Þar sem ég vildi ekki vera að "ræna" þræði frá öðrum þá ákvað ég frekar að búa til nýjan þráð.
Ég er búin að vera á leiðinni í þó nokkra mánuði að kaupa mér nýjan aðaltölvu skjá til að nota næstu árin. Ég hef verið að rúlla 2 skjá setup mörg ár og er nú með 43" 4K LED 60hz sjónvarp sem skjá og aukalega 28" 4K 60hz AOC skjá sem aukaskjá. Ég notast við aðalskjáinn sem vinnu, leik og annað og vill geta tengt við hann PC tölvuna mína, sem er i9 14900K með Nvidia 3080Ti skjákorti. Ég er síðan með tengt við sjónvarpið PS5 Pro og Xbox Series X vélar sem ég nota mikið til að spila leiki, taka upp úr, streyma ofl.
Svo það sem ég er að leita eftir er helst sæmilegur skjár sem er með fínt HDR fyrir gaming, 120hz+ stuðning, Hdmi 2.1 og VRR og slíkt.
Í sambandi við upplausn þá hef ég lengi bara spáð í 4K útaf leikjavélunum, annars hefði ég líklega verið búin að fá mér 1440p skjá fyrir löngu síðan. Ég er engan vegin á móti því, lengi vel var ekki endilega hentugt að fá sér slíkt útaf leikjavélunum. Ef þeir aftur á móti geta downscalað 4K frá consoled í HDR þá er það strax betra.
Ég veit að þetta snýst alltaf um peninga þegar upp er staðið, ég er að reyna að halda þessu undir 150k helst, og geri mér grein fyrir að ég þarf að gera vissar málamiðlanir fyrir vikið eins og er við að búast. Er bara að reyna að finna eitthvað sem hentar mér eins og er, í framtíðinni er alltaf hægt að kaupa betra og dýrara og gera þennan "nýja" skjá að nr.2 þá.
Ég er of nálægt skjánum svo að þessar 43" sem ég fékk mér á sínum tíma eru bara alltof stórar fyrir mig. Enda orðinn gamall hálf blindur kall klárlega í dag. Flestir skjáir sem ég hef skoðað hafa verið um 27-32"+ og mig grunar að það verði fínt fyrir mig. Ég er komin með pínu ógeð að skoða tölvuskjái eftir að hafa verið að pæla í þessu í ófáa mánuði og er farið að langa að finna eitthvað svo ég get svissað imbanum út og látið hann í hefðbundin sjónvarpshlutverk og fengið mér meiri gaming skjá.
Ég er opin fyrir curved eða 21:9 ramma skjá þess vegna, þó mig grunar að 16:9 henti samt en vel
Hérna eru ýmis skjáir sem ég hef skoðað og reynt mér að lesa dóma um;
Alienware 27" AW2725DF https://elko.is/vorur/alienware-27-aw2725df-leikjaskjar-348533/AW2725DF
Alienware 27" AW2725QF https://elko.is/vorur/alienware-27-aw2725qf-leikjaskjar-373076/AW2725QF
Samsung 32" Odyssey G7 SAS32DG702 https://elko.is/vorur/samsung-32-odyssey-g7-sas32dg702-leikjaskjar-379214/SAS32DG702
Samsung 28" Odyssey G7 https://elko.is/vorur/samsung-28-odyssey-g7-ls28bg700-leikjaskjar-321163/LS28BG700EPXEN
Acer Nitro XV275U https://tl.is/acer-nitro-xv275k-p3-27-qhd-mini-led-tolvuskjar.html
Gigabyte 27" AORUS FO27Q3 https://tolvutaekni.is/collections/rymingarsala/products/gigabyte-27-aorus-fo27q334-leikjaskjar-qd-oled-360hz-qhd-2560x1440-1ms-usb-c-displayport-hdmi-kvm-switch
Gigabyte M32UP https://tolvutek.is/Tolvuskjair/Gigabyte-M32UP-32%22-IPS-UHD-160Hz-HDR400-1ms-KVM-leikjaskjar/2_39564.action
Þið vonandi fyrirgefið mér langlokuna, ég á til að sökkva mér í svona rannsóknir og týnast smá í þeim án þess að finna góðan endapunkt

Allar ábendingar og punktar eru vel þegnir.
Kv. Silly