Síða 1 af 2
Sundabraut
Sent: Fös 20. Des 2024 17:43
af rapport

Er bara verið að stytta leiðina fyrir fólk sem býr í 101 upp í sumarbústað?
Re: Sundabraut
Sent: Fös 20. Des 2024 17:53
af halipuz1
Haha, það eru u.þ.b 7-10% af öllu Akranesi sem vinnur í Reykjavík síðast þegar ég vissi. Rosalegt hvað fólk gleymir alltaf skaganum :/
Re: Sundabraut
Sent: Fös 20. Des 2024 18:55
af rapport
halipuz1 skrifaði:Haha, það eru u.þ.b 7-10% af öllu Akranesi sem vinnur í Reykjavík síðast þegar ég vissi. Rosalegt hvað fólk gleymir alltaf skaganum :/
En er það fólk sem vinnur í miðbænum?
Vinn sjálfur í KEF og tengi við að hafa greiðfæran og góðan veg í vinnuna, en snemma á morgnana er 1/4 af tímanum innabæjartraffík, seinnipartinn líklega um 1/3 og á slæmum tíma alveg 1/2 upp í 2/3.
Þetta tengist líka borginni á versta stað, var að vinna í Holtagörðum 2017-2018 og þar er traffíkin einna verst í bænum á álagstímum (það er kannski hugmyndin, að veita íbúum Mosó, Grafarvogi og Akranesi framhjá... það meikar sens).
Re: Sundabraut
Sent: Fös 20. Des 2024 18:59
af Danni V8
Þetta er alveg eina vitið að mínu mati. Umferðin á núverandi vegi getur verið alveg svakaleg. Ef allir frá Akranesi og Kjalarnesi hafa aðra leið til að fara sem er ekki að drukkna í hringtorgum þá léttir þetta alveg gríðarlega á þeim sem og íbúum Mosó.
Hefði samt ekki verið nauðsyn ef vegakerfið hefði verið hannað rétt til að byrja með... 2+2 alla leið þarna milli og engin hringtorg, bara mislæg gatnamót. Já já, kostar meira, en hvað er þessi Sundabraut að fara að kosta? Hefði verið óþarfa framkvæmd ef núverandi vegir hefðu verið rétt hannaðir.
En finnst samt að þetta ætti að tengjast einhvernvegin annarsstaðar við borgarmegin. Ekki góður staður þar sem þetta er fyrirhugað núna nema ef miklar breytingra verða gerðar þar.
Re: Sundabraut
Sent: Fös 20. Des 2024 18:59
af agnarkb
Finnst eins og ég eigi minningu á því að hafa heyrt um Sundabraut í fyrsta skipti nýkreistur út úr mömmu seint á níunda áratug síðustu aldar, svo aftur mikið um fermingu og svo töluvert núna síðustu misseri. Þykir það líklegt að ég hvíli í kaldri gröf og saddur lífdagal í hárri elli áður en einhver meiriháttar hreyfing á þessu á sér stað.
Re: Sundabraut
Sent: Fös 20. Des 2024 23:07
af olihar
agnarkb skrifaði:Finnst eins og ég eigi minningu á því að hafa heyrt um Sundabraut í fyrsta skipti nýkreistur út úr mömmu seint á níunda áratug síðustu aldar, svo aftur mikið um fermingu og svo töluvert núna síðustu misseri. Þykir það líklegt að ég hvíli í kaldri gröf og saddur lífdagal í hárri elli áður en einhver meiriháttar hreyfing á þessu á sér stað.
Sundabrautin Fór fyrst formlega á pappír 1984 ef ég man rétt, en hafði verið til umræðu einhverjum tuga ára á undan.
Re: Sundabraut
Sent: Lau 21. Des 2024 12:06
af Omerta
Fyrst sett fram 1975, "staðfest" 1985. Ekki held ég að það séu sambærilegar aðstæður í dag. Eitthvað þarf vissulega að gera í allri þessari umferð á háannatíma en ég efast um að Sæbrautin geti tekið við henni í núverandi mynd.
Re: Sundabraut
Sent: Lau 21. Des 2024 12:14
af GuðjónR
Ég efast um að þessi Sundabraut verði nokkurn tíma að veruleika.
Re: Sundabraut
Sent: Lau 21. Des 2024 15:10
af halipuz1
GuðjónR skrifaði:Ég efast um að þessi Sundabraut verði nokkurn tíma að veruleika.
Það er einmitt sem ég hef hugsað, það er einhverjir samt að vinna við þessa pípudrauma, skatt peningarnir okkar sem fara í það að halda einhverjum nokkrum aðilum í vinnu.
Sem skagamaður þá myndi ég alveg vera til í þetta en þetta gerist örugglega ekki á mínum tíma. Bara ef það væru almennilegar almenningssamgöngur, þá myndi ég sleppa einkabílnum tbh.
Re: Sundabraut
Sent: Lau 21. Des 2024 15:38
af Hjaltiatla
Með því að auka fjárfestingu í samgöngum og hefja kraftmiklar framkvæmdir um land allt. Ríkisstjórnin mun rjúfa kyrrstöðu í jarðgangagerð og vinna á viðhaldsskuld í vegakerfinu. Ráðist verður í mikilvægar úrbætur í samræmi við samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins til að greiða fyrir umferð á stofnvegum, efla almenningssamgöngur og styðja við fjölbreytta ferðamáta. Hafist verður handa við framkvæmd Sundabrautar og verkefnið fjármagnað með innheimtu veggjalda.
Allir punktar stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnarhttps://www.visir.is/g/20242667084d/allir-punktar-stefnu-yfir-lysingar-rikis-stjornarinnar
Re: Sundabraut
Sent: Lau 21. Des 2024 16:06
af thorhs
Er ekki stór hluti vandans á Sæbraut slaufan við Miklubraut? Hvort sem er á morgnanna eða kvöldin? Á morgnana hægir á umferð frá tengi og að endurvinnslunni og á kvöldin frá Holtagörðum að slaufunni.
Ef þú gætir tekið stóran hluta af þeirri umferð úr slaufunni og skorið beint inn á Sæbraut með mislægum gatnamótum, myndi það ekki létta mikið á? Það er ekki eins og þessi leið væri hrein viðbót við núverandi umferð, hún tekur til sín umferð frá Ártúnsbrekku og þar um kring.
Eitt af stóru vandamálunum er að það eru bara tvær leiðir norður/suður og tvær leiðir austur/vestur. Við þurfum að fjölga leiðunum og dreifa álagi. Td með Sundabraut, ofanbyggðavegi, brú yfir Skerjafjörð og til Álftanes/álver.
Annar möguleiki væri að fara î alvöru þéttingu byggðar með því að stauja yfir núverandi byggð og byggja hærra/þéttar. Þá væri meiri forsendur fyrir bílakaupum lífsstíl.
Re: Sundabraut
Sent: Lau 21. Des 2024 16:12
af halipuz1
rapport skrifaði:halipuz1 skrifaði:Haha, það eru u.þ.b 7-10% af öllu Akranesi sem vinnur í Reykjavík síðast þegar ég vissi. Rosalegt hvað fólk gleymir alltaf skaganum :/
En er það fólk sem vinnur í miðbænum?
Vinn sjálfur í KEF og tengi við að hafa greiðfæran og góðan veg í vinnuna, en snemma á morgnana er 1/4 af tímanum innabæjartraffík, seinnipartinn líklega um 1/3 og á slæmum tíma alveg 1/2 upp í 2/3.
Þetta tengist líka borginni á versta stað, var að vinna í Holtagörðum 2017-2018 og þar er traffíkin einna verst í bænum á álagstímum (það er kannski hugmyndin, að veita íbúum Mosó, Grafarvogi og Akranesi framhjá... það meikar sens).
Fyrir okkur "landsbyggða" fólk þá er bara geggja að fá hvaða styttingu sem er, en þetta gerist aldrei held ég nema bara til að halda einhverjum örfáum vinum í vinnu við að dreyma þetta
Re: Sundabraut
Sent: Lau 21. Des 2024 16:18
af depill
halipuz1 skrifaði:
Fyrir okkur "landsbyggða" fólk þá er bara geggja að fá hvaða styttingu sem er, en þetta gerist aldrei held ég nema bara til að halda einhverjum örfáum vinum í vinnu við að dreyma þetta
Enga trú að Sundabrautin verði að veruleika, Reykjavík er búin að breytast svo mikið síðan við ræddum þetta fyrst. Tvöföldun Hvalfjarðagangana finnst mér mikið raunhæfara og betri tenging frá Reykjavík til Suðurlands, enda er alltof mikið lokað þar.
Ég bara skil ekki afhverju við getum ekki fengið þessa hérna framkvæmd. Hún er ekki það dýr, er með mikilli umferð og myndi stytta leiðina heilan helling.

- CleanShot 2024-12-21 at 16.16.40.png (100.57 KiB) Skoðað 3702 sinnum
Re: Sundabraut
Sent: Lau 21. Des 2024 16:55
af halipuz1
depill skrifaði:halipuz1 skrifaði:
Fyrir okkur "landsbyggða" fólk þá er bara geggja að fá hvaða styttingu sem er, en þetta gerist aldrei held ég nema bara til að halda einhverjum örfáum vinum í vinnu við að dreyma þetta
Enga trú að Sundabrautin verði að veruleika, Reykjavík er búin að breytast svo mikið síðan við ræddum þetta fyrst. Tvöföldun Hvalfjarðagangana finnst mér mikið raunhæfara og betri tenging frá Reykjavík til Suðurlands, enda er alltof mikið lokað þar.
Ég bara skil ekki afhverju við getum ekki fengið þessa hérna framkvæmd. Hún er ekki það dýr, er með mikilli umferð og myndi stytta leiðina heilan helling.
CleanShot 2024-12-21 at 16.16.40.png
Finnst þetta bara mikið raunhæfara en sundabrautin imo. þetta væri mjög flott viðbót í hringveginn.
Re: Sundabraut
Sent: Lau 21. Des 2024 20:29
af rostungurinn77
depill skrifaði:
Ég bara skil ekki afhverju við getum ekki fengið þessa hérna framkvæmd. Hún er ekki það dýr, er með mikilli umferð og myndi stytta leiðina heilan helling.
CleanShot 2024-12-21 at 16.16.40.png
Sveitarfélögin hafa skipulagsvaldið.
Þessi krókur verður þarna um komandi framtíð til þess eins að halda lífi í hraðahindruninni sem er Blönduós.
Re: Sundabraut
Sent: Lau 21. Des 2024 21:36
af Manager1
depill skrifaði:Ég bara skil ekki afhverju við getum ekki fengið þessa hérna framkvæmd. Hún er ekki það dýr, er með mikilli umferð og myndi stytta leiðina heilan helling.
CleanShot 2024-12-21 at 16.16.40.png
Þetta svæði er tricky að leggja veg í gegnum, ekki mikið pláss fyrir veg vegna landslags og sveitabæja. Það eru a.m.k. 3-4 bæjir þarna á leiðinni sem myndu fá þjóðveginn nánast um hlaðið hjá sér og í gegnum slatta af túnum. Ný brú yfir Blöndu yrði örugglega mjög stór hluti af kostnaðinum og gerir þessa framvkæmd talsvert dýra m.v. lengd vegar.
En ég er samt sammála, væri næs að geta sloppið við Blönduós þegar maður fer þarna um.
Re: Sundabraut
Sent: Lau 21. Des 2024 21:52
af rostungurinn77
Re: Sundabraut
Sent: Lau 21. Des 2024 23:10
af Oddy
Er þetta ekki að hluta byggðamál? Án allrar umferðar um Blönduós myndi hann sennilegast missa stórann hluta af tekjum af ferðamönnum og missa fólk með fasta búsetu. Er peningar ekki stór hluti af þessari pólitík?
Re: Sundabraut
Sent: Lau 21. Des 2024 23:52
af rostungurinn77
Þetta er að öllu leyti byggðamál og ekkert annað.
Hringvegurinn væri ekki í gegnum Blönduós ef hagkvæmni réði för.
Re: Sundabraut
Sent: Sun 22. Des 2024 09:32
af GullMoli
Miðað við hvað Sæbrautin er mikill umferðartappi, þá skil ég ekki hvernig þetta bætir nokkurn skapaðan hlut á álagstímum. Held að minnsta umferðin sé að koma frá Skaganum og Kjalarnesi… Þetta kannski ýtir Mosó í að keyra meira í gegnum Grafarvoginn, sem þolir nú ekkert mikið meira umferðarflæði í núverandi mynd.
Re: Sundabraut
Sent: Sun 22. Des 2024 20:30
af rapport
GullMoli skrifaði:Miðað við hvað Sæbrautin er mikill umferðartappi, þá skil ég ekki hvernig þetta bætir nokkurn skapaðan hlut á álagstímum. Held að minnsta umferðin sé að koma frá Skaganum og Kjalarnesi… Þetta kannski ýtir Mosó í að keyra meira í gegnum Grafarvoginn, sem þolir nú ekkert mikið meira umferðarflæði í núverandi mynd.
Líka traffík frá Sundahöfn út á land... og líklega styttra fyrir íbúa Mosó að fara þessa leið + Kjalarnes er líklega næsta uppbyggingarsvæði RVK
Re: Sundabraut
Sent: Sun 22. Des 2024 20:50
af einarhr
GullMoli skrifaði:Miðað við hvað Sæbrautin er mikill umferðartappi, þá skil ég ekki hvernig þetta bætir nokkurn skapaðan hlut á álagstímum. Held að minnsta umferðin sé að koma frá Skaganum og Kjalarnesi… Þetta kannski ýtir Mosó í að keyra meira í gegnum Grafarvoginn, sem þolir nú ekkert mikið meira umferðarflæði í núverandi mynd.
Mestu tafirnar á Sæbrautinni eru á milli Súðarvogs og Holtsvegar, ég held að Sundabrautin myndi losa aðeins um þá teppu og Einnig muni Sæbrautarstokkurinn hjálpa mikið til.
Re: Sundabraut
Sent: Sun 22. Des 2024 21:18
af GuðjónR
halipuz1 skrifaði:GuðjónR skrifaði:Ég efast um að þessi Sundabraut verði nokkurn tíma að veruleika.
Það er einmitt sem ég hef hugsað, það er einhverjir samt að vinna við þessa pípudrauma, skatt peningarnir okkar sem fara í það að halda einhverjum nokkrum aðilum í vinnu.
Sem skagamaður þá myndi ég alveg vera til í þetta en þetta gerist örugglega ekki á mínum tíma. Bara ef það væru almennilegar almenningssamgöngur, þá myndi ég sleppa einkabílnum tbh.
Blautur draumur eins og borgarlínan.
Re: Sundabraut
Sent: Sun 22. Des 2024 21:55
af g0tlife
Það er búið að lofa að gera hitt og þetta. Aldrei heyrt um jafn marga stokka og seinustu ár. Eftir 10 ár verðum við en þá að heyra þessi loforð og ekkert hefur verið gert.
Re: Sundabraut
Sent: Þri 24. Des 2024 09:33
af Hauxon
Ég flutti upp á Akranes 2008, fékk lóð og byggði þar hús eftir að yfirlýsing kom frá ríkisstjórn um að peningar fyrir sölu Símans yrði notaðir í Sundabraut. Svo hrundi Ísland og Símapeningarnir “gufuðu upp”.
Á meðan ég var að byggja var í staðinn bætt 10-15 hringtorgum í leiðina frá Grafarvogi og í gegnum Mosó. Þessi auka hringtorg bæta 5-10 mín við aksturstímann auk þess að valda mengun og miklu sliti á bifreiðum sem þurfa að aka þarna í gegn. Ekki hefur ástandið skránað við ný íbúðahverfi með mörg þúsund íbúum sem hefur verið bætt inn án ráðstafana í gatnakerfinu. Gott dæmi um þá heimsku er litla hringtorgið við Bauhaus sem er nánast ófært á milli 7:30 og 8:30 á morgnanna. Þið getið rétt ímyndað ykkur hvernig það væri ef sett yrðu 10-12 auka hringtorg á Reykjanesbrautina. Þarna hefur skammsýni og skítamix verið meðalið og niðurstaðan er viðbjóðslegt umferðaröngþveiti sem íbúar austan Ártúnsbrekku og raunar borgin öll súpa seiðið af með stíflum sem ná út á Sæbraut og Reykjanesbrautina. Maður getur rétt ímyndað sér hversu mikið það myndi létta á að reyna að losa þessa stíflu.
Sundabraut er ekki lausn allra vandamála í höfuðborginni en myndi létta verulega á umferðinni austur eftir þar sem íbúar í Grafarvogi, Kjalarnesi, Akranesi og Borgarnesi þurfa ekki að aka daglega í 15-30 mín í öfuga átt í gegnum fjölmörg íbuðahverfi til að komast milli heimilis og vinnu. Þá eru ótalin önnur umferð ferðamanna og Íslendinga sem þurfa að fara þessa heimskulegu leið á för sinni norður, Vestfirði, Snæfellsnes. Að tala um að nær væri að leggja einhvern vegstubb við Svínavatn jaðrar við heimsku (afsakið), það er ekkert hægt að benda annað. Það þarf bara að klára þetta helvíti og hana nú! ….sorrý rantið og gleðileg jól!
