Síða 1 af 1
verðmat á 3070 ti
Sent: Þri 11. Feb 2025 22:00
af emil40
Hvað mynduð þið segja að notað 3070 ti 8 gb phoenix sé mikils virði í dag ?
Re: verðmat á 3070 ti
Sent: Þri 11. Feb 2025 22:11
af fhrafnsson
Ég myndi skjóta á 55-60 þúsund. 3080ti hefur farið á 75 og 3090ti á 95 undanfarið, kannski hægt að miða eitthvað við það.
Re: verðmat á 3070 ti
Sent: Þri 11. Feb 2025 23:07
af emil40
Ég ætla að gefa uppáhaldsfrænda mínum það þegar ég uppfæri

takk fyrir upplýsingarnar.
Re: verðmat á 3070 ti
Sent: Mið 12. Feb 2025 21:47
af emil40
hversu mikinn mun haldið þið að litli ( stóri frændi minn ) muni sjá á 3060 kortinu sem hann er með núna og þessu 3070 ti kortinu sem ég er með í undirskrift.
Re: verðmat á 3070 ti
Sent: Mið 12. Feb 2025 22:03
af einarhr
emil40 skrifaði:hversu mikinn mun haldið þið að litli ( stóri frændi minn ) muni sjá á 3060 kortinu sem hann er með núna og þessu 3070 ti kortinu sem ég er með í undirskrift.
Fór úr 3060 12gb kortinu í 3070ti 8gb og það er töluverður munur, þessi 3060 kort eru drasl sem var mokað út þegar það var skortur á skjákortum um árið.
https://gpu.userbenchmark.com/Compare/N ... 4116vs4105
Re: verðmat á 3070 ti
Sent: Fim 13. Feb 2025 00:48
af emil40
hann ætti þá að finna töluverðann mun er það ekki ? Gott að vita það ég vil að hann sé ánægður

Þetta er einmitt 3070 ti 8 gb kort.