Síða 1 af 1

Hernaðaruppbygging á Íslandi

Sent: Mið 11. Des 2024 16:22
af GuðjónR
Það hefur hvílt frekar mikil leynd yfir hernaðaruppbyggingu á Íslandi, en hún virðist vera komin á fullt skrið.

Eftir að hafa lesið grein um málefnið á RÚV áðan datt mér í hug að hlaða upp myndbandi sem ég fékk sent í ágúst síðastliðnum, þar sem flutningar á færanlegu loftvarnarkerfi stóðu yfir í Sandgerði.
https://www.ruv.is/frettir/innlent/2024 ... idi-430739


Re: Hernaðaruppbygging á Íslandi

Sent: Mið 11. Des 2024 17:09
af kizi86

Re: Hernaðaruppbygging á Íslandi

Sent: Mið 11. Des 2024 20:50
af Hrotti
Það er mikið verið að byggja, breyta og bæta við á natósvæðinu núna.

Re: Hernaðaruppbygging á Íslandi

Sent: Mið 11. Des 2024 21:01
af appel
Ef NATÓ/BNA væru ekki hérna, þá væru Rússar hérna. Hvort haldiði að sé betra? Aldrei skilið "hernaðarandstæðinga" eða þá sem vilja úr NATÓ. Ef enginn verndar okkur ef annað land ræðst á okkur, þá munum við einfaldlega til heyra því landið sem tekur okkur yfir. Treystiði rússum? Ég mun aldrei treysta þessum andskotum.

Segjum að við hefðum aldrei gengið í NATÓ... þá hefði það bara tímaspursmál hvenær Sóvétríkin hefðu tekið yfir landið hérna útaf hernaðarlegu mikilvægi, legu landsins sem flotastöð fyrir Rússa í N-Atlantshafi, með kafbáta og hvaðeina, í stað þess að vera með það í Múrmansk. Myndi stytta leiðina fyrir rússa að austurströnd BNA úr 6000 km í kannski 3500 km. Það munar um það.

Re: Hernaðaruppbygging á Íslandi

Sent: Mið 11. Des 2024 21:33
af worghal
appel skrifaði:Ef NATÓ/BNA væru ekki hérna, þá væru Rússar hérna. Hvort haldiði að sé betra? Aldrei skilið "hernaðarandstæðinga" eða þá sem vilja úr NATÓ. Ef enginn verndar okkur ef annað land ræðst á okkur, þá munum við einfaldlega til heyra því landið sem tekur okkur yfir. Treystiði rússum? Ég mun aldrei treysta þessum andskotum.

Segjum að við hefðum aldrei gengið í NATÓ... þá hefði það bara tímaspursmál hvenær Sóvétríkin hefðu tekið yfir landið hérna útaf hernaðarlegu mikilvægi, legu landsins sem flotastöð fyrir Rússa í N-Atlantshafi, með kafbáta og hvaðeina, í stað þess að vera með það í Múrmansk. Myndi stytta leiðina fyrir rússa að austurströnd BNA úr 6000 km í kannski 3500 km. Það munar um það.

fólk heldur án djóks að við yrðum látin í friði og við fengjum að vera "hlutlaus"

Re: Hernaðaruppbygging á Íslandi

Sent: Fim 12. Des 2024 07:08
af DJOli
Ég meina...segir það sig ekki svolítið sjálft að við þurfum amk að vera 'allies' með einhverjum, og hvað betra þá en NATO?

Það svona helsta sem ég dreg línuna við er að geyma kjarnorkuvopn þar sem ég er algerlega á móti þeim af siðferðisástæðum.

Re: Hernaðaruppbygging á Íslandi

Sent: Fim 12. Des 2024 08:28
af rostungurinn77
worghal skrifaði:
appel skrifaði:Ef NATÓ/BNA væru ekki hérna, þá væru Rússar hérna. Hvort haldiði að sé betra? Aldrei skilið "hernaðarandstæðinga" eða þá sem vilja úr NATÓ. Ef enginn verndar okkur ef annað land ræðst á okkur, þá munum við einfaldlega til heyra því landið sem tekur okkur yfir. Treystiði rússum? Ég mun aldrei treysta þessum andskotum.

Segjum að við hefðum aldrei gengið í NATÓ... þá hefði það bara tímaspursmál hvenær Sóvétríkin hefðu tekið yfir landið hérna útaf hernaðarlegu mikilvægi, legu landsins sem flotastöð fyrir Rússa í N-Atlantshafi, með kafbáta og hvaðeina, í stað þess að vera með það í Múrmansk. Myndi stytta leiðina fyrir rússa að austurströnd BNA úr 6000 km í kannski 3500 km. Það munar um það.

fólk heldur án djóks að við yrðum látin í friði og við fengjum að vera "hlutlaus"


Versti brandarinn er "herstöð er skotmark".

Svona eins og herstöðvar skjóti bara upp kollinum á handahófskenndum stöðum.

Re: Hernaðaruppbygging á Íslandi

Sent: Fim 12. Des 2024 09:30
af bigggan
GuðjónR skrifaði:Það hefur hvílt frekar mikil leynd yfir hernaðaruppbyggingu á Íslandi, en hún virðist vera komin á fullt skrið.

Eftir að hafa lesið grein um málefnið á RÚV áðan datt mér í hug að hlaða upp myndbandi sem ég fékk sent í ágúst síðastliðnum, þar sem flutningar á færanlegu loftvarnarkerfi stóðu yfir í Sandgerði.
https://www.ruv.is/frettir/innlent/2024 ... idi-430739




Áhugavert að þetta sé hérna, þetta er reyndar ekki lofvarnarkerfi heldur NSM lángdrægar eldflaugar frá Noregi, til að verjast skipum.