Síða 1 af 2
Að velja gönguskó?
Sent: Sun 23. Feb 2025 13:19
af falcon1
Ég er að fara að undirbúa vorið og sumarið með því að endurnýja skó- og útivistarfatnað fyrir allar gönguferðirnar sem ég ætla að fara í með hundinum.

Ég held að skórnir séu eiginlega mikilvægasti parturinn af því til að gönguferðin sé ánægjuleg fyrir mig. Ég er orðinn alltof þungur (30-35 kg yfir mína "réttu" þyngd) þannig að ég ætla að reyna að brenna þessu með löngum gönguferðum og líklega einhverjum ferðum uppá einhver fell og/eða léttari fjöll þannig að ég þarf að fá skó sem eru þægilegir og þreyta ekki mjóbakið. En ég er í smá vandræðum með að þegar ég fer yfir X lengd af gönguferðum að þá fer mjóbakið að kvarta og mér finnst það eiginlega stífna aðeins upp.
Er einhver hérna sem hefur mikið vit á þessu? Þ.e. hvernig maður á að velja skó og hvaða skór séu bestir?
Ps. Þegar ég var í góðum málum (réttri þyngd) og var að fara á fell og fjöll að þá átti ég samt alltaf erfitt með niðurleiðina, þ.e. hnéin kvörtuðu og stundum þurfti ég að bera Voltaren á hnéin í nokkra daga eftir slíkar göngur. Er eitthvað sem ég gæti gert til að hjálpa því vandamáli? Býst við að hnéin myndu kvarta enn meira í dag vegna þessara aukaþyngsla.
Re: Að velja gönguskó?
Sent: Sun 23. Feb 2025 13:47
af rostungurinn77
Grunar að þú sért að hafa skónna fyrir rangri sök.
Svona mjóbaksvandamál eiga líklegast sök í öðru og líklegast þarf sjúkraþjálfun til að leysa það.
Sama með hnéin. Lélegir liðþófar? Eða mögulega veikir vöðvar aftan í læri sem toga ekki nóg á móti lærvöðvum.
Hálfstífir eða stífir gönguskór gera mest lítið til að leiðrétta vanda og geta líklegast frekar magnað þá upp vegna þess að skórnir eru flatir.
Allskonar svona vandamál eiga orsök í því að sumir vöðvar eru orðnir of latir en aðrir of sterkir. Það þarf að leiðrétta með öðrum aðferðum en skóm.
En ekki taka mark á mér. Ekki sjúkraþjálfari.
Re: Að velja gönguskó?
Sent: Sun 23. Feb 2025 13:48
af ABss
Byrja rólega og byggja hægt upp þolið. Ekki rústa þér og eyðileggja þetta flotta plan með því að göslast af stað og ætlast til of mikils af þér.
Skrifaði hjá þér hvað þú labbar, hægt og rólega byggir þú IP skemmtilega dagbók yfir það sem þú afrekar. Þetta hefst á seiglunni og tímanum, ekki ofsa og æði.
Persónulega mæli ég með léttari skóm sem þér líður vel í, gönguskór/klossar eiga heima í ölpunum.
Re: Að velja gönguskó?
Sent: Sun 23. Feb 2025 13:56
af olihar
Ég ákvað að prufa að kaupa þessa fyrir rúmlega 2 árum, lang bestu léttu skór sem ég hef átt. En er svo með öflugri skó á jöklana of mikinn snjó og kulda.
https://fjallakofinn.is/product/arctery ... ize=40-2-3
Re: Að velja gönguskó?
Sent: Sun 23. Feb 2025 14:57
af worghal
ég mundi fara í göngugreiningu og fá mögulega innlegg sem hjálpa með göngulagið.
oftar en ekki þá er rangt göngulag það sem fer að skemma hné, mjaðmir og bak.
Re: Að velja gönguskó?
Sent: Sun 23. Feb 2025 15:24
af falcon1
worghal skrifaði:ég mundi fara í göngugreiningu og fá mögulega innlegg sem hjálpa með göngulagið.
oftar en ekki þá er rangt göngulag það sem fer að skemma hné, mjaðmir og bak.
Hver er bestur í slíku?
Re: Að velja gönguskó?
Sent: Sun 23. Feb 2025 16:52
af worghal
falcon1 skrifaði:worghal skrifaði:ég mundi fara í göngugreiningu og fá mögulega innlegg sem hjálpa með göngulagið.
oftar en ekki þá er rangt göngulag það sem fer að skemma hné, mjaðmir og bak.
Hver er bestur í slíku?
https://faeturtoga.is/ þessir eru góðir og selja góða skó líka

Re: Að velja gönguskó?
Sent: Sun 23. Feb 2025 17:16
af demaNtur
Varðandi hné vandamálin - Mæli HIKLAUST með "kneesovertoesguy", sá hefur bjargað mér með allsvaðalega.
Re: Að velja gönguskó?
Sent: Sun 23. Feb 2025 20:26
af Hauxon
Ég hef gengið töluvert mikið og mæli með að eiga nokkur skópör. Fyrir lengri göngur 10-30km eða fjallgöngur myndi ég mæla með uppháum gönguskóm. Það er enginn munur á gjóti á Íslandi og í Ölpunum. Scarpa hafa reynst vel á mínum fótum. Líklega er milli háir skór bestir fyrir það sem þú ert að lýsa og ég myndi taka gore-tex skó þannig að bleyta og snjór séu minna vesen. Svo er líka gott að eiga létta fjallahlaupaskó þegar þú veist að það er ekki mikil drulla eða ekki mjög stórgrýtt. Hef góða reynslu af Salomon og Hoka hlaupaskóm.
Farðu í búðirnar og mátaðu og mátaðu líka með auka sokk yfir því þú vilt stundum vera í þykkari sokkum fóturinn á þér túttnar aðeins í lengri göngum.
Varðandi hnén á niðurleið þarftu bara að passa þig á að fara ekki of hratt niður og fá ekki högg á hnén. Gott er að ganga “eins og kúreki” þ.e. aðeins útskeifur sem getur minnkað högg á hnén og minnkar líkur á að renna í möl.
Öll helstu merkin gera góða skó og ekki láta veskið ráða för 100%.
Re: Að velja gönguskó?
Sent: Sun 23. Feb 2025 20:36
af Gerbill
demaNtur skrifaði:Varðandi hné vandamálin - Mæli HIKLAUST með "kneesovertoesguy", sá hefur bjargað mér með allsvaðalega.
x2 - og bæti við Kelly Starrett hann er með helling af góðu dóti (hann er með thereadystate)
Re: Að velja gönguskó?
Sent: Sun 23. Feb 2025 22:08
af falcon1
rostungurinn77 skrifaði:Grunar að þú sért að hafa skónna fyrir rangri sök.
Svona mjóbaksvandamál eiga líklegast sök í öðru og líklegast þarf sjúkraþjálfun til að leysa það.
Sama með hnéin. Lélegir liðþófar? Eða mögulega veikir vöðvar aftan í læri sem toga ekki nóg á móti lærvöðvum.
Hálfstífir eða stífir gönguskór gera mest lítið til að leiðrétta vanda og geta líklegast frekar magnað þá upp vegna þess að skórnir eru flatir.
Allskonar svona vandamál eiga orsök í því að sumir vöðvar eru orðnir of latir en aðrir of sterkir. Það þarf að leiðrétta með öðrum aðferðum en skóm.
En ekki taka mark á mér. Ekki sjúkraþjálfari.
Hugsa að þetta sé í bland hjá mér. Ég hef farið til sjúkraþjálfara og það er alveg rétt hjá þér að sumir vöðvar hjá mér eru orðnir latir, held samt að góðir skór myndu hlífa þessum vöðvum eitthvað við álaginu sem kemur við göngu.
Re: Að velja gönguskó?
Sent: Sun 23. Feb 2025 22:12
af falcon1
ABss skrifaði:Byrja rólega og byggja hægt upp þolið. Ekki rústa þér og eyðileggja þetta flotta plan með því að göslast af stað og ætlast til of mikils af þér.
Skrifaði hjá þér hvað þú labbar, hægt og rólega byggir þú IP skemmtilega dagbók yfir það sem þú afrekar. Þetta hefst á seiglunni og tímanum, ekki ofsa og æði.
Persónulega mæli ég með léttari skóm sem þér líður vel í, gönguskór/klossar eiga heima í ölpunum.
Já, ég er ekkert að fara beint upp á Esjuna strax.

Ég var annars í flottu formi fyrir 3-4 árum síðan þegar gamli hundurinn minn hélt mér við efnið og við vorum að fara 4-10+ km á dag nokkrum sinnum í viku og stundum alla vikuna ef veðrið var gott og það passaði við vinnuna.

Eftir að hann dó fyrir 2 árum síðan þá bara hrönnuðust upp kílóin á mig.
Ég er núna með annan hund sem er orðin nógu gömul til að fara lengri ferðir.
Re: Að velja gönguskó?
Sent: Sun 23. Feb 2025 22:14
af falcon1
demaNtur skrifaði:Varðandi hné vandamálin - Mæli HIKLAUST með "kneesovertoesguy", sá hefur bjargað mér með allsvaðalega.
Kíki á hann - takk

Re: Að velja gönguskó?
Sent: Sun 23. Feb 2025 22:21
af falcon1
Hauxon skrifaði:Farðu í búðirnar og mátaðu og mátaðu líka með auka sokk yfir því þú vilt stundum vera í þykkari sokkum fóturinn á þér túttnar aðeins í lengri göngum.
Varðandi hnén á niðurleið þarftu bara að passa þig á að fara ekki of hratt niður og fá ekki högg á hnén. Gott er að ganga “eins og kúreki” þ.e. aðeins útskeifur sem getur minnkað högg á hnén og minnkar líkur á að renna í möl.
Öll helstu merkin gera góða skó og ekki láta veskið ráða för 100%.
Góður punktur. Ég man að þegar ég var sem mest í einhverjum fellum og minni fjöllum að þá var ég yfirleitt í þunnum sokkum undir og svo öðrum þykkari yfir svo ég fengi ekki blöðrur. Sá einhvers staðar að það er talað um að taka 1/2 númer stærra en maður er venjulega í, stenst sú regla?
Úff.. á sínum tíma þá var ég dáldið á rassinum (viljandi) eða næstum því sums staðar þegar maður var að fara niður bratta og undirlagið var bara einhver lausamöl.

Er einhver lágmarksviðmið um verð á svona skóm uppá að maður sé ekki að kaupa eitthvað drasl sem endist varla eina gönguferð?
Re: Að velja gönguskó?
Sent: Sun 23. Feb 2025 23:15
af rostungurinn77
falcon1 skrifaði:
Er einhver lágmarksviðmið um verð á svona skóm uppá að maður sé ekki að kaupa eitthvað drasl sem endist varla eina gönguferð?
Scarpa er ágætis viðmið um verð/gæði. Gefið að ég á ennþá 25, 20 og 10 ára gamla Scarpa gönguskó þá er ég ekkert svaka mikið að spá í hvað er heitt í dag.
Alpina
Meindl
Mammut
Arcteryx
Re: Að velja gönguskó?
Sent: Sun 23. Feb 2025 23:20
af falcon1
rostungurinn77 skrifaði:falcon1 skrifaði:
Er einhver lágmarksviðmið um verð á svona skóm uppá að maður sé ekki að kaupa eitthvað drasl sem endist varla eina gönguferð?
Scarpa er ágætis viðmið um verð/gæði. Gefið að ég á ennþá 25, 20 og 10 ára gamla Scarpa gönguskó þá er ég ekkert svaka mikið að spá í hvað er heitt í dag.
Alpina
Meindl
Mammut
Arcteryx
Já sæll! Þetta er helvíti góð ending, ertu að ganga mikið?
Re: Að velja gönguskó?
Sent: Sun 23. Feb 2025 23:30
af rostungurinn77
Minna en ég gerði forðum daga eflaust. Yngsta parið fær mest af notkuninni þar sem þeir eru léttir og mjúkir.
En þessar elskur líta ekkert út fyrir að vera nýjar. Halda ennþá í dagsferðir.
Re: Að velja gönguskó?
Sent: Mán 24. Feb 2025 00:34
af Black
Mæli líka með að hafa göngustafi ef þú ert að fá íllt í hnén, þeir dreifa þyngdinni og minnka álagið.
Hefur hjálpað mér mikið í fjallgöngum
Re: Að velja gönguskó?
Sent: Mán 24. Feb 2025 08:27
af Jón Ragnar
Ég nota oftast fjallahlaupaskó fyrir léttari fjallgöngu - Er núna að rokka Altra Olympus frá Eirberg - Hrikalega góðir og mæli með - Breiðir að framan og gefa manni mikinn stöðuleika!
Hef tekið fimmvörðuhálsinn í þannig og það var ekkert mál.
Á svo Meindl skó af pabba eftir að hann féll frá. Mögulega mun sonur minn fá þá í kjölfarið. Hrikalega solid skór
Re: Að velja gönguskó?
Sent: Mán 24. Feb 2025 10:10
af kizi86
mæi eindregið með Hoka skóm, hef alltaf verið með mjóbaksvandamál, þannig hef ekkert getað hreyft mig að ráði, fyrr en ég kynntist Hoka (er með Hoka Bondi xtra wide size 50 2/3) fyrir tveim árum, og er ég búinn að labba ca 6000km á þeim, er á pari nr 2 reyndar, þar sem ég er alger skóböðull (er með alltof breiðar lappir, og sprengi alltaf hliðarnar á skóm á endanum) yfir 3000km á einu skópari er alverg drullugóð ending fyrir mínar risahramma sem ég hef fyrir fætur
Re: Að velja gönguskó?
Sent: Mán 24. Feb 2025 10:17
af Jón Ragnar
kizi86 skrifaði: size 50 2/3
Vó :O
Re: Að velja gönguskó?
Sent: Mán 24. Feb 2025 10:53
af falcon1
kizi86 skrifaði:mæi eindregið með Hoka skóm, hef alltaf verið með mjóbaksvandamál, þannig hef ekkert getað hreyft mig að ráði, fyrr en ég kynntist Hoka (er með Hoka Bondi xtra wide size 50 2/3) fyrir tveim árum, og er ég búinn að labba ca 6000km á þeim, er á pari nr 2 reyndar, þar sem ég er alger skóböðull (er með alltof breiðar lappir, og sprengi alltaf hliðarnar á skóm á endanum) yfir 3000km á einu skópari er alverg drullugóð ending fyrir mínar risahramma sem ég hef fyrir fætur
50 2/3 er vel stórt

- Hvað ertu hár?
3000 km væri sirka 2-3 ára ending fyrir mig ef ég miða við að ég komist aftur í sama gír að ganga lágmarkið 4 km á dag með hundinn.
Ég er samt með frekar litlar fætur á móti þínum hrömmum hahaha... ég er bara í skónúmeri 43.
Þú þurftir engin innlegg eða neitt slíkt í skóna til að redda mjóbaksvandamálinu?
Re: Að velja gönguskó?
Sent: Mán 24. Feb 2025 12:28
af kizi86
falcon1 skrifaði:kizi86 skrifaði:mæi eindregið með Hoka skóm, hef alltaf verið með mjóbaksvandamál, þannig hef ekkert getað hreyft mig að ráði, fyrr en ég kynntist Hoka (er með Hoka Bondi xtra wide size 50 2/3) fyrir tveim árum, og er ég búinn að labba ca 6000km á þeim, er á pari nr 2 reyndar, þar sem ég er alger skóböðull (er með alltof breiðar lappir, og sprengi alltaf hliðarnar á skóm á endanum) yfir 3000km á einu skópari er alverg drullugóð ending fyrir mínar risahramma sem ég hef fyrir fætur
50 2/3 er vel stórt

- Hvað ertu hár?
3000 km væri sirka 2-3 ára ending fyrir mig ef ég miða við að ég komist aftur í sama gír að ganga lágmarkið 4 km á dag með hundinn.
Ég er samt með frekar litlar fætur á móti þínum hrömmum hahaha... ég er bara í skónúmeri 43.
Þú þurftir engin innlegg eða neitt slíkt í skóna til að redda mjóbaksvandamálinu?
er 193cm á hæð

en nei hef ekki fengið innlegg, hélt ég þyrfti að koma mér í göngugreiningu og fá innlegg til að geta farið að ganga, en breyttist allt eftir að ég fékk þessa skó, er eins og að ganga á skýi þessir skór <3 er enn með mjóbaksvandamál, en þau koma ekki lengur í veg fyrir að ég geti hreyft mig

Re: Að velja gönguskó?
Sent: Þri 25. Feb 2025 09:17
af Squinchy
Ég er búinn að vera nota þessa á annað ár núna
https://fjallakofinn.is/product/rush-trk-gtx/Virkilega sáttur með þá
Re: Að velja gönguskó?
Sent: Lau 01. Mar 2025 17:35
af netkaffi
ABss skrifaði:Byrja rólega og byggja hægt upp þolið. Ekki rústa þér og eyðileggja þetta flotta plan með því að göslast af stað og ætlast til of mikils af þér.
Gott ráð, allavega ef maður er að skokka. Ég hélt ég væri búinn að byggja upp getu frá 0, yfir nokkur ár. Meiddi mig svo allt í einu eitt kvöldið mögulega af því ég var að skokka upp og niður brekkur en hafði aðallega verið á sléttu áður. Eða ég hef ekki hugmynd.
Að ganga er þó mun öruggara.
N.b. var bara í einhverjum random skóm, sem ég sé eftir að hafa gert eftirá.