Þessir nýju bílar eru andskotinn. Best að halda sig við gamla bíla til að losna við þetta.
Erum komin inn í framtíðina sem var sýnd í kvikmyndinni "Demolition Man" með Sylvester Stallone og Wesley Snipes, þar sem ómögulegt var að fremja lögbrot, þú fékkst sjálfkrafa sekt, og bílar voru auðvitað algjörlega öruggir og gast ekki gripið neitt inn í.
Re: Píp, píp, píp... fyrirhyggjustefna í akstri
Sent: Sun 12. Jan 2025 23:32
af worghal
það verður svo ekkert mál að kóða þetta út rétt eins og fólk er að gera með bílbeltin og annað.
Re: Píp, píp, píp... fyrirhyggjustefna í akstri
Sent: Sun 12. Jan 2025 23:33
af Henjo
Gleymi aldrei þeirri ógeðstilfinningu, þegar ég uppfærði úr gömlum 80s Mercedes yfir í nýlegan VW bíll, og ég áttaði mig á því að ég gat ekki startað bílnum... því ég er var með skotið opið.
Re: Píp, píp, píp... fyrirhyggjustefna í akstri
Sent: Mán 13. Jan 2025 09:12
af KristinnK
Mér finnst fátt verra en þegar ákvarðanir eru teknar af notendum búnaðar og teknar af búnaðinum sjálfum. Það er nýkomin út risaskýrsla hans Mario Draghi um að Evrópusambandið verði að snúa blaðinu algjörlega við er varðar hluti eins og íþyngjandi reglugerðir, og hvað gerir sambandið? Setur á nýjar reglugerðir sem gerir fólki lífið enn erfiðar.
Maður hristir bara hausinn og vonar að við endum ekki líka í þessu batteríi.
Re: Píp, píp, píp... fyrirhyggjustefna í akstri
Sent: Mán 13. Jan 2025 09:37
af ekkert
Þetta er satt, það er allavega mín reynsla á nýjum bíl. Það tekur tíma og átta sig á hvað mismunandi bjöllu hljóð þýða og það getur verið ruglandi. Svo núna hálfu ári seinna er þetta allt lært og ég veit alveg hvað hver bjalla þýðir, jafnvel býst við henni rétt áður en hún hljómar.
Það eru líka Advanced driver-assistance system (ADAS) sem geta hemlað þegar þú hefur ekki metið stöðuna svo að þú þarft að hemla, það er mjög ónotaleg tilfinning. Verð samt að viðurkenna að það bjargaði mér alveg frá því að bakka á steypuvegg í myrkri fyrr í vetur.
Re: Píp, píp, píp... fyrirhyggjustefna í akstri
Sent: Mán 13. Jan 2025 10:56
af gRIMwORLD
Það er ekkert nýtt að vera með svona hljóð, minn bíll er með valmöguleika að hafa svona hljóð fyrir vetrardekk. En það er bara einn fixed hraði. Verður eflaust hrikalega pirrandi að keyra allar þessar 30/40/50 stofngötur og fara rétt yfir hraðann með tilheyrandi pípi.
Hugsa að þetta verði minna issue þegar fleiri bílar verði komnir með auto-cruise control sem fylgir hámarkshraða. Það hættir fólk að spá í þessu. Það geta líka margir sparað helling í tryggingar með því að halda sig innan hámarkshraða með Ökuvísi tryggingu. Svo það er í mörg horn að líta og ekki allt endilega slæmt.
Re: Píp, píp, píp... fyrirhyggjustefna í akstri
Sent: Mán 13. Jan 2025 11:18
af GuðjónR
„Menn sjá líka fyrir sér að innan ekki svo langs tíma verði hugsanlega hægt að grípa inn í og setja á ákveðnum svæðum allan hraða niður þannig að ökumenn geti ekki farið yfir ákveðinn hámarkshraða. Það gæti til dæmis verið ákveðið í Kvosinni í Reykjavík að yrði 30 kílómetra hámarkshraði og um leið og bíllinn fer inn í ákveðið svæði þá kemst bíllinn ekki hraðar en þrjátíu kílómetra.“
Mér líst svo ílla á þessa tækni, ef einhverjum dettur í hug að þú megir ekki keyra ákveðnar götur nema að uppfylltum skilyrðum, t.d. sért skuldaust við ríki með gott lánstraust á CreditInfo og jákvæður á internetinu og það mikilvægasta, sért tvíbólusettur með 30 bústera í rassgatinu.
Það verður þvílíkt hægt að mistnota þessa tækni til kúgunar að Black Mirror höfundar gætu ekki látið sér detta það í hug. Svo er fólk að mæra þetta Evrópusamband með bóner eins og það sé lausn allra vandamála. Við ættum að slíta okkur frá því eins og við getum og hætta að lepja upp alla vitleysuna sem kemur þaðan.
Re: Píp, píp, píp... fyrirhyggjustefna í akstri
Sent: Mán 13. Jan 2025 11:57
af Orri
Ef hámarkshraði á götum er viðeigandi, og vikmörkin á þessu pípi eru viðeigandi (fari ekki að pípa á 91 á 90 götu), þá sé ég ekkert að þessu. Aðrir hlutir sem snúa að öryggi bílsins og/eða farþega pípa líka.
Kannski mun þetta knýja fram jákvæða breytingu á hámarkshraða sumra gatna.
Hvað finnst mönnum sem eru á móti pípinu um að rafmagnshlaupahjólaleigurnar (Hopp) lækki hámarkshraðan á hjólunum á ákveðnum svæðum, eins og Laugaveginum? Sem bæði notandi Hopp sem og gangandi vegfarandi hefur mér nefninlega fundist það bara flott, stuðlar að öryggi allra.
Re: Píp, píp, píp... fyrirhyggjustefna í akstri
Sent: Mán 13. Jan 2025 13:00
af falcon1
Orri skrifaði:Kannski mun þetta knýja fram jákvæða breytingu á hámarkshraða sumra gatna.
Hvað er jákvæði breyting á hámarkshraða?
Re: Píp, píp, píp... fyrirhyggjustefna í akstri
Sent: Mán 13. Jan 2025 13:04
af Dropi
Annar bíllinn minn er 2022 rafmagnsbíll og ég tek lítið mark á hámarks hraða skiltinu sem er í mælaborðinu. Ef ég er að keyra meðfram eða undir götu með annan hámarkshraða þá birtir hann mjög oft rangt. Gaman væri að keyra miklubraut, keyra undir brú og bíllinn neglir niður.
Konan er mjög ánægð að vera á nýjum bíl en ég er á 2008 bíl sjálfur sem ég elska mikið. Eitt skipti var ég í brúðkaupi að skipta um föt úti í nýja bílnum, var svo beðinn að færa hann tvo metra til að gera betra pláss en hurðin var ekki alveg lokuð og bíllinn var með þvílíka prinsessustæla yfir því. Helvíti var óþægilegt að byrja að færa bílinn og hann setti sig bara sjálfur í Park á hreyfingu!
Re: Píp, píp, píp... fyrirhyggjustefna í akstri
Sent: Mán 13. Jan 2025 14:05
af appel
Allir þessir nýrri bílar eru með "ökurita" þannig að ef þú lendir í árekstri þá getur lögreglan einfaldlega lesið úr þeim og komist að því að þú ókst of hratt, jafnvel þó það hafi verið mínútu fyrir árekstur.
Vandinn er að þegar þú byrjar að missa tryggingu því tryggingafélögin bera fyrir sér að þú braust lög, því þú varst á 55km hraða þar sem var 50km hámarkshraði. Skilmálar tryggingafélaganna innihalda væntanlega klausu um að þú sért eingöngu tryggður svo lengi sem þú brjótir ekki lög eða keyrir samkvæmt lögum, sem flestum manneskjum er mjög erfitt enda ekki róbótar.
Þessir bílar eru ekki besti vinur þinn, þeir svíkja þig um leið og eitthvað kemur upp.
Re: Píp, píp, píp... fyrirhyggjustefna í akstri
Sent: Mán 13. Jan 2025 14:47
af Moldvarpan
Re: Píp, píp, píp... fyrirhyggjustefna í akstri
Sent: Mán 13. Jan 2025 15:32
af Henjo
Óvinsæl skoðun warning, flestir keyra alltof hratt. Fólk deyr vegna þess. Hámarkshraði er ekki lágmarkshraði. Það að væla yfir því að bíllinn er að benda þér á að þú ert að keyra yfir hámarkshraða á tveggja tonnu járndósini þinni, og þannig leggja líf annars fólks í hættu, er bara aumingjaskapur.
En engar áhyggjur, það er hægt að disabla þetta í öllum bílum (og síðan restartast þetta næst þegar bíllinn er settur í gang) þannig það er ennþá hægt að cruisa þjóðveginn á 120km/h, bippa á bílana sem keyra á löglegum hraða og taka síðan frammúr á 140/150km/h
Re: Píp, píp, píp... fyrirhyggjustefna í akstri
Sent: Mán 13. Jan 2025 16:12
af gnarr
Henjo skrifaði:Óvinsæl skoðun warning, flestir keyra alltof hratt. Fólk deyr vegna þess. Hámarkshraði er ekki lágmarkshraði. Það að væla yfir því að bíllinn er að benda þér á að þú ert að keyra yfir hámarkshraða á tveggja tonnu járndósini þinni, og þannig leggja líf annars fólks í hættu, er bara aumingjaskapur.
En engar áhyggjur, það er hægt að disabla þetta í öllum bílum (og síðan restartast þetta næst þegar bíllinn er settur í gang) þannig það er ennþá hægt að cruisa þjóðveginn á 120km/h, bippa á bílana sem keyra á löglegum hraða og taka síðan frammúr á 140/150km/h
100% sammála.
Re: Píp, píp, píp... fyrirhyggjustefna í akstri
Sent: Mán 13. Jan 2025 16:18
af jericho
Gleymist líka oft í umræðunni að hámarkshraði miðast við bestu aðstæður. Hvaða rök annars eru fyrir því að keyra yfir hámarkshraða?
Re: Píp, píp, píp... fyrirhyggjustefna í akstri
Sent: Mán 13. Jan 2025 16:37
af Langeygður
jericho skrifaði:Gleymist líka oft í umræðunni að hámarkshraði miðast við bestu aðstæður. Hvaða rök annars eru fyrir því að keyra yfir hámarkshraða?
Kemst fyrr á áfangastað... eða ekki.
Re: Píp, píp, píp... fyrirhyggjustefna í akstri
Sent: Mán 13. Jan 2025 17:54
af Cikster
Það er eitt að bílarnir séu að pípa ef útaf allskonar eins og er núna .... en ef þetta fer alla leið í að "þeir" geti lækkað hámarkshraða í einhverjum götum eins og gaukurinn var að tala um að væri svo frábært í fréttunum í gær þýðir það að bíllinn er nettengdur sem er bölvuð vitleysa.
Munið þið ekki eftir fyrir nokkrum árum að þeir sem áttu Tesla bíla komust ekki inn í þá þar sem einhver server var ekki að virka .... ef þetta fer útí að þeir geti lækkað hámarkshraða þá þýðir það bara að aðrir geti brotist inn og t.d. sett að hámarkshraði sé allastaðar 5 km/klst ... og allt fer í klessu ... líka hjá þeim sem eru með eldri bíla þar sem allt væri stop allstaðar.
Re: Píp, píp, píp... fyrirhyggjustefna í akstri
Sent: Mán 13. Jan 2025 20:29
af Hlynzi
Mér finnst þetta of mikil fyrirhyggja og það á kolröngum stað. Þú getur samt svigað milli akreina og keyrt eins og vitleysingur þó svo þú haldir þig undir löglegum hraða.
Hvað með svo alla grínistana sem setja upp myndir af skiltum á Reykjanesbrautina 30 km hámarkshraði ?
Ég er með bíl með Stop - Start virkni, í hinum raunverulega innanbæjarakstri sparaði þetta innan við 8% í bensín í 5th gear prófun. Sem betur fer er takki sem er orðinn hluti af ræsingu bílsins...að ýta á eftir að ég kveiki á bílnum.
Hann er hinsvegar með allskonar öryggisdæmi meðal annars árekstrarvörn sem grípur inní alveg á síðustu stundu og pípir á mig þá.
Versta uppfinningin af þessum kerfum er hinsvegar TPMS (loftþrýstingsskynjarar í dekkjum), gerir ekkert nema bila (seljum fleiri skynjara), gefa rangar upplýsingar og eru ótrúlega hvimleiðir.
Re: Píp, píp, píp... fyrirhyggjustefna í akstri
Sent: Mán 13. Jan 2025 21:55
af Dropi
Hlynzi skrifaði:Versta uppfinningin af þessum kerfum er hinsvegar TPMS (loftþrýstingsskynjarar í dekkjum), gerir ekkert nema bila (seljum fleiri skynjara), gefa rangar upplýsingar og eru ótrúlega hvimleiðir.
Algjört pain ef þú ert með tvö sett af felgum og bíllinn vill ekki hafa fleiri en 4 skynjara í minni
Re: Píp, píp, píp... fyrirhyggjustefna í akstri
Sent: Mán 13. Jan 2025 22:37
af agust1337
worghal skrifaði:það verður svo ekkert mál að kóða þetta út rétt eins og fólk er að gera með bílbeltin og annað.
Ekkert endilega, vw er með sfd2 sem er algjört helvíti að vinna úr og kóða hluti í eða úr
Re: Píp, píp, píp... fyrirhyggjustefna í akstri
Sent: Mán 13. Jan 2025 23:37
af rapport
Ég keyri hratt þegar ég er að flýta mér. Í slikum aðstæðum ætti öll athyglin að vera á akstrinum, af hverju er bíllinn þá að leggja sig fram við að trufla mig?
Í verstu aðstæðum þá gerir þetta ekki gagn og gerir illt verra. Við bestu aðstæður þá aðstoðar þetta bílstjóra með því að pirra þá.
Ég vil að því verði bætt við að það hljómar hátt öskur ef að þú tekur of seint af stað á grænu ljósi eða hægir á þér löngu áður en þú kemur að afrein eða ef bílar hægramegin við þig fara hraðar en þú eða það er bíll fyrir aftan þig og þú getur fært þig til hægri eða pera í bremsuljósi er farin eða þú ert með háu ljósin á þegar þú mætir öðrum eða ...
Re: Píp, píp, píp... fyrirhyggjustefna í akstri
Sent: Þri 14. Jan 2025 00:01
af Henjo
Hlynzi skrifaði:Versta uppfinningin af þessum kerfum er hinsvegar TPMS (loftþrýstingsskynjarar í dekkjum), gerir ekkert nema bila (seljum fleiri skynjara), gefa rangar upplýsingar og eru ótrúlega hvimleiðir.
Þarf þessa skynjara? Er á bíl nr2 núna sem ætti að vera með svona skynjurum, en hvorugir hafa verið með þá í felgunum. Kemur bara gult ljós í mælaborðið og ekkert meir.
Re: Píp, píp, píp... fyrirhyggjustefna í akstri
Sent: Þri 14. Jan 2025 13:18
af falcon1
Hvað ef maður verður að flýta sér á sjúkrahús eða í einhverri annarri neyð? Eiga þá einhver njósnatæki í bílnum að stoppa það þar sem skv. tölvunni þá ertu að keyra yfir hámarkshraða?
Re: Píp, píp, píp... fyrirhyggjustefna í akstri
Sent: Þri 14. Jan 2025 13:29
af gnarr
rapport skrifaði:Ég keyri hratt þegar ég er að flýta mér. Í slikum aðstæðum ætti öll athyglin að vera á akstrinum, af hverju er bíllinn þá að leggja sig fram við að trufla mig?
Ég keyri fullur þegar þarf að komast heim af barnum. Í slíkum aðstæðum ætti öll athyglin að vera á akstrinum, af hverju er löggan þá að leggja sig fram við að trufla mig?
Re: Píp, píp, píp... fyrirhyggjustefna í akstri
Sent: Þri 14. Jan 2025 14:06
af rapport
gnarr skrifaði:
rapport skrifaði:Ég keyri hratt þegar ég er að flýta mér. Í slikum aðstæðum ætti öll athyglin að vera á akstrinum, af hverju er bíllinn þá að leggja sig fram við að trufla mig?
Ég keyri fullur þegar þarf að komast heim af barnum. Í slíkum aðstæðum ætti öll athyglin að vera á akstrinum, af hverju er löggan þá að leggja sig fram við að trufla mig?
Því að lögreglan hefur það hlutverk að framfylgja lögum og ölvun dregur allsvakalega úr getu fólks til að stjórna ökutæki.
Ég er miklu hrifnari af því að bílar starti sér ekki ef einhver áfengisskynjari skynjar áfengi á svæðinu.
Punkturinn er að það á ekki að vera trufla fólk þegar það er að keyra