Síða 1 af 1

Sepultura tónleikarnir

Sent: Þri 15. Apr 2025 18:32
af emil40
Hvað segiði félagar, hverjir ætla að mæta á Sepultura tónleikanna !!!!

emil og óli á sepultura.png
emil og óli á sepultura.png (1.95 MiB) Skoðað 7820 sinnum

Re: Sepultura tónleikarnir

Sent: Þri 15. Apr 2025 19:50
af einarhr
Ekki beint spenntur, Cavalera bræðurnir hættu fyrir áratugum og þetta er ekki sama hljómsveit og ég ólst upp með og elskaði !

Re: Sepultura tónleikarnir

Sent: Þri 15. Apr 2025 20:26
af agnarkb
Sumarið hja mer fer í Iron Maiden túr svo ég efa það að eg fari á Sepultura, hef bara ekki getað Sepultura eftir Arise. Myndi samt fara að sjá Cavalera bræður spila Morbid Visions og Schizophrenia sem þeir endurútgáfu í fyrra.

Re: Sepultura tónleikarnir

Sent: Þri 15. Apr 2025 20:33
af svanur08
Þá veit maður hvernig gaurinn með flottustu PC á vaktinni lítur út. Góða skemmtun! :happy

Re: Sepultura tónleikarnir

Sent: Þri 15. Apr 2025 21:51
af emil40
svanur08 skrifaði:Þá veit maður hvernig gaurinn með flottustu PC á vaktinni lítur út. Góða skemmtun! :happy


Takk vinur !

Þessi við hliðin á mér er Óli starfsmaður hérna á Stapavöllum ( Búsetukjarni fyrir fatlaða ) þar sem ég bý. Óli er aðalmaðurinn og gerir bestu hamborgara í heimi !!! Hann sér um öll mín mál og ég þarf að vera með starfsmann með mér til öryggis af ég skyldi fá flog. Það er aldrei of varlega farið. Ég er með gleraugu með dökku gleri útaf blikkandi ljósunum :)

Eigið gott kvöld kæru vinir !!!! :happy

Re: Sepultura tónleikarnir

Sent: Þri 15. Apr 2025 21:54
af Gerbill
Pakkaður júní, Sepultura, Wardruna og In Flames

Hefði verið til í alla en þar sem ég bý fyrir norðan þurfti ég að velja eina og In Flames urðu fyrir valinu.

Re: Sepultura tónleikarnir

Sent: Mið 16. Apr 2025 08:30
af T-bone
Ég er bara ennþá ógeðslega sár að hafa ekki fengið miða á In Flames!

Re: Sepultura tónleikarnir

Sent: Mið 16. Apr 2025 08:32
af audiophile
Carcass og Sororicide á Sátunni og svo In Flames nægja mér í sumar.

Re: Sepultura tónleikarnir

Sent: Mið 16. Apr 2025 08:46
af Jón Ragnar
In Flames og Eyehategod í Júní

Sýnist Pallbearer vera í Maí líka


hvað er að gerast með innflutning á góðum böndum.

Mögulega kíki ég á Sátuna líka - EInnig er Ascension festival klikkað (var það í fyrra - Afsky var eitthvað annað level)

Re: Sepultura tónleikarnir

Sent: Mið 16. Apr 2025 11:03
af emil40
Búinn að kaupa miðann. Aðstoðarmaðurinn fær frítt inn með mér hann er mjög sáttur fríir tónleikar og hann er í fríi þennann dag þannig að hann fær líka borgaða yfirvinnu

Re: Sepultura tónleikarnir

Sent: Mið 16. Apr 2025 11:05
af ABss
Ég bara verð að segja það, að þetta er ótrúlega fín mynd. Flottir gaurar, lýsingin, gæðin, gleðin og mótívið. Ekki oft sem mér sjálfur flottar, hvað það að ég hafi orð á því, en þessi er einstaklega vel heppnuð. Til lukku með það.

Re: Sepultura tónleikarnir

Sent: Mið 16. Apr 2025 12:59
af GuðjónR
Spotify dugar mér fullkomlega. :happy

Re: Sepultura tónleikarnir

Sent: Mið 16. Apr 2025 13:20
af emil40
ABss skrifaði:Ég bara verð að segja það, að þetta er ótrúlega fín mynd. Flottir gaurar, lýsingin, gæðin, gleðin og mótívið. Ekki oft sem mér sjálfur flottar, hvað það að ég hafi orð á því, en þessi er einstaklega vel heppnuð. Til lukku með það.


Takk kærlega fyrir ég er með chatgpt 4.0 er með mánaðarlega áskrift $25 á mánuði

Re: Sepultura tónleikarnir

Sent: Mið 16. Apr 2025 13:48
af ABss
Já, notaðir þú hana til að gera myndina betri?

Re: Sepultura tónleikarnir

Sent: Mið 16. Apr 2025 13:50
af emil40
ABss skrifaði:Ég bara verð að segja það, að þetta er ótrúlega fín mynd. Flottir gaurar, lýsingin, gæðin, gleðin og mótívið. Ekki oft sem mér sjálfur flottar, hvað það að ég hafi orð á því, en þessi er einstaklega vel heppnuð. Til lukku með það.


Geðveikt flottir gaurar á Sepultura !!!! Núna sjáið þið að ég eyði ekki bara í tölvudótið ....

Ég kaupi nú samt nýjann leikjaskjá í sumar budget ca 300-400þ megið alveg koma með uppástungur

Re: Sepultura tónleikarnir

Sent: Fim 17. Apr 2025 12:46
af EinnNetturGaur
Ég er ekki viss en mig langar mikið að fara en er að fara á sátuna og tvisvar til útlanda á þessum mánuði plús manowar, sjáum til samt!

Re: Sepultura tónleikarnir

Sent: Fim 17. Apr 2025 22:58
af emil40
EinnNetturGaur skrifaði:Ég er ekki viss en mig langar mikið að fara en er að fara á sátuna og tvisvar til útlanda á þessum mánuði plús manowar, sjáum til samt!


þetta eru fyrstu tónleikarnir sem ég fer á síðan ég byrjaði að vera edrú og þann 19 apríl eru níu og hálft ár síðan :)

Re: Sepultura tónleikarnir

Sent: Þri 22. Apr 2025 13:16
af worghal
allt of mikið að gerast í metal heiminum á íslandi í sumar en ég verð því miður að sleppa sepultura af því ég fer á Rock Im Park i þýskalandi en næ þó manowar og in flames hérna heima :D
sleppi sátunni þar sem ég nenni ekki að hýrast í tjaldi á íslandi :lol:

Re: Sepultura tónleikarnir

Sent: Þri 22. Apr 2025 14:02
af emil40
Svo kaupir maður Sepultura varning