Síða 1 af 1

Þrif á baðherbergisviftu

Sent: Sun 02. Feb 2025 22:16
af falcon1
Það er víst kominn tími á að þrífa blessuðu viftuna sem er inni í baðherberginu. Ég prófaði að setja pappír nálægt viftunni og pappírinn sogaðist ekkert að viftunni en mér skilst að það eigi að gerast ef viftan er að starfa eðlilega.
Ég hef ekki þurft að fást við þessa viftu áður þannig að ég spyr kannski eins og vitleysingur en þarf ekki að slá út rafmagnið á baðherberginu áður en maður fer að fikta í viftunni og reyna að þrífa hana? Hvernig er eiginlega best að þrífa þetta dót? Þarf maður kannski rafvirkja eða eitthvað slíkt til að gera þetta?

Þessi vifta heitir vent-axia vasf100t.

Bætt við: Þetta stendur í leiðbeiningum sem ég fann á netinu "WARNING: THE FAN AND ANCILLARY CONTROL EQUIPMENT MUST BE ISOLATED FROM THE POWER SUPPLY DURING MAINTENANCE."

Hvað þýðir þetta?

Re: Þrif á baðherbergisviftu

Sent: Sun 02. Feb 2025 22:42
af rostungurinn77
Ef viftan er á sér rofa þá slekkurðu bara á honum.

Ef þú treystir því ekki þá slærðu bara út.

Þarft yfirleitt að taka drontinn af og undie honum ætti að vera samtengi milli veggs/lofts og viftu.

Þetta er ekki flókið en ef þú ert með 10 þumalfingur þá ættirðu að fá aðstoð. Rafvirki er kannski fullmikið en undir þér komið.

Hins vegar er viftan líklegast ekki vandamálið heldur loftstokkurinn. Viftan getur lítið gert ef stokkurinn er tepptur.

P.s. textinn þýðir að þú ættir ekki að þjónusta rafbúnaðinn á meðan hann er í sambandi. \:D/

Re: Þrif á baðherbergisviftu

Sent: Sun 02. Feb 2025 22:48
af falcon1
rostungurinn77 skrifaði:Ef viftan er á sér rofa þá slekkurðu bara á honum.

Ef þú treystir því ekki þá slærðu bara út.

Þarft yfirleitt að taka drontinn af og undie honum ætti að vera samtengi milli veggs/lofts og viftu.

Þetta er ekki flókið en ef þú ert með 10 þumalfingur þá ættirðu að fá aðstoð. Rafvirki er kannski fullmikið en undir þér komið.

Hins vegar er viftan líklegast ekki vandamálið heldur loftstokkurinn. Viftan getur lítið gert ef stokkurinn er tepptur.

P.s. textinn þýðir að þú ættir ekki að þjónusta rafbúnaðinn á meðan hann er í sambandi. \:D/

Haha... ég er ekki mikið að fikta í viðhaldi á rafmagnstækjum. Kannski ekki alveg 10 þumalfingur en líklega fleiri en 2 á þessu sviði. :megasmile
Er líka alltaf frekar ragur við rafmagnið.

Hvernig þrífur maður þá loftstokkinn ef það er vandamálið? Með ryksugu eða hvað?

Re: Þrif á baðherbergisviftu

Sent: Sun 02. Feb 2025 22:52
af falcon1
ps. ef þetta er loftstokkurinn? Á þá að deila kostnaðinum á þær íbúðir sem nota hann? Í mínu tilfelli er ég á neðri hæð en ég held að efri hæðin noti þá sama loftstokk. Allavega er baðherbergið beint fyrir ofan mitt baðherbergi. :)

Re: Þrif á baðherbergisviftu

Sent: Sun 02. Feb 2025 22:56
af rostungurinn77
Það er notaður einhvers konar vísir að klósettbursta við þessi þrif ásamt eflaust fleiri verkfærum.

Ef þetta er í fjölbýli þarf líklegast að taka allan stokkinn. Í það minnsta þína túðu og útblásturinn á þakinu.

Stokkaþrif eru yfirleitt á ábyrgð húsfélagsins. Stokkurinn er sameign.

Re: Þrif á baðherbergisviftu

Sent: Sun 02. Feb 2025 23:10
af falcon1
Vitið þið hvort þetta er góð vifta sem ég er með eða er einhver vifta sem væri enn betri? Geri mér grein fyrir að það skiptir ekki máli ef allt er stíflað haha... ;) :D

Re: Þrif á baðherbergisviftu

Sent: Sun 30. Mar 2025 14:37
af falcon1
Ok, það er búið að skipta um viftuna en samt finnst mér rakinn vera dáldið lengi að fara úr baðherberginu þótt ég hafi viftuna í gangi í slatta tíma. Er að pæla í að kaupa afrakatæki eða hvað þetta heitir sem dregur raka í sig. Mæla menn með einhverju sérstöku tæki fyrir slíkt verkefni?

Re: Þrif á baðherbergisviftu

Sent: Sun 30. Mar 2025 15:26
af bigggan
falcon1 skrifaði:Ok, það er búið að skipta um viftuna en samt finnst mér rakinn vera dáldið lengi að fara úr baðherberginu þótt ég hafi viftuna í gangi í slatta tíma. Er að pæla í að kaupa afrakatæki eða hvað þetta heitir sem dregur raka í sig. Mæla menn með einhverju sérstöku tæki fyrir slíkt verkefni?

Er loftunn inn i baðherbergi að utan þegar hún er i gangi? ef allt er innsiglað og ekkert "nýtt" loft kemst inn i baðherbergið sem er venja hérna á landi, þvi miður, þá er viftan ekki að fara virka mikið heldur.

Re: Þrif á baðherbergisviftu

Sent: Sun 30. Mar 2025 17:29
af rostungurinn77
falcon1 er rakinn lengi að fara með dyrnar opnar?

Var stokkurinn þrifinn? Ný vifta blæs ekki í gegnum stíflaðan stokk.

Hvernig eru loftskiptin á húsinu annars? Opnir gluggar?

Re: Þrif á baðherbergisviftu

Sent: Sun 30. Mar 2025 17:39
af falcon1
bigggan skrifaði:Er loftunn inn i baðherbergi að utan þegar hún er i gangi? ef allt er innsiglað og ekkert "nýtt" loft kemst inn i baðherbergið sem er venja hérna á landi, þvi miður, þá er viftan ekki að fara virka mikið heldur.
Ég bara veit það ekki, það er bara vifta í gati við eitt hornið í loftinu sem tengist held ég einhverjum stokk upp í loftúðu á þakinu. Þegar er vindur í ákveðni vindátt þá blæs loft inná baðið reyndar.

Re: Þrif á baðherbergisviftu

Sent: Sun 30. Mar 2025 17:45
af falcon1
rostungurinn77 skrifaði:falcon1 er rakinn lengi að fara með dyrnar opnar?

Var stokkurinn þrifinn? Ný vifta blæs ekki í gegnum stíflaðan stokk.

Hvernig eru loftskiptin á húsinu annars? Opnir gluggar?

Já mér finnst rakinn aldrei fara alveg þótt ég sé með opið. Hann fer reyndar tímabundið ef ég næ að búa til gegnumtrekk í ákveðnum vindáttum.

Ég fékk byggingaraðilann til að skoða þetta og hann sagði að þess ætti ekki að þurfa og við ákváðum að prófa að skipta um viftu.

Þetta er mjög þétt íbúð en ég er oftast með opinn glugga í stofunni og stundum í herbergi hinumegin í íbúðinni þar sem ég næ stundum að fá gegnumtrekk til að lofta út þegar ekki er hægt að opna út í garð. Ég er með hund þannig að sú hurð þarf yfirleitt að vera lokuð nema þegar ég fer með hundinn út á WC en þá hef ég hana galopna á meðan nema í brjáluðu veðri. :)
Ég á í meiri vandræðum með að það sé ekki of heitt en of kalt í íbúðinni. Það er gólfhiti og er stilltur á frekar lágt hitastig.

Re: Þrif á baðherbergisviftu

Sent: Sun 30. Mar 2025 19:50
af rostungurinn77
Það væri eflaust forvitnilegt að rakamæla baðherbergið bara með einföldum hita og rakamæli og sjá hver breytingin er yfir tíma.

En bara til öryggis. Er viftan ekki pottþétt að blása inn í stokkinn en ekki inn í baðherbergið.

Getur athugað það með því að setja blað framan við viftuna.

Re: Þrif á baðherbergisviftu

Sent: Sun 30. Mar 2025 19:57
af falcon1
rostungurinn77 skrifaði:Það væri eflaust forvitnilegt að rakamæla baðherbergið bara með einföldum hita og rakamæli og sjá hver breytingin er yfir tíma.

En bara til öryggis. Er viftan ekki pottþétt að blása inn í stokkinn en ekki inn í baðherbergið.

Getur athugað það með því að setja blað framan við viftuna.

Hvað á blaðið að gera? Þegar ég prófa þá gerist bara ekkert.

Re: Þrif á baðherbergisviftu

Sent: Sun 30. Mar 2025 20:00
af rostungurinn77
Annað hvort sogast það að viftunni eða frá henni.

Re: Þrif á baðherbergisviftu

Sent: Sun 30. Mar 2025 20:38
af falcon1
rostungurinn77 skrifaði:Annað hvort sogast það að viftunni eða frá henni.
Á ég að þurfa að taka hlífina af henni?
Mynd