Síða 1 af 1

Getur einhver útskýrt verðmun á 5080 ?

Sent: Fös 31. Jan 2025 18:58
af johnbig
Kísildalur 269þkr
tolvulistinn tölvutek 219þ

hvað fæ ég fyrir 50þkr aukalega í kortinu hjá kísildal ?

ég er að spá í þessu að alvöru, ætlaði að uppfæra frá 3080 í 5080

Re: Getur einhver útskýrt verðmun á 5080 ?

Sent: Fös 31. Jan 2025 19:03
af fhrafnsson
Overclocked og mjög stór útgáfa hjá Kísildal. Sýnist af benchmarks samt hitastig og hávaði vera mjög svipað. Mjög mjög ólíklegt að munurinn sé 50k virði (eða 40 ef þú miðar við örlítið betra eintakið hjá Tölvutek t.d.). Að því sögðu fór ég í þetta kort hjá Kísildal og það heyrist varla í því, það lookar svakalega vel ef það skiptir þig máli og runnar öllu sem ég hendi í það.

Re: Getur einhver útskýrt verðmun á 5080 ?

Sent: Fös 31. Jan 2025 19:12
af johnbig
fhrafnsson skrifaði:Overclocked og mjög stór útgáfa hjá Kísildal. Sýnist af benchmarks samt hitastig og hávaði vera mjög svipað. Mjög mjög ólíklegt að munurinn sé 50k virði (eða 40 ef þú miðar við örlítið betra eintakið hjá Tölvutek t.d.). Að því sögðu fór ég í þetta kort hjá Kísildal og það heyrist varla í því, það lookar svakalega vel ef það skiptir þig máli og runnar öllu sem ég hendi í það.



það sést nú ekkert í þetta i minni tölvu. þetta er bara svartur kassi.

Tökum sem dæmi, Overclocked Kortið frá Kísildal og betra kortið frá Tölvutek runnar svipað - á þá ekki Tölvutek kortið eitthvað inni í Overclock - MSi afterburner eða svoleiðis krútt ?

Re: Getur einhver útskýrt verðmun á 5080 ?

Sent: Fös 31. Jan 2025 19:26
af Sinnumtveir
Kortin sem eru á 220K eru með 3% lægra max boost klokk. Í tölvutek er svo eitt kort á 230K sem er með sama boost og kortið í Kísildal.

Semsagt kortin í tl og tek hefðu klárlega vinningin á mínu heimili. Öðruvísi mér áður brá.

Re: Getur einhver útskýrt verðmun á 5080 ?

Sent: Fös 31. Jan 2025 19:31
af Haflidi85
Af þrem "budget" framleiðendum að velja, þá tæki ég persónulega Gainward kortið, ódýrara en Kísildals kortið og hef slæma reynslu af Zotac.

Re: Getur einhver útskýrt verðmun á 5080 ?

Sent: Fös 31. Jan 2025 23:20
af Sinnumtveir
Sinnumtveir skrifaði:Kortin sem eru á 220K eru með 3% lægra max boost klokk. Í tölvutek er svo eitt kort á 230K sem er með sama boost og kortið í Kísildal.

Semsagt kortin í tl og tek hefðu klárlega vinningin á mínu heimili. Öðruvísi mér áður brá.


Sagt er að Palit / Gainward sé svona Chevrolet / GMC dæmi. Það þýðir sennilega að Zotac kortið í Kísildal sem kostar 270K er sama kort og Gainward kortið sem kostar 230K í tölvutek.

Þetta er minn túkall.

Re: Getur einhver útskýrt verðmun á 5080 ?

Sent: Lau 01. Feb 2025 20:25
af Jón Ragnar
johnbig skrifaði:Kísildalur 269þkr
tolvulistinn tölvutek 219þ

hvað fæ ég fyrir 50þkr aukalega í kortinu hjá kísildal ?

ég er að spá í þessu að alvöru, ætlaði að uppfæra frá 3080 í 5080



Mátt heyra í mér varðandi sölu á 3080 :)

Re: Getur einhver útskýrt verðmun á 5080 ?

Sent: Sun 02. Feb 2025 00:31
af agust1337
Sinnumtveir skrifaði:
Sinnumtveir skrifaði:Kortin sem eru á 220K eru með 3% lægra max boost klokk. Í tölvutek er svo eitt kort á 230K sem er með sama boost og kortið í Kísildal.

Semsagt kortin í tl og tek hefðu klárlega vinningin á mínu heimili. Öðruvísi mér áður brá.


Sagt er að Palit / Gainward sé svona Chevrolet / GMC dæmi. Það þýðir sennilega að Zotac kortið í Kísildal sem kostar 270K er sama kort og Gainward kortið sem kostar 230K í tölvutek.

Þetta er minn túkall.


Gainward er í eigu Palit.

Þetta er dálítið eins og Volkswagen AG (Palit), þeir eiga Lamborghini (Gainward) en búa mest til budget eða mid entry bíla (þó t.d. Arteon er premium).
Þá er Gainward premium kort, og svo er eitt annað sem er í eigu Palit þá er það Galax, þó veit ég ekki hvort þeir eru til hér á landi, en þeir eru meira fokuseraðir á performance

Re: Getur einhver útskýrt verðmun á 5080 ?

Sent: Mán 03. Feb 2025 02:35
af johnbig
Jón Ragnar skrifaði:
johnbig skrifaði:Kísildalur 269þkr
tolvulistinn tölvutek 219þ

hvað fæ ég fyrir 50þkr aukalega í kortinu hjá kísildal ?

ég er að spá í þessu að alvöru, ætlaði að uppfæra frá 3080 í 5080



Mátt heyra í mér varðandi sölu á 3080 :)


já. ég geri það

Re: Getur einhver útskýrt verðmun á 5080 ?

Sent: Fim 06. Feb 2025 18:06
af castino
Haflidi85 skrifaði:Af þrem "budget" framleiðendum að velja, þá tæki ég persónulega Gainward kortið, ódýrara en Kísildals kortið og hef slæma reynslu af Zotac.


Af hverju hefur þú slæma reynslu af Zotac, varstu ekki bara óheppinn með eintak. Þeir fá sýnist mér fína dóma fram yfir Gainward.

Re: Getur einhver útskýrt verðmun á 5080 ?

Sent: Fim 06. Feb 2025 21:08
af Haflidi85
castino skrifaði:
Haflidi85 skrifaði:Af þrem "budget" framleiðendum að velja, þá tæki ég persónulega Gainward kortið, ódýrara en Kísildals kortið og hef slæma reynslu af Zotac.


Af hverju hefur þú slæma reynslu af Zotac, varstu ekki bara óheppinn með eintak. Þeir fá sýnist mér fína dóma fram yfir Gainward.


Einu skjákortin sem ég hef átt þar sem viftur hafa dáið á innan við 3 árum, gerðist á 2 kortum sem ég hef átt, svo hefur mér fundist build qualityið ekkert sérstakt og klassískt svona zotac moment er að opna kortið og sjá hversu illa thermal paste ið er sett á.