Síða 1 af 2

Sólpallar við fjölbýli

Sent: Sun 13. Apr 2025 16:26
af falcon1
Ég er að pæla í að byggja mér sólpall en ég bý í fjölbýli á neðri hæð. Ég þarf að finna út hverjir eru þinglýstir eigendur íbúðanna (það eru nokkrar íbúðir í útleigu) svo ég geti fengið undirskrifað leyfi hjá þeim til að byggja pallinn. Hann mun fara aðeins inná sameiginlega lóð húsins.
Ég var að prófa Þjóðskrá og Fasteignaskránna en ég finn ekki upplýsingar um þinglýsta eigendur neins staðar. Vitið þið eitthvað um þessi mál? :)

Re: Finna þinglýsta eigendur fasteigna

Sent: Sun 13. Apr 2025 16:45
af Ghost
falcon1 skrifaði:Ég er að pæla í að byggja mér sólpall en ég bý í fjölbýli á neðri hæð. Ég þarf að finna út hverjir eru þinglýstir eigendur íbúðanna (það eru nokkrar íbúðir í útleigu) svo ég geti fengið undirskrifað leyfi hjá þeim til að byggja pallinn. Hann mun fara aðeins inná sameiginlega lóð húsins.
Ég var að prófa Þjóðskrá og Fasteignaskránna en ég finn ekki upplýsingar um þinglýsta eigendur neins staðar. Vitið þið eitthvað um þessi mál? :)

Banka uppá og fá símanúmer hjá eigendum :-k

Re: Finna þinglýsta eigendur fasteigna

Sent: Sun 13. Apr 2025 16:49
af olihar
Þarft ekki að halda húsfund.

https://www.stjornarradid.is/verkefni/h ... dunartaka/

Eiganda er einnig óheimilt á eigin spýtur að framkvæma nokkrar breytingar á sameign eða helga sér til einkanota hluta sameignar. Þá getur eigandi ekki fyrir hefð öðlast aukinn rétt til sameignar.

Allar sameiginlegar ákvarðanir eiga að vera teknar á húsfundum
Sú meginregla gildir að allar sameiginlegar ákvarðanir skal taka á húsfundum þar sem allir eigendur hafa átt þess kost að mæta og taka þátt í umræðum, ákvörðun og atkvæðagreiðslu. Allir eigendur eiga þannig óskorðan rétt á að taka þátt í öllum ákvörðunum er varða sameignina, bæði innan húss og utan, og sameiginleg málefni sem snerta hana beint og óbeint, til dæmis um fyrirkomulag, skipulag, útlit, viðbyggingar, breytingar, hvers kyns framkvæmdir, endurbætur, viðhald, rekstur, ráðstöfun með samningi, hagnýtingu sameignar og séreignar og setningu reglna þar um. Einstökum eiganda er þannig óheimilt upp á sitt einsdæmi að taka ákvarðanir eða gera ráðstafanir sem snerta sameign eða sameiginleg málefni nema svo sé ástatt sem greinir í 37. og 38. gr., sbr. 36. gr. laga nr. 26/1994.

Re: Finna þinglýsta eigendur fasteigna

Sent: Sun 13. Apr 2025 16:53
af falcon1
Ghost skrifaði:
falcon1 skrifaði:Ég er að pæla í að byggja mér sólpall en ég bý í fjölbýli á neðri hæð. Ég þarf að finna út hverjir eru þinglýstir eigendur íbúðanna (það eru nokkrar íbúðir í útleigu) svo ég geti fengið undirskrifað leyfi hjá þeim til að byggja pallinn. Hann mun fara aðeins inná sameiginlega lóð húsins.
Ég var að prófa Þjóðskrá og Fasteignaskránna en ég finn ekki upplýsingar um þinglýsta eigendur neins staðar. Vitið þið eitthvað um þessi mál? :)

Banka uppá og fá símanúmer hjá eigendum :-k

Þarf maður ekki að staðfesta einhvernvegin að það sé rétt? Allskonar vitleysa í gangi á þessum leigumarkaði.

Re: Finna þinglýsta eigendur fasteigna

Sent: Sun 13. Apr 2025 16:56
af falcon1
olihar skrifaði:Þarft ekki að halda húsfund.

https://www.stjornarradid.is/verkefni/h ... dunartaka/

Búinn að reyna að fá húsfund síðan í jan/feb.

Re: Finna þinglýsta eigendur fasteigna

Sent: Sun 13. Apr 2025 16:59
af olihar
Ég ýtreka þetta aftur líka, þar sem þetta getur bitið mig í rassagatið hvenær sem er seinna. Jafnvel af nýjum eiganda sem kaupir i eigninni eftir mörg ár.

Eiganda er einnig óheimilt á eigin spýtur að framkvæma nokkrar breytingar á sameign eða helga sér til einkanota hluta sameignar. Þá getur eigandi ekki fyrir hefð öðlast aukinn rétt til sameignar.

Re: Finna þinglýsta eigendur fasteigna

Sent: Sun 13. Apr 2025 17:01
af falcon1
Jamm, ég vil gera þetta rétt - einmitt svo maður lendi ekki í veseni og tapi síðar.

Re: Finna þinglýsta eigendur fasteigna

Sent: Sun 13. Apr 2025 17:26
af olihar
falcon1 skrifaði:Jamm, ég vil gera þetta rétt - einmitt svo maður lendi ekki í veseni og tapi síðar.

Ætli nýr eignaskiptasamningur/yfirlýsing sé ekki eina alveg rétta leiðin.

Re: Finna þinglýsta eigendur fasteigna

Sent: Sun 13. Apr 2025 17:56
af joker
Spurning hvort formaður húsfélagsins gæti haft upp á eigendum, eða gjaldkeri. Þeir hljóta að hafa þær upplýsingar.

Re: Finna þinglýsta eigendur fasteigna

Sent: Sun 13. Apr 2025 18:24
af rostungurinn77
Þú getur t.d. fundið þetta á keldan.is

Þessar upplýsingar eru hins vegar ekki ókeypis. Borgar einhverja hundraðkalla fyrir uppflettingu, minnir mig.

Re: Finna þinglýsta eigendur fasteigna

Sent: Sun 13. Apr 2025 19:56
af Gemini
Þegar þú byggir svona pall þá ertu að setja ábyrgð á aðra eigendur ef þetta er á sameiginlegri lóð. Þau geta lent í því að þurfa að borga viðhald á pallinum. Sérstaklega ef það eru einhverjar framkvæmdir í gangi og pallurinn fyrir. Ég geri ráð fyrir að þú þurfir samþykki allra eigenda fyrir svona.

Ég mæli með að leita í málum hjá kærunefnd húsamála um svona palla og fá svona á tilfinninguna hvaða vandamál geta komið upp þessu tengt og hvernig nefndin almennt mælir með að hlutir séu gerðir.

https://www.stjornarradid.is/gogn/ursku ... A1la&Year=

Re: Finna þinglýsta eigendur fasteigna

Sent: Sun 13. Apr 2025 21:57
af rapport
Húsfundur þarf að samþykkja ef það eru skjólveggir, það hefur áhrif á útlit hússins og getur takmarkað hvaða look aðrir geta valið sér.

Re: Finna þinglýsta eigendur fasteigna

Sent: Sun 13. Apr 2025 22:39
af Pandemic
Það dugar ekki að fá ‘undirskrifað leyfi’ frá öðrum eigendum. Til að gera slíka breytingu þarf að halda húsfund og samþykkja breytingu á eignaskiptingu, þar sem þú ert að fá séreign í sameign annarra.
Þetta felur bæði í sér skerðingu eða breytingu á eignarétti annarra og útlitsbreytingu.

Re: Finna þinglýsta eigendur fasteigna

Sent: Sun 13. Apr 2025 23:05
af falcon1
Þarf greinilega að kanna þetta betur, hef verið að fá misvísandi upplýsingar. Takk.

Re: Sólpallar við fjölbýli

Sent: Mán 14. Apr 2025 00:18
af falcon1
Er eitthvað annað sem er mikilvægt að hafa í huga við svona verkefni?

Re: Sólpallar við fjölbýli

Sent: Mán 14. Apr 2025 08:40
af rapport
falcon1 skrifaði:Er eitthvað annað sem er mikilvægt að hafa í huga við svona verkefni?

Að fá það sérstaklega samþykkt á húsfundinum að þetta sé og verði hönnun fyrir alla palla sem reistir verða við húsið, að annað fólk á 1.hæð átti sig á að þau munu ekki hafa frjálst val í framtíðinni um efni, lit o.s.frv.

En svo er líka oft á 1.hæð teiknaður pallur eða hellur og svo nokkuð stærri sérafnotaflötur, það má fá samþykkt hjá húsfélaginu að ef pallur sé byggður þá sé hann alltaf allur sérafnotaflöturinn. Það passar að pallarnir séu alltaf í nokkurnveginn svipaðri stærð + tryggir rétt allra til að byggja stærsta mögulegan pall fyrir sig.

En ég minnist á þetta því að það er fátt ljótara en að sjá blokkir þar sem eru komnar 2-3 tegundir af pöllum, í mismunandi lit og mjög misjöfnum gæðum af efnivið. Í raun væri best að gera kröfu um lerki og banna að borið sé á skjólveggina.

Re: Sólpallar við fjölbýli

Sent: Mán 14. Apr 2025 09:51
af mikkimás
Að fara með sólpall inn á sameignarlóð, þó það sé bara smá og með samþykki *núverandi* meirihluta eigenda, finnst mér vera hættulegur leikur til lengri tíma og ekki þess virði.

Re: Sólpallar við fjölbýli

Sent: Mán 14. Apr 2025 12:17
af Gorgeir
Ég hef gert svona í íbúð sem ég átti og hjá mér var þetta ekki mikið vesen. Fer bara alveg eftir hvernig fjölbýlið er og hvort íbúðin þín eigi "afnotarétt" til að byggja á (kann ekki á það ef svo er ekki og ef það þarf leyfi og þinglýsingar)
Það sem ég þurfti að gera var að skoða teikningar af húsinu. Hjá mér var neðri hæð með sérafnotarétt sem náði 2m frá húsgafli. Eftir það tók sameign við svo ég mátti gera pall þangað. (margar aðrar íbúðir í eins fjöbýli í kring höfðu gert svona palla hjá sér svo þetta var ekki mikið mál)
Þurfti ekki leyfi frá húsfélagi því íbúðin "átti" 2m út í garðinn.
En það er ekki svona allstaðar svo best er að fara réttu leiðina og hún er bara mismunandi á milli húsa.

Re: Sólpallar við fjölbýli

Sent: Mán 14. Apr 2025 13:54
af falcon1
mikkimás skrifaði:Að fara með sólpall inn á sameignarlóð, þó það sé bara smá og með samþykki *núverandi* meirihluta eigenda, finnst mér vera hættulegur leikur til lengri tíma og ekki þess virði.

Þótt það sé samþykkt á húsfundi að breyta eignarskiptasamningnum

Re: Sólpallar við fjölbýli

Sent: Mán 14. Apr 2025 14:48
af Gemini
falcon1 skrifaði:
mikkimás skrifaði:Að fara með sólpall inn á sameignarlóð, þó það sé bara smá og með samþykki *núverandi* meirihluta eigenda, finnst mér vera hættulegur leikur til lengri tíma og ekki þess virði.

Þótt það sé samþykkt á húsfundi að breyta eignarskiptasamningnum

Að breyta eignarskiptasamningi er smá vesen. Þarft að ræða við bæjarfélagið og fá leyfir fyrir viðauka, ráða einhvern sem hefur leyfi frá ráðherra til að vinna eignarskiptayfirlýsingar, fá samþykki frá öllum eigendum, ef þau eru að afsala sér hluta af lóðinni þá þarf að þinglýsa afsali líka. Þetta getur fljótt orðið nokkuð flókið og vesen.

Re: Sólpallar við fjölbýli

Sent: Mán 14. Apr 2025 17:58
af olihar
falcon1 skrifaði:
mikkimás skrifaði:Að fara með sólpall inn á sameignarlóð, þó það sé bara smá og með samþykki *núverandi* meirihluta eigenda, finnst mér vera hættulegur leikur til lengri tíma og ekki þess virði.

Þótt það sé samþykkt á húsfundi að breyta eignarskiptasamningnum

Um að gera láta reyna á þetta.

Ég fór í gegnum svona ferli hjá mínu húsfélagi, s.s. nýjan eignaskiptasamning, það þarf að láta gera það af löglegum aðila, það er listi einhverstaðar á netinu með þeim sem mega gera þetta. Ferlið tók meira en 2 ár.

Þetta kostaði alveg 3 milljónir ef ég man rétt. Enda gamli eignarskiptasamningurinn löngu orðinn úreltur. Þetta endaði með að stækka allar eignirnar og þar með hækkaði þessi gjörningur fasteignagjöld hjá öllum líka. (og jók verðmætin á eignunum þar sem bættust við fermetrar)

Re: Sólpallar við fjölbýli

Sent: Mán 14. Apr 2025 19:32
af benony13
rapport skrifaði:
falcon1 skrifaði:Er eitthvað annað sem er mikilvægt að hafa í huga við svona verkefni?

En ég minnist á þetta því að það er fátt ljótara en að sjá blokkir þar sem eru komnar 2-3 tegundir af pöllum, í mismunandi lit og mjög misjöfnum gæðum af efnivið. Í raun væri best að gera kröfu um lerki og banna að borið sé á skjólveggina.

Off topic
Lerki er ekki viðhaldsfrítt, ef þú vilt endingu á timbrið þá þarf að bera í það. Vissulega mjög endingagott og það þarf ekki nærri jafn mikið viðhald og t.d Fura.

Re: Sólpallar við fjölbýli

Sent: Mán 14. Apr 2025 20:12
af olihar
benony13 skrifaði:

Annað off topic, fæst nokkuð alvöru lerki hérna lengur eftir að það var lokað á viðskipti við Rússland.

Re: Sólpallar við fjölbýli

Sent: Mán 14. Apr 2025 21:11
af falcon1
olihar skrifaði:
falcon1 skrifaði:
mikkimás skrifaði:Að fara með sólpall inn á sameignarlóð, þó það sé bara smá og með samþykki *núverandi* meirihluta eigenda, finnst mér vera hættulegur leikur til lengri tíma og ekki þess virði.

Þótt það sé samþykkt á húsfundi að breyta eignarskiptasamningnum

Um að gera láta reyna á þetta.

Ég fór í gegnum svona ferli hjá mínu húsfélagi, s.s. nýjan eignaskiptasamning, það þarf að láta gera það af löglegum aðila, það er listi einhverstaðar á netinu með þeim sem mega gera þetta. Ferlið tók meira en 2 ár.

Þetta kostaði alveg 3 milljónir ef ég man rétt. Enda gamli eignarskiptasamningurinn löngu orðinn úreltur. Þetta endaði með að stækka allar eignirnar og þar með hækkaði þessi gjörningur fasteignagjöld hjá öllum líka. (og jók verðmætin á eignunum þar sem bættust við fermetrar)

Hvað kostaði 3 milljónir og tók þetta 2 ár? :catgotmyballs

Re: Sólpallar við fjölbýli

Sent: Mán 14. Apr 2025 21:12

Að gera nýjan eignaskiptasamning. 20 eignir.