Síða 1 af 1
Orkuverð
Sent: Þri 17. Des 2024 11:02
af rapport
https://www.visir.is/g/20242664920d/ekk ... -virkjunarMér þykir þetta svolítið ýkt, er kominn "orkuskortur" þegar allir eru að fá þá orku sem þeir þurfa?
Þó að verið sé að braska með einhvern "orkukvóta" þá jafngildir það ekki orkuskorti OG það er kerfi "millilag" sem Landsvirkjun kom á og er algjörlega þeim að kenna.
Það verður ekki "agúrkuskortur" ef að grænmetisbændur mundu geta ræktað 100% af þörfinni en búa til kvótakerfi sem selur bara 80% á uppsprengdu verði og henda hinum 20%.
Af hverju er verið að leyfa Landsvirkjun að koma á OPEC innanlands?
Re: Orkuverð
Sent: Þri 17. Des 2024 11:36
af littli-Jake
Var ekki einhver fiskvinnsla fyrir vestan sem þurfti að nota olíuknúnar rafstöðvar í byrjun árs til að halda vinnslu gangandi? Eða er ég að rugla?
Re: Orkuverð
Sent: Þri 17. Des 2024 11:37
af rostungurinn77
Hér hefur ekki verið standsett nein ný virkjun í hvað 15-16 ár?
Á sama tíma hefur gagnaverum fjölgað.
Hér er að spretta upp landeldi úti um allt sem er bransi sem þarf raforku.
Á sama tíma er verið að rafvæða bílaflotann.
Orka_inn breytan hefur staðið í stað.
Orka_út breytan hefur vaxið.
Veit svo sem ekki hvað nákvæmlega er flókið við þetta.
Re: Orkuverð
Sent: Þri 17. Des 2024 11:38
af rostungurinn77
littli-Jake skrifaði:Var ekki einhver fiskvinnsla fyrir vestan sem þurfti að nota olíuknúnar rafstöðvar í byrjun árs til að halda vinnslu gangandi? Eða er ég að rugla?
Fyrir austan reyndar. Það er árlegt.
Finnst reyndar eins og dreifikerfinu sé um að kenna þar að hluta.
Re: Orkuverð
Sent: Þri 17. Des 2024 12:01
af GuðjónR
Var þetta ekki svolítið fyrirsjáanlegt allt saman?
Mín tilfinning er sí að þá sé viljandi verið að búa til skort og auka eftirspurn til þess að hækka verð.
Svo hefur verið komið á orkumarkaði þar sem rafmagn er keypt og selt líkt og hver önnur vara, sem veldur sveiflum í verði.
Þegar álverið í Straumsvík hótaði að hætta starfsemi og orkusamningurinn við það rann út, var tækifæri til staðar til að nýta orkuna fyrir önnur verkefni, en það var ekki gert. Þá hefði verið næg orka fyrir rafbílana og okkur næstu árin að minnsta kosti á verði sem er margfalt það sem álverið greiðir fyrir það. En það var ekki gert, líklega vegna þess að markaðurinn gerir það arðbærara að selja orku í skorti.
Fullyrðingin um að öll orka á Íslandi sé 100% endurnýjanleg er villandi, vatnsdropinn sem rennur í gegnum virkjunina rennur bara einu sinni þar í gegn svo erum við háð nýju vatni, ekkert öruggt að það verði alltaf nægt vatn hérna eins og dæmin hafa sýnt með uppistöðulónin okkar.
Það þarf stöðugt að bora nýjar holur fyrir jarðvarmavirkjanir þar sem holur „deyja“ með tímanum og úr þeim kemur ekki bara vatnsgufa heldur einnig ýmis mengandi efni. Brennisteinsvetni (H₂S) er stór hluti þess sem losnar frá jarðvarmavirkjunum og hefur áhrif á heilsu og loftgæði. Þessi gaslosun krefst hreinsibúnaðar til að draga úr áhrifum á umhverfið, en það er kostnaðarsamt og hefur áhrif á heildarhagkvæmni virkjana. Að auki losnar koltvíoxíð (CO₂), þó í minna mæli en frá jarðefnaeldsneyti, sem eykur kolefnisspor orkuframleiðslunnar. Þetta sýnir að „græna“ orkan okkar er ekki alveg laus við umhverfisáhrif og kannski ekki eins græn og margir fullyrða.
Re: Orkuverð
Sent: Þri 17. Des 2024 12:07
af GuðjónR
Afsakið double post:
https://www.visir.is/g/20242665048d/ver ... a-einu-ariÁ einu ári eða frá því í október í fyrra til dagsins í dag hefur verð á raforku hjá smásölum hækkað á bilinu 9-37%.
Re: Orkuverð
Sent: Þri 17. Des 2024 12:09
af littli-Jake
rostungurinn77 skrifaði:littli-Jake skrifaði:Var ekki einhver fiskvinnsla fyrir vestan sem þurfti að nota olíuknúnar rafstöðvar í byrjun árs til að halda vinnslu gangandi? Eða er ég að rugla?
Fyrir austan reyndar. Það er árlegt.
Finnst reyndar eins og dreifikerfinu sé um að kenna þar að hluta.
Ahhh. Köllum þetta 50% rugl
Re: Orkuverð
Sent: Þri 17. Des 2024 13:08
af brain
rapport skrifaði:https://www.visir.is/g/20242664920d/ekki-benda-a-mig-segir-for-stjori-lands-virkjunar
Mér þykir þetta svolítið ýkt, er kominn "orkuskortur" þegar allir eru að fá þá orku sem þeir þurfa?
Þó að verið sé að braska með einhvern "orkukvóta" þá jafngildir það ekki orkuskorti OG það er kerfi "millilag" sem Landsvirkjun kom á og er algjörlega þeim að kenna.
Það verður ekki "agúrkuskortur" ef að grænmetisbændur mundu geta ræktað 100% af þörfinni en búa til kvótakerfi sem selur bara 80% á uppsprengdu verði og henda hinum 20%.
Af hverju er verið að leyfa Landsvirkjun að koma á OPEC innanlands?
Það eru skammtanir í gangui víða um land hjá stórnotendum, það hjálpar ekki að dreikikerfið hefur ekki heldur verið stækkað og endubætt.
Svo bæði það vantar að virkja og laga dreifikerfið.
Re: Orkuverð
Sent: Þri 17. Des 2024 13:15
af rapport
brain skrifaði:rapport skrifaði:https://www.visir.is/g/20242664920d/ekki-benda-a-mig-segir-for-stjori-lands-virkjunar
Mér þykir þetta svolítið ýkt, er kominn "orkuskortur" þegar allir eru að fá þá orku sem þeir þurfa?
Þó að verið sé að braska með einhvern "orkukvóta" þá jafngildir það ekki orkuskorti OG það er kerfi "millilag" sem Landsvirkjun kom á og er algjörlega þeim að kenna.
Það verður ekki "agúrkuskortur" ef að grænmetisbændur mundu geta ræktað 100% af þörfinni en búa til kvótakerfi sem selur bara 80% á uppsprengdu verði og henda hinum 20%.
Af hverju er verið að leyfa Landsvirkjun að koma á OPEC innanlands?
Það eru skammtanir í gangui víða um land hjá stórnotendum, það hjálpar ekki að dreikikerfið hefur ekki heldur verið stækkað og endubætt.
Svo bæði það vantar að virkja og laga dreifikerfið.
Var ekki í fréttum fyrir skemmstu að það hefði akkúrat ekki þurft að skammta rafmagn?
En svo er líka eitthvað galið við orkuverðið, verðmun milli seljenda -
https://www.visir.is/g/20242665048d/ver ... a-einu-ariLægst 8 kr. og hæst 11,36 kr = 42% verðmunur...
Re: Orkuverð
Sent: Þri 17. Des 2024 14:02
af rostungurinn77
rapport skrifaði:
Var ekki í fréttum fyrir skemmstu að það hefði akkúrat ekki þurft að skammta rafmagn?
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024 ... r_raforku/Ert mögulega að vísa í þetta?
Landsvirkjun hefur tilkynnt stórnotendum á norður- og austurhluta landsins að ekki muni koma til þeirra skerðinga á afhendingu raforku um áramótin sem reiknað hafði verið með.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsvirkjun en þar segir að áfram verði fylgst með stöðu mála, en útlitið á svæðinu sé þokkalegt, t.d. er staða Hálslóns betri í ár en í fyrra.
Skerðingar á suðvesturhluta landsins hófust 24. október sl. og munu standa áfram. Áætlað var að skerðingar á norður- og austurhluta landsins hæfust 22. nóvember, þeim var svo frestað til áramóta hið minnsta en nú er fallið frá þeim um óákveðinn tíma.
Vegna stöðunnar hefur verið ákveðið að virkja ákvæði í samningi við járnblendiverksmiðju Elkem á Grundartanga, sem heimilar Landsvirkjun endurkaup raforku af fyrirtækinu við aðstæður sem þessar. Þessi endurkaup eru síðasta vatnssparandi úrræðið sem Landsvirkjun hefur yfir að ráða og jafnframt hið kostnaðarsamasta.
Feitletrun er mín.
Re: Orkuverð
Sent: Þri 17. Des 2024 14:42
af rapport
rostungurinn77 skrifaði:rapport skrifaði:

Ég hef ekki lesið fréttina, bara fyrirsögnina...
Re: Orkuverð
Sent: Þri 17. Des 2024 18:20
af Manager1
Fiskvinnslurnar sem "þurftu" að keyra díselvélar voru að kaupa skerðanlega orku á niðursettu verði, Landsnet skerti svo þessa orku og þá "neyddust" vinnslurnar til að keyra díselrafstöðvar í staðin, þær hefðu samt mögulega getað keypt rafmagn á fullu verði en það hefði sennilega verið dýrara en olían.
Það er til nóg rafmagn í landinu eins og er, en ef það á að verða einhver uppbygging hérna á næstu árum og áratugum þá þarf auðvitað að virkja meira.
Lág staða í vatnslónum Landsvirkjunar leiðir það svo af sér að þeir framleiða eins lítið og þeir komast upp með, sem eykur auðvitað eftirspurnina og hækkar þá verðið á þessum uppboðsmarkaði, sem var btw. gerður til að auka samkeppni á raforkumarkaði sem átti að skila sér í betra verði til almennings en hefur þveröfug áhrif, aukna samkeppnin um þessi fáu MW sem eru í boði hefur leitt til þess að verð hækkar.
Re: Orkuverð
Sent: Mið 18. Des 2024 10:32
af GullMoli
Önnur pæling í þessu eru einmitt innviðir, það sást nú bara þegar heitavatnið fór af suðurnesjunum vegna eldgossins. Auðvitað fór fólk í rafmagnsofna sem leiddi í ljós að raflagnakerfið í mörgum hverfum þolir ekki svo mikið álag (rafkynding, hlaða rafmagnsbíla og svo stór eldhústæki í gangi á sama tíma).
Sem betur fer eru ekki alveg allir að hoppa á rafmagnsbílana á sama tíma

Re: Orkuverð
Sent: Mið 18. Des 2024 10:43
af raggos
Langar að benda á eftirfarandi greinar tengt þessari umræðu og benda sérstaklega á þá staðreynd að hlutur Landsvirkjunar í orkuverði er ekki nema um 30% af greiddu verði hjá almenningi og smærri fyrirtækjum. Landsvirkjun hefur mjög lengi barist fyrir því að tryggja að almenningur eigi forgang í raforkuna sem er framleidd á vegum fyrirtækisins. Það hefur bara hingað til ekki reynt almennilega á þetta.
https://www.landsvirkjun.is/frettir/fyr ... odugt-verdhttps://www.landsvirkjun.is/frettir/raf ... kki-tryggthttps://www.landsvirkjun.is/frettir/lae ... a-i-evropu
Re: Orkuverð
Sent: Mið 18. Des 2024 13:04
af rostungurinn77
Re: Orkuverð
Sent: Mið 18. Des 2024 13:55
af rapport
Kárahnjúkar komust í gagnið 2009, þá var líklega nokkur umframorka til :-)
En þetta álbræðsluævintýri er að verða áberandi vitlaust, að loka einu álveri mun skapa langþráð jafnvægi á þessum markaði.
Re: Orkuverð
Sent: Mið 18. Des 2024 14:26
af depill
rapport skrifaði:
En þetta álbræðsluævintýri er að verða áberandi vitlaust, að loka einu álveri mun skapa langþráð jafnvægi á þessum markaði.
Afhverju ? Skapar störf, umhverfisvænna, skapar gjaldeyrir og heldur uppi byggð. Ég get alveg skilið rökin að byggja ekki nýtt, enn næ engan vegin hvernig fólk og sérstaklega umhverfisverndarsinnar vilja loka álveri á Íslandi.
Re: Orkuverð
Sent: Mið 18. Des 2024 23:32
af rapport
depill skrifaði:rapport skrifaði:
En þetta álbræðsluævintýri er að verða áberandi vitlaust, að loka einu álveri mun skapa langþráð jafnvægi á þessum markaði.
Afhverju ? Skapar störf, umhverfisvænna, skapar gjaldeyrir og heldur uppi byggð. Ég get alveg skilið rökin að byggja ekki nýtt, enn næ engan vegin hvernig fólk og sérstaklega umhverfisverndarsinnar vilja loka álveri á Íslandi.
Að það er margt verðmætara hægt að gera með þessari orku, það var punkturinn.
Re: Orkuverð
Sent: Fim 19. Des 2024 01:54
af Manager1
Stóriðjan notar 80% af allri orku í landinu, ef það yrði lokað þó ekki nema einu álveri myndi skapast mikil umframorka sem enginn getur notað og þ.a.l. þarf Landsvirkjun að skrúfa niður í virkjunum og verður af mörgum milljörðum í tekjum.
Öll fyrirtæki í landinu nota um 15% af orku landsins, 1 álver notar meira en öll fyrirtæki landsins (sem ekki eru stóriðja) samanlagt. Til þess að geta lokað áveri og notað orkuna í eitthvað annað án þess að það komi alvarlega niður á rekstri Landsvirkjunar þá þurfa álíka orkufrek fyrirtæki að koma í staðin, eins og t.d. gagnaver og ekki eru þau nú mikið skárri en álverin, skapa talsvert færri störf allaveganna.
Það er einfaldlega ekki raunhæft að loka álveri án þess að geta notað orkuna sem losnar í eitthvað annað strax.
Re: Orkuverð
Sent: Fim 19. Des 2024 09:20
af rostungurinn77
rapport skrifaði:depill skrifaði:rapport skrifaði:

Eins og ?