Síða 1 af 2

Sýn/Vodafone að rukka fyrir 30 ára gömlu @isl.is netföngin

Sent: Þri 07. Jan 2025 14:46
af Gemini
Ég fékk rukkun í heimabankann í dag fyrir 1529 kr frá Sýn.

Ég er ekki með neitt hjá þeim og var seinast með eitthvað vinnuinternet hjá þeim 2016. Eftir 20 mínútur í símanum við þau áðan kom í ljós að þau væru að senda mér rukkun útaf @isl.is netfangi sem ég fékk með internettengingu sem Íslandsbanki gaf mér í fermingargjöf 1994 =D>

Hvernig þau fengu nafn og kennitölu hjá mér tengda við þetta netfang eða hvað lét þau halda að þau mættu bara stofna þjónustu utan um það er algjörlega ósvarað.

Ef fleiri hérna muna eftir að hafa fengið @isl.is netfang á seinustu öld þá geta þeir væntanlega átt von á að þurfa að hanga í símanum til Sýn líka til að þau hætti að rukka sig.

Ef ég ætti að giska þá bað Íslandsbanki Sýn væntanlega um að hýsa þessi netföng fyrir sig en svo fékk einhver jólasveinn hjá Sýn núna þá snilldar hugmynd að rukka einstaklingana fyrir þetta. \:D/

Re: Sýn/Vodafone að rukka fyrir 30 ára gömlu @isl.is netföngin

Sent: Þri 07. Jan 2025 15:14
af Hizzman
fékk þetta líka tæpur 900kall, varan nefnist 'tölvupóstfang með neti' HVAÐA F**KING NETI, er ekki með neitt hjá þeim sem einstaklingur EN get auðveldlega fært frá þeim þjónustur sem eru á öðrum kennitölum, hef ekki notað þetta netfang í áratugi!!

LÁTUM ÞÁ FINNA HVERSU SLÆM HUGMYND ÞETTA ER

Re: Sýn/Vodafone að rukka fyrir 30 ára gömlu @isl.is netföngin

Sent: Þri 07. Jan 2025 15:41
af axyne
hmm ég ákvað að tjekka á þessu, á eitt gamalt netfang sem ég hef ekki notað síðan fyrir aldamót.
Fann þennan tölvupóst sem ég fékk 10 Des 2024
isl.is.png
isl.is.png (55.66 KiB) Skoðað 14367 sinnum


Ef ýtt er á segja upp Netfangi þá þarf maður að skrá kenntölu, þetta er nú meira ruglið.
isl.is2.png
isl.is2.png (48.82 KiB) Skoðað 14367 sinnum


Edit: Og já ég er með helvítis 1.529 kr rukkun frá Sýn í heimabankanum!!

Re: Sýn/Vodafone að rukka fyrir 30 ára gömlu @isl.is netföngin

Sent: Þri 07. Jan 2025 15:45
af olihar
Hvað missa þeir marga fastakúnna með þessu move-i…

Re: Sýn/Vodafone að rukka fyrir 30 ára gömlu @isl.is netföngin

Sent: Þri 07. Jan 2025 16:05
af Vaktari
Veit ekki betur en að síminn sé búinn að vera að rukka fyrir simnet netföng í nokkur ár.
En hvort að þetta er svo rétt move er annað mál.
Annars eflaust hægt að anda aðeins með nefinu og heyra bara í Vodafone varðandi rukkun á netfangi.


https://www.siminn.is/verdskrar/net

Re: Sýn/Vodafone að rukka fyrir 30 ára gömlu @isl.is netföngin

Sent: Þri 07. Jan 2025 16:08
af Gemini
Vaktari skrifaði:Veit ekki betur en að síminn sé búinn að vera að rukka fyrir simnet netföng í nokkur ár.
En hvort að þetta er svo rétt move er annað mál.
Annars eflaust hægt að anda aðeins með nefinu og heyra bara í Vodafone varðandi rukkun á netfangið.


https://www.siminn.is/verdskrar/net


Það er ekki alveg saman að líkja. Hér er verið að tala um eldgömul netföng í eigu þriðja aðila sem fólk bað aldrei um að þau þjónustuðu á einn eða neinn hátt. Fólk á ekki netföngin hjá @isl.is heldur á Íslandsbanki þetta lén.

Re: Sýn/Vodafone að rukka fyrir 30 ára gömlu @isl.is netföngin

Sent: Þri 07. Jan 2025 16:21
af brain
Gerðist sama hjá mér. nefang frá @isl.is

Hef aldrei verið með neitt í gangi

Eru þeir nokkuð að fara á hausinn ?

Re: Sýn/Vodafone að rukka fyrir 30 ára gömlu @isl.is netföngin

Sent: Þri 07. Jan 2025 16:50
af Vaktari
Gemini skrifaði:
Vaktari skrifaði:Veit ekki betur en að síminn sé búinn að vera að rukka fyrir simnet netföng í nokkur ár.
En hvort að þetta er svo rétt move er annað mál.
Annars eflaust hægt að anda aðeins með nefinu og heyra bara í Vodafone varðandi rukkun á netfangið.


https://www.siminn.is/verdskrar/net


Það er ekki alveg saman að líkja. Hér er verið að tala um eldgömul netföng í eigu þriðja aðila sem fólk bað aldrei um að þau þjónustuðu á einn eða neinn hátt. Fólk á ekki netföngin hjá @isl.is heldur á Íslandsbanki þetta lén.



Svosem ekkert að líkja því saman bara að benda á þetta.
En svo er auðvitað allt önnur spurning hvernig isl.is netföng fara í rukkun sem íslandsbanki á.
Þá ætti nú kannski frekar bara rukkun að fara á íslandsbanka. Hefði eflaust mátt athuga það betur.
En efast ekki um að það sé mikið mál að þessu sé sagt upp og tekið úr rukkun.

Re: Sýn/Vodafone að rukka fyrir 30 ára gömlu @isl.is netföngin

Sent: Þri 07. Jan 2025 16:54
af olihar
Svo mætti kannski reyndar varpa upp spurningunni, Afhverju er almenningur með netföng tengt banka, býður það ekki hættunni heim á að nýta þessi netföng i scam. Þykjast vera starfsmaður bankans t.d. Þetta redirectar beint á alvöru síðu bankans.

Afhverju er þessu ekki bara lokað.

Re: Sýn/Vodafone að rukka fyrir 30 ára gömlu @isl.is netföngin

Sent: Þri 07. Jan 2025 16:55
af dadik
Jesús kristur hvað getur verið mikið drama í ykkur drengir.

Það er takki þarna í póstinum til að segja upp netfanginu ef það er ekki áhugi fyrir því lengur. Tók ykkur lengri tíma að tuða yfir þessu hérna heldur en að smella á takkann.

Re: Sýn/Vodafone að rukka fyrir 30 ára gömlu @isl.is netföngin

Sent: Þri 07. Jan 2025 17:01
af Gemini
dadik skrifaði:Jesús kristur hvað getur verið mikið drama í ykkur drengir.

Það er takki þarna í póstinum til að segja upp netfanginu ef það er ekki áhugi fyrir því lengur. Tók ykkur lengri tíma að tuða yfir þessu hérna heldur en að smella á takkann.


Þú ert að tala um póst sem var sendur á netfang sem margir hafa ekki notað í marga áratugi. Hvernig á fólk að ýta á þann link, það fólk er pínt í að þurfa að standa í uppsögn á einhverju sem það bað aldrei um. Vill líka benda á að hringja til Sýn var ömurlegt, fyrst þarftu að bíða í biðröð til að fá þjónustufulltrúa og svo segir hann strax ég sendi þig á gjaldkera og þar þarftu að bíða svo aftur í nýrri biðröð í enn lengri tíma væntanlega afþví svona margir eru að segja upp póstföngum núna.

Re: Sýn/Vodafone að rukka fyrir 30 ára gömlu @isl.is netföngin

Sent: Þri 07. Jan 2025 17:09
af halipuz1
dadik skrifaði:Jesús kristur hvað getur verið mikið drama í ykkur drengir.

Það er takki þarna í póstinum til að segja upp netfanginu ef það er ekki áhugi fyrir því lengur. Tók ykkur lengri tíma að tuða yfir þessu hérna heldur en að smella á takkann.



Heyrðu gamli, þú skuldar mér einmitt 10.000 krónur fyrir þjônustu sem einhver annar keypti fyrir þína hönd.

Hvernig myndirðu taka því?
Held það sé enginn að tuða hér nema þú ert að tuða yfir “tuðinu”

Re: Sýn/Vodafone að rukka fyrir 30 ára gömlu @isl.is netföngin

Sent: Þri 07. Jan 2025 17:34
af axyne
Gemini skrifaði:
dadik skrifaði:Jesús kristur hvað getur verið mikið drama í ykkur drengir.

Það er takki þarna í póstinum til að segja upp netfanginu ef það er ekki áhugi fyrir því lengur. Tók ykkur lengri tíma að tuða yfir þessu hérna heldur en að smella á takkann.


Þú ert að tala um póst sem var sendur á netfang sem margir hafa ekki notað í marga áratugi. Hvernig á fólk að ýta á þann link, það fólk er pínt í að þurfa að standa í uppsögn á einhverju sem það bað aldrei um. Vill líka benda á að hringja til Sýn var ömurlegt, fyrst þarftu að bíða í biðröð til að fá þjónustufulltrúa og svo segir hann strax ég sendi þig á gjaldkera og þar þarftu að bíða svo aftur í nýrri biðröð í enn lengri tíma væntanlega afþví svona margir eru að segja upp póstföngum núna.


Ef hefði ekki verið fyrir þenna póst frá Gemini hefði ég ekki haft hugmynd um þessa rukkun, nota lítið sem ekkert bankaþjónustu á Íslandi og því einga ástæðu til að opna heimabankann. Þetta hefði eflaust endan í innheimtu hjá mér með tilheyrandi veseni. :mad

Ég sé alveg fyrir mér að það sé rosalegur fjöldi af fólki sem á eftir að bara borga því það veit ekki betur. þessum netföngum var sturtað út á sínum tíma.
Algjörlega siðlaust finnst mér að gefa eingöngu 3 vikur og svo bara rukkun án nokkurns samþykkis á breyttum skilmálum.

Re: Sýn/Vodafone að rukka fyrir 30 ára gömlu @isl.is netföngin

Sent: Þri 07. Jan 2025 22:55
af rostungurinn77
Þetta er frábært tekjumódel.

Þeir sem eru einna líklegastir til að greiða er elsta kynslóðin. Sami markhópur og er með myndlykla og borgar leigu af beinum.

Get alveg ímyndað mér að þetta sé tekjulind upp á tugi milljóna á ári.


olihar skrifaði:Svo mætti kannski reyndar varpa upp spurningunni, Afhverju er almenningur með netföng tengt banka, býður það ekki hættunni heim á að nýta þessi netföng i scam. Þykjast vera starfsmaður bankans t.d. Þetta redirectar beint á alvöru síðu bankans.

Afhverju er þessu ekki bara lokað.


Þetta eru netföng sem bankarnir byrjuðu með líklegast árið 1997 eða 1998.

Búnaðarbankinn sálugi var með binet.is. Það er vonandi allt horfið í óminnið.

Minnist þess ekki að Landsbankinn hafi boðið upp á þetta.

Re: Sýn/Vodafone að rukka fyrir 30 ára gömlu @isl.is netföngin

Sent: Þri 07. Jan 2025 23:16
af Televisionary
Þetta virðist vera eitthvað örþrifaráð til að búa til einhverjar tekjur. Alveg óháð því hvort að fólk hafi fengið auðvelda leið til að segja þessu upp.

Re: Sýn/Vodafone að rukka fyrir 30 ára gömlu @isl.is netföngin

Sent: Þri 07. Jan 2025 23:26
af natti
Þannig að í framtíðinni, eftir að vaktin er seld inn í eitthvað fyrirtæki, sem rennur inn í fyrirtæki, sem rennur inn í gagnaveituna, sem rennur inn í orkuveituna, og vaktin löngu orðin að draugabæ, þá eftir 20 ár bætist við á rafmagnsreikninginn okkar:
"5,900kr - Notendagjald fyrir aðgengi að Vaktin.is"

Og einhver snillingurinn verður bara:
... skrifaði:Jesús kristur hvað getur verið mikið drama í ykkur drengir.
segið bara upp áskriftinni sem þið fenguð frítt fyrir nokkrum áratugum og gerðuð aldrei ráð fyrir að greiða fyrir né voru skilmálar þess efnis

Re: Sýn/Vodafone að rukka fyrir 30 ára gömlu @isl.is netföngin

Sent: Mið 08. Jan 2025 05:09
af Climbatiz
ætli þetta hafi verið ástæða bankana að bjóða upp á dialup þjónustu fyrir 30 árum, það að svo þegar allir löngu búnir að gleyma þessu að selja þessar uppl. til 3ja aðila sem getur svo mokað inn

var einmitt líka með dialup þjónustu bankana, hef þó aldrei verið í neinni sjónvarpsþjónustu, spurning hvort mar sé með eitthvað í hb um þetta ;//

Re: Sýn/Vodafone að rukka fyrir 30 ára gömlu @isl.is netföngin

Sent: Mið 08. Jan 2025 10:56
af GuðjónR
Ég fékk einhvern tímann rukkun í heimabanka frá Vodafone fyrir eitthvað netfang, man ekki hvort það var isl.is eða visir.is

Ég hringdi bara í þá og reikningurinn var felldur niður og netfanginu lokað, þetta var eitthvað sem ég notaði hvort eð er ekkert.

Re: Sýn/Vodafone að rukka fyrir 30 ára gömlu @isl.is netföngin

Sent: Mið 08. Jan 2025 11:18
af worghal
GuðjónR skrifaði:Ég fékk einhvern tímann rukkun í heimabanka frá Vodafone fyrir eitthvað netfang, man ekki hvort það var isl.is eða visir.is

Ég hringdi bara í þá og reikningurinn var felldur niður og netfanginu lokað, þetta var eitthvað sem ég notaði hvort eð er ekkert.

ég var einmitt að spá í þetta fría email dæmi sem visir.is bauð upp á í kringum 2000-2007 og ætli einhver fari bráðlega að reyna að rukka fyrir þau :lol:

Re: Sýn/Vodafone að rukka fyrir 30 ára gömlu @isl.is netföngin

Sent: Mið 08. Jan 2025 11:39
af GuðjónR
worghal skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Ég fékk einhvern tímann rukkun í heimabanka frá Vodafone fyrir eitthvað netfang, man ekki hvort það var isl.is eða visir.is

Ég hringdi bara í þá og reikningurinn var felldur niður og netfanginu lokað, þetta var eitthvað sem ég notaði hvort eð er ekkert.

ég var einmitt að spá í þetta fría email dæmi sem visir.is bauð upp á í kringum 2000-2007 og ætli einhver fari bráðlega að reyna að rukka fyrir þau :lol:


Ég er nokkuð viss um að þetta var eitthvað @visir.is netfang sem ég var með.

Kannski á maður eftir að fá rukkun frá þeim vegna isl.is netfangs sem fylgdi með heimabankanum á síðustu öld...
:popeyed

Re: Sýn/Vodafone að rukka fyrir 30 ára gömlu @isl.is netföngin

Sent: Mið 08. Jan 2025 12:09
af rostungurinn77
Verandi ekki skráður fyrir svona netfangi þá skiptir þetta mig engu máli.

Spurningin er bara hvort þið þurfið á annað borð að standa í að aflýsa þessu og hvort vodafone lokar þessu ekki bara ef þið borgið ekki?

Ég myndi halda að það þyrfti að eiga sér stað skilmálabreyting og að þið þyrftuð að samþykkja hana með einum eða öðrum hætti.

Dæmi um slíkt samþykki væri að greiða reikninginn.

Sé reikningur ekki greiddur þá er það vodafone að sækja greiðsluna í gegnum dómstóla og mér ólöglærðum þætti ólíklegt að sú leið yrði farin þar sem breytingin er einhliða á nær 30 ára gömlum fríum netföngum.

Þ.e.a.s. Vodafone treystir á fáfræði fólks en ekki lögin.

Re: Sýn/Vodafone að rukka fyrir 30 ára gömlu @isl.is netföngin

Sent: Mið 08. Jan 2025 13:14
af gilli666
Og fannst þeim þetta bara eðlilegt? Var engin þarna í vodafone sem stóð upp og sagði "bíddu nú við".

Ég reyndar ætti ekki að vera að hneykslast á þessu, mér finnst það löngu augljóst að vodafone og síminn elska að rukka fólk fyrir fáfræði þeirra, það er nánast eins og það sé business modelið þeirra.

Re: Sýn/Vodafone að rukka fyrir 30 ára gömlu @isl.is netföngin

Sent: Mið 08. Jan 2025 14:13
af worghal
gilli666 skrifaði:Og fannst þeim þetta bara eðlilegt? Var engin þarna í vodafone sem stóð upp og sagði "bíddu nú við".

Ég reyndar ætti ekki að vera að hneykslast á þessu, mér finnst það löngu augljóst að vodafone og síminn elska að rukka fólk fyrir fáfræði þeirra, það er nánast eins og það sé business modelið þeirra.

ég held að þarna var einhver sem stóð upp og sagði "bíddu nú við, af hverju erum við ekki að rukka fyrir þetta?"

Re: Sýn/Vodafone að rukka fyrir 30 ára gömlu @isl.is netföngin

Sent: Mið 08. Jan 2025 16:22
af mikkimás
Eina sem ég les úr þessum þræði er að Sýn/Vodafone vilji ekki viðskipti mín.

Tilfinningin er gagnkvæm.

Re: Sýn/Vodafone að rukka fyrir 30 ára gömlu @isl.is netföngin

Sent: Mið 08. Jan 2025 18:30
af rapport
Þetta er röng aðferð.

Hefðu átt að senda pósta á póstföngin til að tilkynna um lokun ef fólk mundi ekki skrá sig í áskrift.

En ekki hnoða reikningum á fólk.

Þetta bíður uppá að óvart verði aðilaskipti og einhver komist í gögn sem hann á ekki að komast í.

Einhver sem bjó til póst fyrir fyrrverandi o.þ.h.