Síða 1 af 3

DeepSeek

Sent: Mán 27. Jan 2025 22:18
af rapport
https://www.visir.is/g/20252681060d/kin ... estan-hafs

Shix, það er ekkert smá rót á þessum markaði.

Re: DerpSeek

Sent: Mán 27. Jan 2025 22:33
af olihar
a90af756-1629-40ba-9130-c81ec97bc365.jpeg
a90af756-1629-40ba-9130-c81ec97bc365.jpeg (247.56 KiB) Skoðað 241904 sinnum

Re: DerpSeek

Sent: Mán 27. Jan 2025 23:41
af rapport
olihar skrifaði:a90af756-1629-40ba-9130-c81ec97bc365.jpeg


Á þetta ekki bara við public GenAI?

https://www.crayon.com/resources/insigh ... nd-AI-CoE/

Held tvö, þrjú ár síðan þeir opnuðu CoE í Asíu líka.

Held að AI drifið af eigin gögnum til að bæta frammistöðu og reksturinn sé lengra komin og almennari í EU en hjá mörgum öðrum. En það er hugsanlega bara miðlarnir og tengslanetið, ekki raunveruleikinn.

Re: DerpSeek

Sent: Þri 28. Jan 2025 00:12
af olihar
EU er langt á eftir í þessari hröðu þróun.

Re: DerpSeek

Sent: Þri 28. Jan 2025 01:17
af gnarr
Þetta eru líklega bestu mögulegu fréttir fyrir PC leikja spilara sem við gætum fengið.

Þetta sýnir fjárfestum hvað AI er mikil .com búbbla og að það sé sniðugra að NVIDIA sé diversified og setji mikið púður í leikjabransann.

Re: DeepSeek

Sent: Þri 28. Jan 2025 09:28
af GuðjónR
18% fall ~ 550 milljarðar dollara á einum degi hja nVidia.
Vonandi fer fókusinn aftur á skjákort en ekki á crypto mining / AI.

Re: DeepSeek

Sent: Þri 28. Jan 2025 09:54
af halipuz1
GuðjónR skrifaði:18% fall ~ 550 milljarðar dollara á einum degi hja nVidia.
Vonandi fer fókusinn aftur á skjákort en ekki á crypto mining / AI.


Er ekki crypto mining á skjákortum bara dautt? Ég upplifði allavega þegar ETH fór úr PoW í PoS og ég hélt ekki út lengi, 2 mánuði. Engann veginn þess virði nema þú sért með gámastæður af ASIC miners.

En AI focus er svakalegur og spennandi tímar framundan.

Er einmitt að vinna á helpdesk og langar alltaf að reyna automata helpdeskið meira svo við getum þróast betur í okkar starfi og gert eitthvað meir að viti heldur en að resetta passwordum.

Re: DeepSeek

Sent: Þri 28. Jan 2025 10:11
af GuðjónR
Geta þeir ekki framleitt AI kort og svo GPU kort?

Re: DeepSeek

Sent: Þri 28. Jan 2025 10:38
af halipuz1
GuðjónR skrifaði:Geta þeir ekki framleitt AI kort og svo GPU kort?


Ég þekki það ekki nógu vel en eru ekki þessi A5000 kort og þau fyrir AI einmitt?

Re: DerpSeek

Sent: Þri 28. Jan 2025 10:42
af ekkert
olihar skrifaði:EU er langt á eftir í þessari hröðu þróun.


Er Stable Diffusion alveg orðið úrelt? Spyr bara því ég næ ekki alveg að fylgjast með þessari senu

Re: DerpSeek

Sent: Þri 28. Jan 2025 11:05
af olihar
ekkert skrifaði:
olihar skrifaði:EU er langt á eftir í þessari hröðu þróun.


Er Stable Diffusion alveg orðið úrelt? Spyr bara því ég næ ekki alveg að fylgjast með þessari senu


Það náði aldrei neinu flugi.

Re: DeepSeek

Sent: Þri 28. Jan 2025 12:32
af worghal
Mynd

Re: DeepSeek

Sent: Þri 28. Jan 2025 12:56
af Templar
Ætla að veðja að kínverjarnir séu að ljúga um þetta, ýkja og það vantar eitthvað í þetta. Hefðbundið kommastönt, minnir mig á rússana þegar þeir segjast eiga voða öflugt vopn og svo virkar ekkert.

Re: DerpSeek

Sent: Þri 28. Jan 2025 12:57
af Templar
olihar skrifaði:
ekkert skrifaði:
olihar skrifaði:EU er langt á eftir í þessari hröðu þróun.


Er Stable Diffusion alveg orðið úrelt? Spyr bara því ég næ ekki alveg að fylgjast með þessari senu


Það náði aldrei neinu flugi.

EU er staðnað batterí, kunna ekkert nema að búa til reglur, hækka skatta og sturta skattfé í klósetið.

Re: DerpSeek

Sent: Þri 28. Jan 2025 13:00
af rapport
Templar skrifaði:
olihar skrifaði:
ekkert skrifaði:
olihar skrifaði:EU er langt á eftir í þessari hröðu þróun.


Er Stable Diffusion alveg orðið úrelt? Spyr bara því ég næ ekki alveg að fylgjast með þessari senu


Það náði aldrei neinu flugi.

EU er staðnað batterí, kunna ekkert nema að búa til reglur, hækka skatta og sturta skattfé í klósetið.


Hljómar eins og xD hérna heima...

Re: DeepSeek

Sent: Þri 28. Jan 2025 14:27
af Henjo
Uhmm já, bara ef Evrópusambandið hefði ekki verið stofnað árið 1992, Þá hefðu við verið með risatæknifyrirtæki sem hefðu verið stofnuð í Evrópu í kringum 1980 eins og Apple og Microsoft.

Re: DeepSeek

Sent: Þri 28. Jan 2025 15:14
af ekkert
Templar skrifaði:Ætla að veðja að kínverjarnir séu að ljúga um þetta, ýkja og það vantar eitthvað í þetta. Hefðbundið kommastönt, minnir mig á rússana þegar þeir segjast eiga voða öflugt vopn og svo virkar ekkert.


Þetta er mjög heimskt innlegg í umræðuna. Módelið er open-source, þú getur hlaðið því niður og keyrt á tölvu og skoðað sjálfur og þá er alveg opinbert hvað vantar eða ekki. Ef það væri raunin væri það augljóst.

Re: DeepSeek

Sent: Þri 28. Jan 2025 15:57
af Templar
Það er heimskulegt að kalla eitthvað heimskulegt svona snemma á e-h stigi.
þetta er brjálæð hæp núna og frábært ef satt reynist. Open Source eða ekki, skiptir nkl. engu máli en eitt besta hakk 2024 var á open source hugbúnaði.
Frábært ef þeir eru að bylta þessu, spara hardware og orku og vonast að það sé rétt en ég ætla ekki fagna strax.
Það er svo endalaust flex milli Kínverja og Bandaríkjanna og "heimskulegt" að halda eitthvað annað.

Re: DeepSeek

Sent: Þri 28. Jan 2025 16:35
af rapport
Templar skrifaði:Það er heimskulegt að kalla eitthvað heimskulegt svona snemma á e-h stigi.
þetta er brjálæð hæp núna og frábært ef satt reynist. Open Source eða ekki, skiptir nkl. engu máli en eitt besta hakk 2024 var á open source hugbúnaði.
Frábært ef þeir eru að bylta þessu, spara hardware og orku og vonast að það sé rétt en ég ætla ekki fagna strax.
Það er svo endalaust flex milli Kínverja og Bandaríkjanna og "heimskulegt" að halda eitthvað annað.


Markaðurinn (as in everybody) lækkaði verð á nVidia og mörgum öðrum fyrirtækjum vegna skýrslu frá DeepSeek sem bakkar upp meira en mánaðargamlar fullyrðingar.

s.s. markaðurinn er búinn að efast út í Kínverjana og núna að leiðrétta sig út frá þeim gögnum sem liggja fyrir.

Ef eitthvað er þá er þetta algjört mótvægi við blöðruna sem hefur verið blásin upp í kringum þetta alltsaman.

Að efast er alveg heilbrigt upp að einhverju stigi, svo verður það weird og svo hreinlega óheilbrigt... að efast um þetta þykir mér weird.

Re: DeepSeek

Sent: Þri 28. Jan 2025 20:51
af olihar
Templar skrifaði:Ætla að veðja að kínverjarnir séu að ljúga um þetta, ýkja og það vantar eitthvað í þetta. Hefðbundið kommastönt, minnir mig á rússana þegar þeir segjast eiga voða öflugt vopn og svo virkar ekkert.


Engar lygar hérna, þetta er magnað LLM, tekur ChatGPT í nefið og hægt að keyra þetta sjálfur á góðu hardware-i heima.

Kemur mest á óvart að módelin voru sett fram svona opin. Eitthvað hefur kostað að búa þau til og halda þeim svo við.

Re: DeepSeek

Sent: Þri 28. Jan 2025 20:54
af olihar
IMG_1708.jpeg
IMG_1708.jpeg (44.45 KiB) Skoðað 241136 sinnum

Re: DeepSeek

Sent: Þri 28. Jan 2025 22:50
af Templar
Vona að þetta reynist allt rétt og frábært hjá þeim í Deepseek en þetta er fullkominn neisti inn í markað sem er búið að vera spá bólumyndun og dot.com bösti núna í talsverðan tíma.
Hef ekki haft neinn tíma að skoða þetta ennþá en lofar góðu miðað við hvað menn segja hér.

Re: DeepSeek

Sent: Mið 29. Jan 2025 09:55
af GuðjónR
Er búinn að prófa Deepseek og verð að segja að ég skil ekki lætin í kringum það. Þetta er algjört drasl, kemst ekki með tærnar þar sem ChatGPT hefur hælana.

Ef svona grín getur þurrkað út markaðsvirði eins fyrirtækis sem nemur 17 faldri landsframleiðslu Íslands á nokkrum klukkustundum þá er eitthvað mikið að í þessum heimi.

Re: DeepSeek

Sent: Mið 29. Jan 2025 10:02
af Hrotti

Re: DeepSeek

Sent: Mið 29. Jan 2025 10:09
af Hjaltiatla
Ég get ekki séð að þessi Gervigreind sé drasl miðað við það sem ég les frá miðli sem ég treysti.
https://arstechnica.com/ai/2025/01/how-does-deepseek-r1-really-fare-against-openais-best-reasoning-models/


Er byrjaður að prófa Deepseek samhliða þeim lausnum sem ég nota nú þegar ChatGpt, Gemini, Claude og Copilot :D