Síða 1 af 1
Hver er rót vandans?
Sent: Fim 23. Jan 2025 09:27
af rapport
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025 ... dahindrun/Ætli hraðahindrunin sé illa hönnuð eða rangt upp sett EÐA frágangur á veginum sem hún hvílir á ábótavant EÐA það er eitthvað að hönnun eða byggingu þessara húsa?
Re: Hver er rót vandans?
Sent: Fim 23. Jan 2025 09:37
af rostungurinn77
Knús á þig og gangi þér vel!

Re: Hver er rót vandans?
Sent: Fim 23. Jan 2025 10:00
af rapport
rostungurinn77 skrifaði:Knús á þig og gangi þér vel!

Finnst þér ekki skrítið að ein hraðahindrun láti heilu húsin nötra svona svakalega?
Alltaf til í knús, þau lengja lífið
Re: Hver er rót vandans?
Sent: Fim 23. Jan 2025 10:04
af GuðjónR
Fúsk.
Plástur á sárið væri að fjarlægja hraðahindrunina.
En það er augljóslega hönnunargallin á húsínu sem tengist undirstöðum þess.
Re: Hver er rót vandans?
Sent: Fim 23. Jan 2025 11:49
af oliuntitled
Pottþétt léleg hönnun á svæðinu sem er to blame, bæði húsið og gatnagerðin.
Re: Hver er rót vandans?
Sent: Fim 23. Jan 2025 12:26
af worghal
er ekki strætó að hætta að fara þarna í gegn bráðlega hvort sem er?
Re: Hver er rót vandans?
Sent: Fim 23. Jan 2025 13:14
af CendenZ
Botnplatan gæti legið ofan á grjóti sem var notað var sem grunnur á þessum tímum, (18 öld) Svo yfir grjótið var "flotað" með jarðsteypu til að útbúa botnplötu. Ætli það sé ekki að berast víbringur inn á plötuna. Mjög ólíklegt að það sé hægt að bjarga þessu nema breyta strætóleiðinni ef það er orsökin

Re: Hver er rót vandans?
Sent: Fim 23. Jan 2025 13:18
af worghal
CendenZ skrifaði:Botnplatan gæti legið ofan á grjóti sem var notað var sem grunnur á þessum tímum, (18 öld) Svo yfir grjótið var "flotað" með jarðsteypu til að útbúa botnplötu. Ætli það sé ekki að berast víbringur inn á plötuna. Mjög ólíklegt að það sé hægt að bjarga þessu nema breyta strætóleiðinni ef það er orsökin

það var nú grafið vel ofan í jörðina þarna þannig að hvað sem var þarna á undan þá er allt löngu farið.
Re: Hver er rót vandans?
Sent: Fim 23. Jan 2025 13:21
af olihar
worghal skrifaði:er ekki strætó að hætta að fara þarna í gegn bráðlega hvort sem er?
2030 í fyrsta lagi.
Re: Hver er rót vandans?
Sent: Fim 23. Jan 2025 13:40
af Hizzman
taka þetta upp og setja gúmmilag, eða setja hraðastýrða hraðahindrun eða ...
Re: Hver er rót vandans?
Sent: Fim 23. Jan 2025 14:19
af rapport
Er hraðahindrunin á klöpp?
Re: Hver er rót vandans?
Sent: Fim 23. Jan 2025 14:25
af CendenZ
worghal skrifaði:CendenZ skrifaði:Botnplatan gæti legið ofan á grjóti sem var notað var sem grunnur á þessum tímum, (18 öld) Svo yfir grjótið var "flotað" með jarðsteypu til að útbúa botnplötu. Ætli það sé ekki að berast víbringur inn á plötuna. Mjög ólíklegt að það sé hægt að bjarga þessu nema breyta strætóleiðinni ef það er orsökin

það var nú grafið vel ofan í jörðina þarna þannig að hvað sem var þarna á undan þá er allt löngu farið.
Það getur verið að nýja botnplatan á Smiðju komist í snertingu við flöt sem smitar bylgjurnar yfir, þótt að jarðvegurinn undir Smiðju sé allur nýr er allskonar grjót og jarðsteypa í kringum þann reit(og kannski 100 ára gamalt stuff). Ég meina ss, að gamla botnplatan sem liggur þarna í næsta húsi sé að hleypa víbringnum yfir í nýja húsið. Það þarf nefnilega ekkert mikið til þess. Ég meina, reiturinn er nánast upp við drullupollinn. Þessi svakalega gröftur á grunni gæti hafa hleypt allskonar hreyfingu í gang frá nærliggjandi rýmum.
Það eru btw ca 14 metrar frá botnplötu Smiðju að vatnsyfirborði tjarnarinnar, þannig já, alveg sama hversu mikið hefur verið grafið frá og burt þá driftar þetta allt saman þegar risastórt og þungt ferlíki settlar
edit:
Hizzman skrifaði:taka þetta upp og setja gúmmilag, eða setja hraðastýrða hraðahindrun eða ...
Ólíklegt að það hafi nægilega mikil áhrif, myndi frekar halda að loka þessari götu fyrir svona umferð væri mun einfaldara. Einfalt og málið leyst í raun með pennastriki. Það gæti bara verið smávegis pikkles að koma strætónum á Suðurgötu eða Túngötu

Re: Hver er rót vandans?
Sent: Fim 23. Jan 2025 14:31
af worghal
hvað með að setja svona hraðahindrunar kodda sem er gerð svo að strætó geti bara farið beint í gegn.
Re: Hver er rót vandans?
Sent: Fim 23. Jan 2025 14:44
af Omerta
worghal skrifaði:hvað með að setja svona hraðahindrunar kodda sem er gerð svo að strætó geti bara farið beint í gegn.
Allt of ódýrt og skynsamlegt. Þurfum að finna leið til að borga verktaka milljarð fyrir þetta einhvernveginn.
Re: Hver er rót vandans?
Sent: Fim 23. Jan 2025 20:41
af Hizzman
rapport skrifaði:https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025/01/23/skoda_breytingu_a_hradahindrun/
Ætli hraðahindrunin sé illa hönnuð eða rangt upp sett EÐA frágangur á veginum sem hún hvílir á ábótavant EÐA það er eitthvað að hönnun eða byggingu þessara húsa?
Já OG já OG já
Re: Hver er rót vandans?
Sent: Fim 23. Jan 2025 20:43
af Moldvarpan
Er ekkert að gera í nýju vinnunni fjármálastjóri?

Re: Hver er rót vandans?
Sent: Fim 23. Jan 2025 22:05
af rapport
Moldvarpan skrifaði:Er ekkert að gera í nýju vinnunni fjármálastjóri?

Jú, þetta hafa verið langir dagar, mikil vinna á nýjum stað, en ofboðslega gaman.
Vissi ekki hvað ég hafði saknað þess mikið að vera vinna í þessum geira.