Síða 1 af 1
Vatn ógnaði tölvukerfum...
Sent: Lau 01. Feb 2025 20:05
af rapport
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025 ... lvukerfum/Dalvegur 30 = RB, Deloitte, Evolv... ofl.
Er einhver hönnunargalli í gangi?
Re: Vatn ógnaði tölvukerfum...
Sent: Lau 01. Feb 2025 20:25
af ragnarok
Re: Vatn ógnaði tölvukerfum...
Sent: Lau 01. Feb 2025 21:08
af appel
Ég velti fyrir mér hvort svona flóð hafi áhrif á bygginguna. Þetta er splunkunýtt hús, merkilegt að þarna hafi orðið flóð.
Re: Vatn ógnaði tölvukerfum...
Sent: Lau 01. Feb 2025 21:26
af rostungurinn77
Mikill leki varð í bílakjallara sem liggur undir Dalvegi 30 í Kópavogi eftir að vatnsdæla á nærliggjandi byggingarsvæði gaf sig.
„Þetta er bílakjallari undir Dalvegi 30. Það kemur vatn úr grunninum en það er verið að byggja við hliðina. Vatnsdæla gaf sig og það byrjaði að leka yfir í bílakjallarann,“ segir Hafsteinn.
https://www.ruv.is/frettir/innlent/2025 ... inn-434798Svona bílakjallari er líklega dýpri en frárennslislagnirnar og því þarf að dæla úr þeim.
Re: Vatn ógnaði tölvukerfum...
Sent: Lau 01. Feb 2025 22:26
af rapport
Eftir HÍ vatnlagnarævintýrið þá hélt ég að vélasalir og inntök hefðu verið endurpæld, a.m.k. fyrir viðkvæma starfsemi.
S.s. þannig að þau væru ekki á stöðum þar sem vatn safnaðist fyrir, heldur flæddi frá.
Re: Vatn ógnaði tölvukerfum...
Sent: Lau 01. Feb 2025 22:31
af appel
rostungurinn77 skrifaði: Mikill leki varð í bílakjallara sem liggur undir Dalvegi 30 í Kópavogi eftir að vatnsdæla á nærliggjandi byggingarsvæði gaf sig.
„Þetta er bílakjallari undir Dalvegi 30. Það kemur vatn úr grunninum en það er verið að byggja við hliðina. Vatnsdæla gaf sig og það byrjaði að leka yfir í bílakjallarann,“ segir Hafsteinn.
https://www.ruv.is/frettir/innlent/2025 ... inn-434798Svona bílakjallari er líklega dýpri en frárennslislagnirnar og því þarf að dæla úr þeim.
Þetta er ekki "einu-sinni-á-öld-flóð", þetta er eitthvað sem hægt er að búast við bara á hverjum vetri, jafnvel oft á vetri. Þarna hafa verið gerð mistök í hönnun á þessu húsi.
En reyndar var í einhverri frétt sagt að þetta hefði verið útaf húsgrunni fyrir ofan þessa byggingu, að þar hefði bilað dæla. En samt... engin belti né axlabönd þarna.
Re: Vatn ógnaði tölvukerfum...
Sent: Mán 03. Feb 2025 08:40
af Jón Ragnar
Fór á laugardag að hlaupa og leiðin mín lá undir Reykjanesbrautina og meðfram D30.
Undirgöngin og allt á milli Þvottastöðvar og D30 var ófært vegna vatns, það var um 30-50cm djúpt vatn alveg öll göngin og eins langt og ég sá.
Væntanlega haft áhrif á dælur í húsinu.
Hef aldrei séð svona mikið vatn þarna
Re: Vatn ógnaði tölvukerfum...
Sent: Mán 03. Feb 2025 08:52
af rostungurinn77
appel skrifaði:rostungurinn77 skrifaði: Mikill leki varð í bílakjallara sem liggur undir Dalvegi 30 í Kópavogi eftir að vatnsdæla á nærliggjandi byggingarsvæði gaf sig.
„Þetta er bílakjallari undir Dalvegi 30. Það kemur vatn úr grunninum en það er verið að byggja við hliðina. Vatnsdæla gaf sig og það byrjaði að leka yfir í bílakjallarann,“ segir Hafsteinn.
https://www.ruv.is/frettir/innlent/2025 ... inn-434798Svona bílakjallari er líklega dýpri en frárennslislagnirnar og því þarf að dæla úr þeim.
Þetta er ekki "einu-sinni-á-öld-flóð", þetta er eitthvað sem hægt er að búast við bara á hverjum vetri, jafnvel oft á vetri. Þarna hafa verið gerð mistök í hönnun á þessu húsi.
En reyndar var í einhverri frétt sagt að þetta hefði verið útaf húsgrunni fyrir ofan þessa byggingu, að þar hefði bilað dæla. En samt... engin belti né axlabönd þarna.
Það getur alveg verið staðbundið einu sinni á öld flóð þó svo að almennt gildi það ekki um tiltekinn atburð.
T.d. ef dælur bila eða ef frárennslislagnir stíflast og það byrjar að flæða upp úr kerfinu.
Sbr. þetta mál hér sem virðist hafa átt sér stað í ágústmánuði
https://www.visir.is/k/9164e1fd-fb9c-4c ... fna-veitum
Re: Vatn ógnaði tölvukerfum...
Sent: Mán 03. Feb 2025 09:06
af Kull
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025 ... ur_i_nott/Vonandi ekki á hverjum vetri sem vatnslögn springur og ókláraður grunnur við hliðina á fyllist af vatni.
Re: Vatn ógnaði tölvukerfum...
Sent: Mán 03. Feb 2025 10:47
af rapport
Kull skrifaði:https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025/02/01/eg_var_vakin_klukkan_fjogur_i_nott/
Vonandi ekki á hverjum vetri sem vatnslögn springur og ókláraður grunnur við hliðina á fyllist af vatni.
Ég var ekki búinn að sjá þetta um sprungnu lögnina, hélt að þetta væri bara hlákan.