Síða 1 af 1
Rafvirkjar og laun
Sent: Mið 26. Mar 2025 12:10
af einar1001
Nú er ég forvitinn vitið þið hvað rafvirkjar eru að fá í tíma kaup ?
kjarasamningar segja að sveinar i grunnlaun séú með um 3800kr sem er frekar litið og efast ég að einhver sé að borga það
Hvað væri sanngjarnt kaup í þessum markaði í dag ?
Píparar eru með 4200kr í grunnlaun…
Re: Rafvirkjar og laun
Sent: Mið 26. Mar 2025 12:28
af davidsb
Re: Rafvirkjar og laun
Sent: Mið 26. Mar 2025 15:20
af ColdIce
Ég er með 4923kr í grunnlaun á tímann
Re: Rafvirkjar og laun
Sent: Mið 26. Mar 2025 15:23
af Dúlli
Fer mikið eftir því hversu góður þú ert, hversu sjálfstæð vinnubrögð. Sumir eru 4500-5000þ virði, aðrir rétt svo lágmarks.
Re: Rafvirkjar og laun
Sent: Fös 28. Mar 2025 07:21
af Hlynzi
Ég man nú ekki tímalaunin (eða meðaltalið), því hefur verið svarað stundum í launakönnun RSÍ.
En svona almennt útborgað fyrir venjulegan mánuð (40 tíma vinnuviku) ætti 450 þús. kr. útborgað að vera svona oftast lægri mörkin og oftast lítið mál að fara nær 500 þús.
Svo er spurning hversu sanngjarnt það er, en iðnnám (sérstaklega rafmagn og pípulagnir) myndi ég segja að sé lang besta kílóverð af öllu, ert 4 ár að klára það og kominn á þokkaleg laun, meðan hinir eru þá bara rétt búnir með stúdentspróf og eiga þá eftir 3+ ár að lágmarki til að getað komið sér nær einhverju bitastæðu. Eftirspurnin er margföld m.v. flestar aðrar námsgreinar.