Síða 1 af 1
teamviewer (fríþjónusta) og ný tölva
Sent: Mán 31. Mar 2025 18:08
af dreymandi
Hæ teamviewer notendur
Nú var ég að endurnýja tölvukost minn og þá þarf ég að dl teamviewer aftur.
sjá hér link:
https://www.teamviewer.com/en/download/ ... teamviewerég er að spá í það hvaða leið á ég að velja þegar ég downloada og er með fríþjónustuna, er ég þá með license og vel þetta sem stendur neðst á síðunni :
Do you already have a TeamViewer license? Then simply download TeamViewer directly.pælingin er semsagt er fríáskrift "license" það er til personulegrar þjónustu ekki business
Einhver?
kær kv
Re: teamviewer (fríþjónusta) og ný tölva
Sent: Mán 31. Mar 2025 18:12
af olihar
Teamviewer er fyrirtæki djöfulsins.
Hentu þér á Parsec.
Re: teamviewer (fríþjónusta) og ný tölva
Sent: Mán 31. Mar 2025 20:26
af Benzmann
Mæli með Parsec og Rustdesk
Gafst upp á fría Teamviewer fyrir nokkrum árum.
Í dag nota ég bara Remote desktop heima, eða vpn tengi mig heim og nota þá líka Remote Desktop
Er svo með self hosted Rustdesk, ef ég þarf að remota mig til að hjálpa fjölskyldumeðlimum
Re: teamviewer (fríþjónusta) og ný tölva
Sent: Þri 01. Apr 2025 11:06
af dreymandi
Kæru vinir ég hef ekki kost á því að sækja parsec þar sem ég er ekki þar sem fjartölvan er. ég veit vel um parsec og sumt gott við það annað ekki. ég var að spyrja um hjálp við þetta til að vita hvaða leið ég ætti að velja eða sem ég segi hvort fríleiðin telst licence.
Re: teamviewer (fríþjónusta) og ný tölva
Sent: Þri 01. Apr 2025 11:07
af olihar
Þú getur sett upp Parsec í gegnum Teamviewer.
Aftur þá er þetta license rugl í teamviewer algjörlega úti á túni, mikið kvartað undan þeim online.
Re: teamviewer (fríþjónusta) og ný tölva
Sent: Mið 02. Apr 2025 11:20
af dreymandi
olihar skrifaði:Þú getur sett upp Parsec í gegnum Teamviewer.
Aftur þá er þetta license rugl í teamviewer algjörlega úti á túni, mikið kvartað undan þeim online.
en ok verð samt að geta tengst gegnum teamwiever fyrst get það ekki fyrr en ég downloada forritið í nýju tölvunni og þarf fyrst hjálp við hvaða leið ég á að velja af þessu á heimasíðu þeirra.
Re: teamviewer (fríþjónusta) og ný tölva
Sent: Mið 02. Apr 2025 11:24
af Jón Ragnar
Tekur bara free útgáfuna - Dugar til að setja Parsec upp rétt á meðan
Re: teamviewer (fríþjónusta) og ný tölva
Sent: Mið 02. Apr 2025 14:08
af olihar
Allar útgáfurnar þeirra eru eins, svo er það bara þegar þú loggar þig inn sem það kveikir á fríu eða áskrift.