru vel þegnir.

Kv. Silly

Re: Aðstoð með skjával

Sent: Þri 06. Maí 2025 14:54
af worghal
ég er sjálfur að horfa eftir þessum https://elko.is/vorur/alienware-32-aw32 ... ybC96Z2vmQ

Re: Aðstoð með skjával

Sent: Þri 06. Maí 2025 16:41
af Silly
worghal skrifaði:ég er sjálfur að horfa eftir þessum https://elko.is/vorur/alienware-32-aw32 ... ybC96Z2vmQ


Já var búin að sjá hann, verst að hann er utan budget eins og er hjá mér.

Re: Aðstoð með skjával

Sent: Þri 06. Maí 2025 17:00
af olihar
Silly skrifaði:
worghal skrifaði:ég er sjálfur að horfa eftir þessum https://elko.is/vorur/alienware-32-aw32 ... ybC96Z2vmQ


Já var búin að sjá hann, verst að hann er utan budget eins og er hjá mér.


Hvaða budget ertu með í huga?

Re: Aðstoð með skjával

Sent: Þri 06. Maí 2025 17:14
af braudrist
Mér sýnist budgetið hjá þér vera í kringum 150-160 þús.

Ég mundi taka þennan Gigabyte skjá hjá Tölvutækni. QD-OLED hafa verið að koma vel út fyrir gaming og hann fær mjög góða dóma á rtings.com

https://www.rtings.com/monitor/reviews/ ... rus-fo27q3

Re: Aðstoð með skjával

Sent: Þri 06. Maí 2025 17:26
af Silly
Budget er líklega já max 150k+ vill helst reyna að finna jafnvægi á verði og gæðum eins og er hægt fyrir svona dæmi. Alltaf til í að eyða minna ef ég get :)

Er alltaf hikandi útaf 1440p vs. 4K. En mér sýndist að þessi Gigabyte skjár er góður í að niðurskala 4K dæmi í 1440p frá console svo það ætti ekki endilega að vera vandi.

Annars er það síðan alltaf smá stress útaf OLED sem tölvuskjá. Elska OLED og á slíkt sjónvarp, en sem tölvuskjá er maður alltaf stressaðri útaf meiri static myndefni, logos og viðmótum sem lengi er á skjánum. Langar ekki beint að brenna Football Manager viðbótið á skjáinn minn varanlega :megasmile

Re: Aðstoð með skjával

Sent: Þri 06. Maí 2025 19:07
af olihar
Ég sendi á þig skilaboð, er með einn sem þú ert velkominn að koma og skoða og prufa, gefur þér þá líka ágæta mynd hversu magnað QD-OLED er.

Re: Aðstoð með skjával

Sent: Þri 06. Maí 2025 20:07
af Dr3dinn
https://tl.is/lg-ultragear-32-4k-480hz-leikjaskjar.html

Þetta er næsti hjá mér er með g7 fyrir.

Re: Aðstoð með skjával

Sent: Þri 06. Maí 2025 20:26
af Silly
Dr3dinn skrifaði:https://tl.is/lg-ultragear-32-4k-480hz-leikjaskjar.html

Þetta er næsti hjá mér er með g7 fyrir.


Úff ef að peningar væru ekki issue, þá væri þessi klárlega verslaður :)

Re: Aðstoð með skjával

Sent: Þri 06. Maí 2025 21:15
af svanur08
Taktu allavegna OLED skjá, sérð ekki eftir því.

Re: Aðstoð með skjával

Sent: Þri 06. Maí 2025 22:24
af Silly
Freistingin er sterk þar nefnilega. Langar samt í 4K skjá og þá er budget farið til fjandans ef ég held mig við OLED.

Re: Aðstoð með skjával

Sent: Fim 08. Maí 2025 11:27
af worghal
Silly skrifaði:Freistingin er sterk þar nefnilega. Langar samt í 4K skjá og þá er budget farið til fjandans ef ég held mig við OLED.

ef þú ætlaðir að staðgreiða, þá bara taka borga budgetið og taka svo raðgreiðslu fyrir rest :D