Síða 1 af 1
Óljósar starfslýsingar - Vandamál?
Sent: Þri 15. Apr 2025 10:23
af rapport
https://www.visir.is/g/20252715098d/al- ... -og-gremjuMér þykir þetta svo skrítin frétt.
Nú hef ég verið í 30+ ár á vinnumarkaði, þar af um 20 sem opinber starfsmaður (hefði haldið að það væri stífara en einkageirinn)...
Ef fólk er eitthvað ósátt við starfslýsinguna sína þá er henni bara breytt í samstarfi við yfirmann. En starfsfólk verður líka að vita að vinnustaðurinn ræður 100% hvernig starfslýsing starfa er og getur breytt henni nánast að vild svo lengi sem að verkin sem á að vinna séu viðeigandi fyrir starfið.
Það er lélegt starfsfólk sem áttar sig ekki á aðstæðum og heldur að starfslýsingin þeirra sé tæmandi listi fyrir vinnuna sem það þarf að vinna, öll störf þróast og allir starfsmenn þróast. Starfslýsingin má og á að þróast samhliða (og auðvitað ábyrgð og laun).
Það eru lélegir stjórnendur sem geta ekki sagt fólki til hvers er ætlast af þeim í vinnunni.
Og enn lélegri stjórnendur sem reyna að segja fólki nákvæmlega hvernig það á að vinna vinnuna sína, það er lágmark að fólk hafi hæfni til að vinna vinnuna sína og leysa úr vafamálum sjálft eða í samráði við samstarfsfólk.
Er ég kannski bara svona einfaldur og heppinn, að hafa aldrei lent í svona vandræðum?
Hefur einhver hérna upplifað þetta sem fréttin lýsir?
Re: Óljósar starfslýsingar - Vandamál?
Sent: Þri 15. Apr 2025 11:33
af oliuntitled
rapport skrifaði:Það er lélegt starfsfólk sem áttar sig ekki á aðstæðum og heldur að starfslýsingin þeirra sé tæmandi listi fyrir vinnuna sem það þarf að vinna, öll störf þróast og allir starfsmenn þróast. Starfslýsingin má og á að þróast samhliða (og auðvitað ábyrgð og laun).
Það eru lélegir stjórnendur sem geta ekki sagt fólki til hvers er ætlast af þeim í vinnunni.
Og enn lélegri stjórnendur sem reyna að segja fólki nákvæmlega hvernig það á að vinna vinnuna sína, það er lágmark að fólk hafi hæfni til að vinna vinnuna sína og leysa úr vafamálum sjálft eða í samráði við samstarfsfólk.
Mikið er ég sammála þér þarna.
Hef lent í að vinna með fólki í gegnum tíðina sem eru svo miklir fastir kassar í hugsun að minnstu frávik frá kassanum eru absolute vandamál.
Slíkt fólk hefur ekki verið langlíft á mínum starfsvettvangi þar sem þarf að aðlagast og leysa hlutina.
Re: Óljósar starfslýsingar - Vandamál?
Sent: Þri 15. Apr 2025 14:20
af rostungurinn77
rapport skrifaði:Er ég kannski bara svona einfaldur og heppinn, að hafa aldrei lent í svona vandræðum?
Hefur einhver hérna upplifað þetta sem fréttin lýsir?
Þú ert bara heppinn.
Maður er að sjá talað um þetta mun oftar í þessum atvinnulífsgreinum.
Grunar að hluti vandans stafi af misskilningi milli mannauðsdeildar og stjórnanda hvað varðar starfslýsingu.
Hef mætt í atvinnuviðtal þar fyrir starf sem var lýst með ákveðnum hætti í auglýsingu en allt öðrum í viðtalinu. Veit ekki hvar mistökin lágu.
Get hins vegar alveg ímyndað mér að starfi fólks sé breytt að því forspurðu. Þú kemur inn í fyrirtæki á einhverjum forsendum og svo halda þær ekki lengur og þá ert þú mögulega ekki sáttur.
Re: Óljósar starfslýsingar - Vandamál?
Sent: Þri 15. Apr 2025 15:44
af falcon1
Ef viðvikið er innan hæfilegra marka þá ok en sumir vinnuveitendur eru að fara langt út fyrir öll mörk og það er ekki í lagi.
Re: Óljósar starfslýsingar - Vandamál?
Sent: Þri 15. Apr 2025 16:39
af Minuz1
rapport skrifaði:https://www.visir.is/g/20252715098d/al-gengast-ad-o-ljosar-starfs-lysingar-valdi-tog-streitu-og-gremju
Mér þykir þetta svo skrítin frétt.
Nú hef ég verið í 30+ ár á vinnumarkaði, þar af um 20 sem opinber starfsmaður (hefði haldið að það væri stífara en einkageirinn)...
Ef fólk er eitthvað ósátt við starfslýsinguna sína þá er henni bara breytt í samstarfi við yfirmann. En starfsfólk verður líka að vita að vinnustaðurinn ræður 100% hvernig starfslýsing starfa er og getur breytt henni nánast að vild svo lengi sem að verkin sem á að vinna séu viðeigandi fyrir starfið.
Það er lélegt starfsfólk sem áttar sig ekki á aðstæðum og heldur að starfslýsingin þeirra sé tæmandi listi fyrir vinnuna sem það þarf að vinna, öll störf þróast og allir starfsmenn þróast. Starfslýsingin má og á að þróast samhliða (og auðvitað ábyrgð og laun).
Það eru lélegir stjórnendur sem geta ekki sagt fólki til hvers er ætlast af þeim í vinnunni.
Og enn lélegri stjórnendur sem reyna að segja fólki nákvæmlega hvernig það á að vinna vinnuna sína, það er lágmark að fólk hafi hæfni til að vinna vinnuna sína og leysa úr vafamálum sjálft eða í samráði við samstarfsfólk.
Er ég kannski bara svona einfaldur og heppinn, að hafa aldrei lent í svona vandræðum?
Hefur einhver hérna upplifað þetta sem fréttin lýsir?
Sum störf eru 100% nelgd niður og áfrávíkjanleg, allt aukalegt er bara undir starfsmanninum sjálfum komið.
Flugmaður er ágætis dæmi, hann ber ábyrgð og skipulagningu flugsins, ber ábyrgð á farmi og ferð.
En svo hefur maður alveg heyrt um að flugmenn fari út og hjálpi við að hlaða vélina. Honum er frjálst að gera það, en það er ekki hægt að segja að það sé innan hans starfslýsingar.
Að vera svo liðlegur er ekki eðlilegt að sé í starfslýsingu og heitir undir undantekningartilvik.
En það hefur alltaf verið stór munur á stjórnanda(maður sem segir þér hvernig þú átt að vinna vinnuna þína) og leiðtoga(maður sem treystir þér fyrir að leysa starfið þitt og hjálpar þér með verkefnin)
Re: Óljósar starfslýsingar - Vandamál?
Sent: Þri 15. Apr 2025 22:41
af rostungurinn77
Minuz1 skrifaði:
Flugmaður er ágætis dæmi.
Indriði er víða en það að rafvirkinn sé látinn kíkja á ofnana er ekki beint vandamálið hér.
Þetta er meira hjá stærri fyrirtækjum þar sem fólk fær ólýsandi starfstitla eins og sérfræðingur eða leiðtogi og enginn veit hvað það á að gera. Ekki starfsmaðurinn, stjórinn eða samstarfsfólkið.
Re: Óljósar starfslýsingar - Vandamál?
Sent: Mið 16. Apr 2025 09:05
af Archdukemelon
Í mínu fyrri störfum þá var þetta óspart notað, starfslýsingin var "starfsmaður í verslun" sem segir sig eiginlega sjálft, nema hvað þegar versluninn tók á sig að verða umboðsaðili fyrir símfyrirtæki þá bætist á okkur 100% meiri vinna, ásamt því að tæknilega verða þjónustufulltrúar en engin launahækkun fylgdi með því þetta var innan þessara óljósu starfslýsingu.
Þar á undan starfaði ég sem öryggisvörður út á landi og var með lengstu starfsreynsluna þannig varð de facto yfirmaður á staðnum með engan titil, en alltaf hringt í þegar eitthvað var að eða eitthvað var óljóst... aldrei fylgdi það í starfslýsingunni.
Re: Óljósar starfslýsingar - Vandamál?
Sent: Mið 16. Apr 2025 09:18
af rapport
rostungurinn77 skrifaði:Minuz1 skrifaði:
Flugmaður er ágætis dæmi.
Indriði er víða en það að rafvirkinn sé látinn kíkja á ofnana er ekki beint vandamálið hér.
Þetta er meira hjá stærri fyrirtækjum þar sem fólk fær ólýsandi starfstitla eins og sérfræðingur eða leiðtogi og enginn veit hvað það á að gera. Ekki starfsmaðurinn, stjórinn eða samstarfsfólkið.
Er reyndar að átta mig á að ég hef reynslu af því að hafa mætt í viðtal 2017/2018 hjá ríkisstofnun og í viðtalinu var strax viðurkennt að starfsheitið væri ekki lýsandi fyrir starfið heldur notað til að hægt væri að greiða laun í samræmi við almenna markaðinn fyrir "almennara starf".
Ég man að ég svaraði því til að ég væri til í að vinna starfið sem var auglýst og sinna þessu almenna starfi líka, að mér þætti það fullkomlega eðlilegt að í teymi hjá lítilli starfsemi þá skipti fólk með sér ýmsum verkum.
Þau buðu mér svo starfið en ég var búinn að skrifa undir annarstaðar.
Man hvað þau urðu undrandi þegar ég svaraði þessu svona, eins og þau þeim þætti eðlilegra að ég mundi segja... "nei, ég mun bara gera það sem stendur í auglýsingunni... og ekkert annað..."
Re: Óljósar starfslýsingar - Vandamál?
Sent: Lau 19. Apr 2025 18:09
af Dr3dinn
Þetta er allstaðar, verr á einka markaðnum.
Stendur oft "gera allt sem þarf að framkvæma á sviði/deild"
Almennilegar lýsingar og launakjör væri draumur í auglýsingum, fæ oft linkedin boð sem er bara auto hafnað, þar sem maður nennir ekki einu sinni viðtöl ef þetta gæti verið meðallaun / lægri kantinum.
Fyrirtæki sem ætla bjóða vel, en segja ekkert í auglýsingu = auto nei, nema maður þekki til þeirra.
Get alveg ímyndað mér að fyrirtæki sem ættu að fá gott fólk / reynt ,fái ekki einu sinni umsóknir því það er engin að vanda sig neitt, hvað þá þessar slöku ráðningastofur sem taka 3x mánaðarlaun í þóknun fyrir ekki neitt.
Re: Óljósar starfslýsingar - Vandamál?
Sent: Sun 20. Apr 2025 12:47
af rapport
Dr3dinn skrifaði:Þetta er allstaðar, verr á einka markaðnum.
Stendur oft "gera allt sem þarf að framkvæma á sviði/deild"
Almennilegar lýsingar og launakjör væri draumur í auglýsingum, fæ oft linkedin boð sem er bara auto hafnað, þar sem maður nennir ekki einu sinni viðtöl ef þetta gæti verið meðallaun / lægri kantinum.
Fyrirtæki sem ætla bjóða vel, en segja ekkert í auglýsingu = auto nei, nema maður þekki til þeirra.
Get alveg ímyndað mér að fyrirtæki sem ættu að fá gott fólk / reynt ,fái ekki einu sinni umsóknir því það er engin að vanda sig neitt, hvað þá þessar slöku ráðningastofur sem taka 3x mánaðarlaun í þóknun fyrir ekki neitt.
Mér finnst ekkert að því að allir hafi í starfslýsingu " og önnur verkefni á starfssviði deildarinnar"
En ef yfirmaðurinn deilir þeim ekki jafnt eða elinhverjir ákveðnir starfsmenn fá alltaf bitastæðustu verkefnin, þá þarf að eiga samtal við yfirmanninn.
Re: Óljósar starfslýsingar - Vandamál?
Sent: Mán 21. Apr 2025 09:50
af Hjaltiatla
Það er stundum sem starfsauglýsingar í IT bransanum eru að auglýsa eftir tölvudeild frekar en einum starfsmanni sem tikkar í öll box yfir hæfni.
Þá eðlilega getur starfslýsing misst marks ef aðili sækir um og mannauðsdeildin sér um ráðninguna og að stilla upp starfsauglýsingu. Yfirleitt er þetta skýrara í atvinnuviðtölum þegar maður ræðir við starfsmenn á plani og þá þarf maður að passa sig á að spurja réttu spurninganna. Væri t.d frekar fúlt að vera ráðinn inn í stöðu sem maður væri að moka flórinn en auglýsing og allt hjal í atvinnuviðtali væri verið að reyna fegra hlutina og fylla í stöðu sem væri alls ekki spennandi en væri máluð þannig. Mín reynsla betra að vera heiðarlegur með dagleg verkefni en að fegra hlutina of mikið (sérstaklega ef aðili er að færa sig frá einu fyrirtæki yfir í annað).
Re: Óljósar starfslýsingar - Vandamál?
Sent: Þri 22. Apr 2025 21:23
af machinefart
Er þetta ekki bara auglýsing fyrir þjónustu auðnast? Auðvitað er þetta allt mikilvægt og risa vandamál og eina lausnin að heyra í þeim og kaupa nokkur góð hópefli
Re: Óljósar starfslýsingar - Vandamál?
Sent: Þri 22. Apr 2025 23:23
af rapport
machinefart skrifaði:Er þetta ekki bara auglýsing fyrir þjónustu auðnast? Auðvitað er þetta allt mikilvægt og risa vandamál og eina lausnin að heyra í þeim og kaupa nokkur góð hópefli
Nei, að fara í hópefli þegar fólk er óánægt er líklegt til að magna upp vandann ef hann er hundsaður í hópeflinu.
Re: Óljósar starfslýsingar - Vandamál?
Sent: Mið 23. Apr 2025 21:16
af machinefart
rapport skrifaði:machinefart skrifaði:Er þetta ekki bara auglýsing fyrir þjónustu auðnast? Auðvitað er þetta allt mikilvægt og risa vandamál og eina lausnin að heyra í þeim og kaupa nokkur góð hópefli
Nei, að fara í hópefli þegar fólk er óánægt er líklegt til að magna upp vandann ef hann er hundsaður í hópeflinu.
Já bitur kaldhæðnin hefur ekki skilað sér nægilega vel í skilaboðin mín. Ég er afskaplega lítið fyrir svona dót og veit af persónulegri reynslu að auðnast eru góð í að koma sér vel fyrir sem ómissandi uppspretta allskonar kjaftæðis sem á að leysa öll vandamál fyrir fyrirtæki. Svo er bara mikilvægt að gera engar mælingar eða kannanir hvorki fyrir né eftir, þá geturðu haldið fram að þetta virki mjög vel
Re: Óljósar starfslýsingar - Vandamál?
Sent: Fös 02. Maí 2025 09:35
af natti
rapport skrifaði:Dr3dinn skrifaði:[...]
Mér finnst ekkert að því að allir hafi í starfslýsingu " og önnur verkefni á starfssviði deildarinnar"
En ef yfirmaðurinn deilir þeim ekki jafnt eða elinhverjir ákveðnir starfsmenn fá alltaf bitastæðustu verkefnin, þá þarf að eiga samtal við yfirmanninn.
Þetta er megin innihald greinarinnar sem þú vitnar í.
Og það er sumt í þessari grein sem ég er virkilega ósammála, en þetta er samt punkturinn sem subjectið vísar í.
"önnur verkefni á starfssviði deildarinnar" = mjög víðtækt orðalag.
Það má alveg deila um hvort þetta sé í lagi eða ekki, en ef aðal umkvörtunarefni sumar er að starfslýsingin sé ekki nógu skýr um hvað sé hluti af þeirra vinnu, eða öllu heldur, undanskilið, þá er þessi partur starfslýsingarinnar ekki að hjálpa neitt.
Held að þessi vandamál séu almennt ekki hjá flugmönnum heldur, heldur venjulegu skrifsstofufólki, og t.d. IT fólki.
Mér finnst mjög algengt að fólk sé að rökræða um hvort að ákveðin atriði séu hluti af vinnu þeirra eða ekki.
Yfirleitt (mín greining/gut feeling), er að þetta kemur til þegar fólk treystir sér ekki að fara út fyrir þægindarammann sinn.
Re: Óljósar starfslýsingar - Vandamál?
Sent: Fös 02. Maí 2025 12:54
af Frussi
rapport skrifaði:Mér finnst ekkert að því að allir hafi í starfslýsingu " og önnur verkefni á starfssviði deildarinnar"
En ef yfirmaðurinn deilir þeim ekki jafnt eða elinhverjir ákveðnir starfsmenn fá alltaf bitastæðustu verkefnin, þá þarf að eiga samtal við yfirmanninn.
Ég hef unnið sem stuðningsfulltrúi í grunnskóla þar sem þetta var "...og önnur tilfallandi störf". Þar átti til dæmis að láta mig skúra (sem ég hafnaði, enda ekki nálægt starfinu sem.eg var ráðinn í) en minn yfirmaður vísaði einmitt í "önnur tilfallandi störf". Ungt fólk á vinnumarkaði til dæmis veit ekki hvaða réttindi það hefur og hverju það má segja nei við og margir yfirmenn nýta sér það
Re: Óljósar starfslýsingar - Vandamál?
Sent: Fös 02. Maí 2025 22:19
af rapport
Frussi skrifaði:rapport skrifaði:Mér finnst ekkert að því að allir hafi í starfslýsingu " og önnur verkefni á starfssviði deildarinnar"
En ef yfirmaðurinn deilir þeim ekki jafnt eða elinhverjir ákveðnir starfsmenn fá alltaf bitastæðustu verkefnin, þá þarf að eiga samtal við yfirmanninn.
Ég hef unnið sem stuðningsfulltrúi í grunnskóla þar sem þetta var "...og önnur tilfallandi störf". Þar átti til dæmis að láta mig skúra (sem ég hafnaði, enda ekki nálægt starfinu sem.eg var ráðinn í) en minn yfirmaður vísaði einmitt í "önnur tilfallandi störf". Ungt fólk á vinnumarkaði til dæmis veit ekki hvaða réttindi það hefur og hverju það má segja nei við og margir yfirmenn nýta sér það
Það er útfyrir starfssviðið og ömurlegur yfirmaður þarna á ferðinni.
En starfslýsing er ekki og á ekki að vera tæmandi + vinnuveitanda er heimilt að breyta henni hvenær sem er án samráðs við starfsmann.
Þetta gildir líka hjá hinu opinbera.
https://www.bsrb.is/is/vinnurettur/star ... -a-storfum