Síða 1 af 1

Úttekt á loftskiptikerfi heimilis

Sent: Mið 16. Apr 2025 09:36
af KaldiBoi
Hæhæ

Ég keypti í nýbyggingu og gæti eiginlega ekki orðið sáttari nema fyrir það að eitthvað er ekki rétt varðandi loftskiptikerfið í íbúðinni.

Það eru ýmsir búnir að kíkja á þetta, meðal annars blikksmiðir, sem setti kerfið upp og hönnuðir og allir eru sammála um eitt; það er undirþrýstingur í íbúðinni, augljós, enn mjög lítið um aðgerðir þrátt fyrir að hönnuðirnir eru búnir að koma með hugmyndir hvernig megi bæta úr þessu.

Vitið þið um aðila sem eru óháðir og gætu framkvæmt úttekt og skilað skýrslu?

Re: Úttekt á loftskiptikerfi heimilis

Sent: Mið 16. Apr 2025 09:57
af rapport
Ég hefði haldið að maður vildi hafa vélræna loftræsingu sem skapar þá auðvitað undirþrýsting í íbúðinni ef það kemst hvergi loft inn. Þetta er ástæðan fyrir því að það eru sérstakar lofttúður/öndun í nýjum íbúðum. Það þarf að passa að þessar lofttúður séu opnar og eða opnir gluggar einhverstaðar.

Hjá okkur er vélræn loftræsing inn á baðherbergi og svo þvottahúsi og það eru einnig einu herbergin þar sem eru þröskuldar.
Þau mistök voru gerð að þegar hurðirnar voru pantaðar þá voru þær pantaðar eins og í öllum hinum herbergjunum og því lokaði þröskuldurinn á loftflæðið sem gert hafði verið ráð fyrir að færi undir hurðina þegar hún væri lokuð.

Það segir sig sjálft að það skiptir engu máli hversu stóra og öfluga mótora fólk setur í loftræstikerfin hjá sér, að ekkert virkar nema fólk sé með opna glugga eða opnar loftunartúður, því þar kemur loftið inn í íbúðirnar og fer svo út um loftræstikerfið.

Og auðvitað getur kerfið ekki dregið loft út úr íbúðinni ef það kemst hvergi annarstaðar loft inn í íbúðina... og þá er bara krónæiskur undirþrýstingur á heimilinu.

Re: Úttekt á loftskiptikerfi heimilis

Sent: Mið 16. Apr 2025 10:20
af rostungurinn77
Enga reynslu af þessu fyrirtæki en þú gætir prufað heyra í þeim.

www.fagmat.is


Annars bara einhver verkfræðistofa gæti ég ímyndað mér.

Re: Úttekt á loftskiptikerfi heimilis

Sent: Mið 16. Apr 2025 12:30
af Zaphod
Finnst merkilegt að það sé undirþrýstingur í íbúð með loftskiptikerfi.

Yfirleitt var undirþrýstingur vandamál í íbúðum með vélrænu útsogi.

Samstæðan tvískipt með varmaskiptihjóli?

Re: Úttekt á loftskiptikerfi heimilis

Sent: Mið 16. Apr 2025 18:47
af playman
Ég hélt að það væri alltaf yfirþrýstingur í íbúðum? Dæla fersku hreinu lofti inn í stað þess að sjúga "skítugt" loft að utan.
Fynnst það meira logic allavegana.

Re: Úttekt á loftskiptikerfi heimilis

Sent: Mið 16. Apr 2025 19:07
af rapport
playman skrifaði:Ég hélt að það væri alltaf yfirþrýstingur í íbúðum? Dæla fersku hreinu lofti inn í stað þess að sjúga "skítugt" loft að utan.
Fynnst það meira logic allavegana.


Þessi loftræsing er alltaf frá baðherbergi og þvottahúsi, aldrei verið að blása kúkalyktinnu fram á gang :guy

Re: Úttekt á loftskiptikerfi heimilis

Sent: Fim 17. Apr 2025 12:49
af EinnNetturGaur
skoðaðu lofttúfuna sem er í einhverjum útvegg, hún á að koma í veg fyrir undirþrýstingi, eða bara vera með gluggana rétt svo opna þannig að loft komist inn en ekki vatn(vanalega tvær svoleiðis stillingar í gluggum)

Re: Úttekt á loftskiptikerfi heimilis

Sent: Fim 17. Apr 2025 12:59
af Hrotti
Ef þú ert að tala um alvöru loftskiptikerfi þá ætti það almennt að sjúga loft út úr votrýmum og eldhúsi en blása inn í öll hin. Stæðan sjálf er svo með allskonar stillingar þar sem er hægt að stilla hlutfallið af inn/út blástri.

IMG_2555.jpg
IMG_2555.jpg (53.05 KiB) Skoðað 5207 sinnum

Re: Úttekt á loftskiptikerfi heimilis

Sent: Fös 18. Apr 2025 17:45
af KaldiBoi
EinnNetturGaur skrifaði:skoðaðu lofttúfuna sem er í einhverjum útvegg, hún á að koma í veg fyrir undirþrýstingi, eða bara vera með gluggana rétt svo opna þannig að loft komist inn en ekki vatn(vanalega tvær svoleiðis stillingar í gluggum)

Við búum ekki svo langt frá umferðagötu en ég skal viðurkenna ég hefði bara viljað hafa þetta í lagi þar sem það eru þrjár lofttúður í útveggjunum.
Þeir sem mættu hingað töldu skort vera á innflæði, þannig þeir skrúfuðu niður í vélræna útsoginu og það breytti einhverju en ekki nærrum nóg.

rapport skrifaði:Ég hefði haldið að maður vildi hafa vélræna loftræsingu sem skapar þá auðvitað undirþrýsting í íbúðinni ef það kemst hvergi loft inn. Þetta er ástæðan fyrir því að það eru sérstakar lofttúður/öndun í nýjum íbúðum. Það þarf að passa að þessar lofttúður séu opnar og eða opnir gluggar einhverstaðar.
Það er nefnilega það, allar túður galopnar og eina leiðin til að losna við þennan vindhávaða er að opna gluggan, þá fær vélræna útsogið loftið sem það þarf og hávaðinn hættir.

rapport skrifaði:
Það segir sig sjálft að það skiptir engu máli hversu stóra og öfluga mótora fólk setur í loftræstikerfin hjá sér, að ekkert virkar nema fólk sé með opna glugga eða opnar loftunartúður, því þar kemur loftið inn í íbúðirnar og fer svo út um loftræstikerfið.

Og auðvitað getur kerfið ekki dregið loft út úr íbúðinni ef það kemst hvergi annarstaðar loft inn í íbúðina... og þá er bara krónæiskur undirþrýstingur á heimilinu.

Einmitt, hönnuðurnir telja að það sé fyrirstaða í útveggjunum en blikksmiðirnir vilja ekkert gera, nú benda menn bara á hvort annað.


Zaphod skrifaði:Finnst merkilegt að það sé undirþrýstingur í íbúð með loftskiptikerfi.

Yfirleitt var undirþrýstingur vandamál í íbúðum með vélrænu útsogi.

Samstæðan tvískipt með varmaskiptihjóli?


Það er semsagt vélrænt útsog en "dautt" í úttvegjunum

Re: Úttekt á loftskiptikerfi heimilis

Sent: Fös 18. Apr 2025 17:47
af KaldiBoi
rostungurinn77 skrifaði:Enga reynslu af þessu fyrirtæki en þú gætir prufað heyra í þeim.

http://www.fagmat.is


Annars bara einhver verkfræðistofa gæti ég ímyndað mér.


Já, heyrði einmitt í blikksmiðju sem ætlar að skoða þetta, bara glatað að vera henda pening í eth sem á að vera í lagi.