Síða 1 af 1
Ísland á HM í handbolta
Sent: Mið 22. Jan 2025 21:49
af svanur08
Jæja þvílkur leikur og þvílík tilþrif, hverjir sáu leikinn?

Re: Ísland á HM í handbolta
Sent: Mið 22. Jan 2025 22:38
af littli-Jake
Var í höllinni. Það var fín stemmning þarna.
Re: Ísland á HM í handbolta
Sent: Fim 23. Jan 2025 10:31
af KristinnK
Liðið er að spila alveg gríðarlega vel, vörnin sérstaklega ótrúlega þétt, og Viktor Gísli frábær markmaður. Þessi sigur gegn Egyptum var ofboðslega mikilvægur. Að því gefnu að við vinnum líka gegn Króötum og Argentínumönnum munum við nánast örugglega mæta Hollandi, Ungverjalandi eða Austurríki í fjórðungsúrslitum. Það ætti svo að vera auðveldur leikur, og þá erum við komnir í undanúrslit gegn Frökkum. Það yrði þungur leikur, en við getum alveg unnið gegn þeim, Frakkland er ekki lengur jafn sterkt og það var fyrir nokkrum árum.
Re: Ísland á HM í handbolta
Sent: Fös 24. Jan 2025 21:22
af svanur08
Píning að horfa á ísland - króatía!
Re: Ísland á HM í handbolta
Sent: Fös 24. Jan 2025 22:08
af lyfsedill
KristinnK skrifaði:Liðið er að spila alveg gríðarlega vel, vörnin sérstaklega ótrúlega þétt, og Viktor Gísli frábær markmaður. Þessi sigur gegn Egyptum var ofboðslega mikilvægur. Að því gefnu að við vinnum líka gegn Króötum og Argentínumönnum munum við nánast örugglega mæta Hollandi, Ungverjalandi eða Austurríki í fjórðungsúrslitum. Það ætti svo að vera auðveldur leikur, og þá erum við komnir í undanúrslit gegn Frökkum. Það yrði þungur leikur, en við getum alveg unnið gegn þeim, Frakkland er ekki lengur jafn sterkt og það var fyrir nokkrum árum.
Jamm það breyttist rosalega á einum leik í kvöld
Fatta bara ekki hvað gerðist og er að missa personulega trú á Snorra sem ég var svo glaður með að var ráðinn á sýnum tíma. Af hverju notar hann ekki gaura sem eru toppgaurar? Varla bjóst hann við að Aron gæti verið góður 3 leiki í röð! Og af hverju notaði hann ekki Benna fyrr í leiknum og á mótinu. Og Þorstein Leó fyrr eða eitthvað í dag? Þröst meira í dag? Og af hverju tekur maðurinn ekki meira af leikhléum til að peppa menn upp!!! Spánarþjálfarinn í dag tók öll sín hlé ávallt þegar ílla gekk í leiknum og það gaf smá innspýtingu alltaf þó þeir hafi svo tapað leiknum.
Eg á ekki til orð!
Re: Ísland á HM í handbolta
Sent: Fös 24. Jan 2025 22:52
af svanur08
Senda okkur heim bara eftir þennan glataða leik.
Re: Ísland á HM í handbolta
Sent: Fös 24. Jan 2025 23:40
af falcon1
Hræðilegt! Týndu greinilega einbeitingunni og fókusnum á McDonalds.