Síða 1 af 1
Fyrirframgreitt kredit kort
Sent: Fim 01. Maí 2025 23:32
af Danielmar123
Daginn. Er að spá hvort að það sé þess virði að panta sér fyrirframgreitt kreditkort. Hverjir eru kostir og gallar, afhverju, afhverju ekki?
Eða hvort maður ætti bara að halda sig við gamla góða debit kortið og seðla.
Öll svör eru valid, sama hversu léleg þau eru. Segið mér endilega ykkar reynslu líka.
Þakka fyrir og eigiði góðan dag

Re: Fyrirframgreitt kredit kort
Sent: Fim 01. Maí 2025 23:41
af Tóti
Debetkortafærsla kostar 18 krónur
Re: Fyrirframgreitt kredit kort
Sent: Fim 01. Maí 2025 23:45
af Tóti
Re: Fyrirframgreitt kredit kort
Sent: Fim 01. Maí 2025 23:55
af IL2
Fer dálitið fyrir hvað þu ætlar að nota það í. Ég er með ódyrasta kortið frá 'islandsbanka og nota það til að panta á netinu og flug. Stór ókostur við það að þu getur bara tekið út 50.000 úr hraðbanka og ekki hækkað útektina.
Ekki það að ég er farinn að stórauka seðlanotkun og finnst margir gravaralausir hvað það mun kosta okkur ef þeir detta úr umferð.
Re: Fyrirframgreitt kredit kort
Sent: Fös 02. Maí 2025 00:00
af cocacola123
Konan fór frá mér eftir að ég fékk mér plúskort. Mæli alls ekki með.
Fáðu þér kredit kort með minnst 500 þúsund króna heimild ef þú vilt góða reynslu.
Re: Fyrirframgreitt kredit kort
Sent: Fös 02. Maí 2025 04:41
af Knud
Ég var að nota fyrirframgreitt kreditkort í mörg ár, svo kom Indó á markaðinn og hef notað debetkortið frá þeim og ekki lent í neinum vandræðum, keypt flug, pantað bílaleigubíl osfrv. Engin færslugjöld, ekkert gjaldeyrisálag, ekkert ársgjald.
Re: Fyrirframgreitt kredit kort
Sent: Fös 02. Maí 2025 11:15
af brain
Nota alltaf fyrirfram greitt á netinu. Legg in það sem ætla að versla fyrir og tæmi svo.
Líka eina sem virkar að setja Paypal inná ef maður fær greitt fyrir vörur. ( nema bankareikn)
Re: Fyrirframgreitt kredit kort
Sent: Fös 02. Maí 2025 11:23
af Bengal
Bara fá sér Indó ef þú vilt vera í prepaid.
Engin aukagjöld eða þóknanir.
Re: Fyrirframgreitt kredit kort
Sent: Fös 02. Maí 2025 11:39
af Hizzman
Indó. Sæktu appið, skráðu inn með rafrænum skilríkjum, kortið kemur í pósti. Kostar ekkert. Færð smá vexti m.a.s. Ekkert gengisálag. Erlendar færslur eru instant. Ég nota bara Auði og Indó.
Re: Fyrirframgreitt kredit kort
Sent: Fös 02. Maí 2025 11:51
af rostungurinn77
Fyrirframgreitt kort úr banka kostar 3-4 þúsund á ári í árgjald plús x krónur fyrir hverja færslu.
Indó kostar ekkert að því er ég best veit. Engin færslugjöld, lægra gengisálag. Eini ókosturinn er mögulega sá að þetta er debitkort og því kannski ekki sama öryggi hvað svik varðar, alltsvo að fá endurgreitt. Þekki ekki alveg hvernig það virkar.
Re: Fyrirframgreitt kredit kort
Sent: Fös 02. Maí 2025 12:17
af Hizzman
Bankarnir eru sko ekkert vernda gegn svikum, það eru reglulega fréttir um það. Með debet korti geturðu amk varið þig með því að hafa aldrei háa upphæð á kortinu.
Re: Fyrirframgreitt kredit kort
Sent: Fös 02. Maí 2025 12:26
af Manager1
Ég hef verið með fyrirframgreitt kreditkort í mörg ár, en ég nota það nánast eingöngu til að versla á netinu, finnst ég talsvert öruggari með fyrirframgreitt á internetinu heldur en hefðbundið kreditkort.
Það er ekkert vitlaust að nota það í staðinn fyrir debetkort og jafnvel velta bara öllu í gegnum kortið, t.d. er minnsta kreditkortið hjá Landsbankanum með aukakrónusöfnun, 2kr fyrir hverjar 1000kr sem eru notaðar. Árgjaldið er 3700, þú þarft 1850þús veltu á ári til að fá jafnmargar aukakrónur og árgjaldið er, en sparar auðvitað færslugjaldið líka í hvert sinn sem þú notar kredit í staðinn fyrir debet, þannig að í raun ertu enga stund að vinna upp árgjaldið.