Síða 1 af 2

Er Grænland hluti af Ameríku eða Evrópu?

Sent: Fös 10. Jan 2025 09:43
af rapport
Mynd

Þessi skoðun mun hafa bein áhrif á Ísland, því að Grænland er í raun norðar, sunnar, austar og vestar en Ísland

Re: Er Grænland hluti af Ameríku eða Evrópu?

Sent: Fös 10. Jan 2025 10:20
af CendenZ
Þetta mál er nefnilega alveg frekar merkilegt, þarna eru auðlindir sem grænlendingar hafa ekki treyst sér sjálfir að sækja að fullu, danir hafa ekki sýnt mikin áhuga á greftri vegna kostnaðar og möguleiki á smiti af lífrænum úrgangi og bandaríkjamenn eiga þarna helvíti mikið af mikið eitruðum úrgangi eftir kjarnorkutilraunir sem gæti einnig smitast yfir í hinar auðlindirnar.
Þetta er mögulega eitt mesta hot-potato í sögunni ;)

Þetta varnamálarugl í Trump er algjör þvæla, rússar myndi aldrei fórna því að missa NSR með einhverjum cold war ibba-gogg dæmi þarna. Mögulega auka norðursjó-stæla með neðansjávargismóum en aldrei nær NSR.

NSR styttir allar leiðir Rússa til og frá að mikilvægum mörkuðum um uþb 40-60% svo að tapa þeirri leið þýðir í raun endalok heimsmarkaðar rússa, og eins sexý og það gæti hljómað, þá eru ansi mörg lönd að taka þátt í þeim leik. m.a. Ísland, Færeyjar, Noregur, (sjálfir USA), Kanada, fullt af Afrískum löndum osfr... Maður eiginlega áttar sig ekki alveg á hvers vegna Trump er í þessum leik, og ekki eru fjölmiðlar að upplýsa fólk á hlutlausum hátt.

Mig grunar að BNA vilji komast í námugröft, en það er ekki eins og bara mæta með skóflur og þá ertu kominn með rafhlöður í hendurnar. Grænland er ekki framtakssöm þjóð, þeir hafa komist upp með að gera sem minnst og fá sem mest einhverjar 5-6 kynslóðir aftur í tímann. Það verður engin barnaleikur að opna námur og skikka þá að vinna 10-12 tíma á dag, fyrirtæki í eigu grænlendinga eru að ströggla að manna 8 tíma vaktir...
Það gæti verið option að manna svona vinnu með föngum enda sögulega margir bæði í varðhaldi og komnir í fangelsi, einnig hafa aldrei jafn margir tekið út alvarlega glæpi með samfélagsþjónustu.
En að halda að grænlendingar séu að fara þræla sér út fyrir auðmenn frá bandaríkjunum, for-get-a-bout-it

Re: Er Grænland hluti af Ameríku eða Evrópu?

Sent: Fös 10. Jan 2025 13:53
af olihar
Fullt af úraníum, olíu, gulli, lithium og margt fleira á Grænlandi. Ekki skrítið að einhver hafi kvíslað því að Trump á sínum tíma, svo aftur núna, eflaust Musk sem gerði það í þetta skiptið.

Af öllum löndum Á þá ekki Ísland tilkall til Grænlands. Nema við höfum ekkert við Grænland að gera þar sem við komum okkur ekki einu sinni í það að sækja alla olíuna sem við eigum inni hjá okkur sjálfum.

Re: Er Grænland hluti af Ameríku eða Evrópu?

Sent: Fös 10. Jan 2025 13:58
af rostungurinn77
Kína byrjaði ...

Re: Er Grænland hluti af Ameríku eða Evrópu?

Sent: Fös 10. Jan 2025 14:53
af Hizzman
eru Grænlendingar nógu sjálfstæðir til að samþykkja þetta í þjóðaratkvæðagreiðslu? Væri mögulegt að 'kaupa' þá til að samþykkja. Þeir eru ekki nema 40þ, einhver upphæð í vasa hvers gegn samþykki.

Re: Er Grænland hluti af Ameríku eða Evrópu?

Sent: Fös 10. Jan 2025 14:54
af Templar
Það var engin sem hvíslaði e-h að Trump, BNA hefur haft áhuga á Bandaríkjunum í nær 100 ár, ekkert með Trump að gera frekar en Huwai og Kína stefnan.
Trump nær árangri þó og ætlar sér ekki að leyfa heiminum að éta Bandaríska köku án þess að borga fyrir hana og ekkert að því.

Re: Er Grænland hluti af Ameríku eða Evrópu?

Sent: Fös 10. Jan 2025 16:05
af thorhs
Hizzman skrifaði:eru Grænlendingar nógu sjálfstæðir til að samþykkja þetta í þjóðaratkvæðagreiðslu? Væri mögulegt að 'kaupa' þá til að samþykkja. Þeir eru ekki nema 40þ, einhver upphæð í vasa hvers gegn samþykki.


Góð tímasetning:https://www.visir.is/g/20252673572d/sagdir-hafa-greitt-heimilislausum-til-ad-thykjast-vera-studningsmenn-trumps

Re: Er Grænland hluti af Ameríku eða Evrópu?

Sent: Fös 10. Jan 2025 17:11
af Templar
:megasmile Vísir...

Re: Er Grænland hluti af Ameríku eða Evrópu?

Sent: Fös 10. Jan 2025 18:31
af Moldvarpan
Landfræðilega Ameríku. Menningarlega Evrópu.

Re: Er Grænland hluti af Ameríku eða Evrópu?

Sent: Fös 10. Jan 2025 22:19
af Pandemic
Það er nægt framboð af úraníum, líþíum og flestum öðrum málmum í Bandaríkjunum og Kanada. Eina ástæðan fyrir því að þessi efni eru ekki unnin í meira mæli þar en í Kína,Kazakstan og öðrum löndum er einfaldlega kostnaður. Á meðan hægt er að kaupa þessa málma á betra verði frá öðrum láglaunalöndum, þar sem vinnulöggjöfin er ekki jafn ströng, mun enginn fjárfesta í námugreftri þar.
Að Grænland sé spennandi kostur vegna auðlinda er alrangt; þar er erfiðara að grafa, vinnuafl er ekki til staðar, og skortur er á þekkingu.

Re: Er Grænland hluti af Ameríku eða Evrópu?

Sent: Fös 10. Jan 2025 23:32
af rapport
Moldvarpan skrifaði:Landfræðilega Ameríku. Menningarlega Evrópu.


Þá er Ísland líka Ameríka... Grænland er eins og ég sagði, norðar, sunnar, austar ig vestar en Ísland...

Re: Er Grænland hluti af Ameríku eða Evrópu?

Sent: Fös 10. Jan 2025 23:36
af rapport
Templar skrifaði:Það var engin sem hvíslaði e-h að Trump, BNA hefur haft áhuga á Bandaríkjunum í nær 100 ár, ekkert með Trump að gera frekar en Huwai og Kína stefnan.
Trump nær árangri þó og ætlar sér ekki að leyfa heiminum að éta Bandaríska köku án þess að borga fyrir hana og ekkert að því.


Gott að BNA hafa áhuga á Bandaríkjunum...

Trump lýgur bara og ýkir út í eitt, hann nær engum árangri af viti.

Froðusnakkur.

Ótrúlegt hvað fólk virðist eiga auðvelt með að trúa honum og hreinlega trúa á hann.

Re: Er Grænland hluti af Ameríku eða Evrópu?

Sent: Fös 10. Jan 2025 23:36
af Manager1
Trump segir að það sé þjóðaröryggismál að USA eignist Grænland, en Danmörk er í NATO og USA er með herstöð í Thule á Grænlandi, því hefur USA talsvert aðgengi nú þegar að Grænlandi og þeir geta gert nánast allt sem þeir vilja þar hernaðarlega séð. Það er því auðvelt að sjá í gegnum þennann blekkingarleik og átta sig á því sem Trump sækist raunverulega eftir sem er auðvitað auðlindirnar í jörðu á Grænlandi, auðlindir sem Kínverjar eru nánast einir um að grafa eftir og USA þarfnast þess sárlega að vera sjálfbærir í öflun þessa eðalmálma.

Re: Er Grænland hluti af Ameríku eða Evrópu?

Sent: Lau 11. Jan 2025 01:35
af appel
Ekki vanmeta áhuga Trump á Grænlandi, hann hefur lýst þessu yfir áður. Hann er núna orðinn eldri og veit að hann þarf að skipta sköpum, og að Grænland sé í raun orðið hans fyrsta mál er ekki eitthvað til að hunsa. Grænland gæti vel fluttst yfir til BNA. Hví á eitthvað smáríki í Evrópu að eiga Grænland í N-Ameríku? Ég styð reyndar að grænlendingar eigi sig sjálfa. En þetta er n-ameríkuþjóð sem hefur verið heilaþvegin ef evópskri þjóð (dönsku), þetta eru inúítar. Þó grænlendingum líki við danmörku þá er þetta ekki þeirra þjóð né land eða tungumál. Grænland á bara að vera sjálfstætt.

Re: Er Grænland hluti af Ameríku eða Evrópu?

Sent: Lau 11. Jan 2025 02:05
af Viggi
Er þetta ekki bara 2025 útgáfan af mexíkógirðingunni. verður ekki neitt úr neinu

Re: Er Grænland hluti af Ameríku eða Evrópu?

Sent: Lau 11. Jan 2025 07:42
af Moldvarpan
rapport skrifaði:
Moldvarpan skrifaði:Landfræðilega Ameríku. Menningarlega Evrópu.


Þá er Ísland líka Ameríka... Grænland er eins og ég sagði, norðar, sunnar, austar ig vestar en Ísland...


https://www.visitreykjanes.is/is/stadur/bruin-milli-heimsalfa

Re: Er Grænland hluti af Ameríku eða Evrópu?

Sent: Lau 11. Jan 2025 08:11
af rostungurinn77
rapport skrifaði:
Þá er Ísland líka Ameríka... Grænland er eins og ég sagði, norðar, sunnar, austar ig vestar en Ísland...


Grænland liggur á ameríkuflekanum -> Er í Ameríku.

Hvort Ísland tilheyri Ameríku eða Evrasíu er siðan önnur spurning en það leiðir ekki af sér að Grænland tilheyri Evrópu landfræðilega.

Re: Er Grænland hluti af Ameríku eða Evrópu?

Sent: Lau 11. Jan 2025 12:06
af falcon1
Landfræðilega séð þá er svarið augljóst. Þ.e. Grænland er hluti af Ameríku.

Re: Er Grænland hluti af Ameríku eða Evrópu?

Sent: Lau 11. Jan 2025 12:18
af Trihard
Landfræðilega ætti Vatikanið að tilheyra Ítalíu

Re: Er Grænland hluti af Ameríku eða Evrópu?

Sent: Lau 11. Jan 2025 12:27
af GuðjónR
falcon1 skrifaði:Landfræðilega séð þá er svarið augljóst. Þ.e. Grænland er hluti af Ameríku.

Eða norður Ameríka hluti af Grænlandi.
Hluti af Íslandi tilheyrir líka NA flekanum.

Re: Er Grænland hluti af Ameríku eða Evrópu?

Sent: Lau 11. Jan 2025 15:07
af Henjo
Mynd

Þetta þýðir samt ekki að Trump hefur afsökun eða ástæðu til að eignast Grænland, þó svo sumir virðast halda það.

Re: Er Grænland hluti af Ameríku eða Evrópu?

Sent: Lau 11. Jan 2025 15:32
af falcon1
Henjo skrifaði:Mynd

Þetta þýðir samt ekki að Trump hefur afsökun eða ástæðu til að eignast Grænland, þó svo sumir virðast halda það.

Það er alveg rétt. :)

Re: Er Grænland hluti af Ameríku eða Evrópu?

Sent: Lau 11. Jan 2025 16:14
af olihar
Ég hér með stofna Pangaea og ætla mér að vera Forseti og eignast allt undirlendi jarðar.

location-continents-Earth.jpg
location-continents-Earth.jpg (214.23 KiB) Skoðað 2532 sinnum


Screenshot 2025-01-11 at 16.16.26.png
Screenshot 2025-01-11 at 16.16.26.png (1.32 MiB) Skoðað 2525 sinnum

Re: Er Grænland hluti af Ameríku eða Evrópu?

Sent: Lau 11. Jan 2025 19:35
af rapport
Moldvarpan skrifaði:
rapport skrifaði:
Moldvarpan skrifaði:Landfræðilega Ameríku. Menningarlega Evrópu.


Þá er Ísland líka Ameríka... Grænland er eins og ég sagði, norðar, sunnar, austar ig vestar en Ísland...


https://www.visitreykjanes.is/is/stadur/bruin-milli-heimsalfa


Man made turist attraction... eigum við ekki bara öll að pulla okkur í drasl?

Ameríka er heimsálfa sem Grænland hefur ekki talist til.

En ef Plútó er ekki lengur pláneta... þá getur þetta breyst líka.

En engir ættu að ráða þessu nema Grænlendingar.

En er Trump ekki að apa þetta eftir Pútín, að slá eign sinni á nágrannaríki?

Re: Er Grænland hluti af Ameríku eða Evrópu?

Sent: Lau 11. Jan 2025 20:24
af svanur08
Byrjað að djöflast í trump áður en hann tekur við sem forseti.