Síða 1 af 1

Síminn's scam

Sent: Fös 14. Jún 2024 10:22
af Stuffz
Bara láta vita..

https://youtube.com/shorts/1ZFCeBmsdQ0? ... R1HonoRQdr

Spurning hvort að láta reyna á svona, hvort eitthver svari á íslensku :-k

Re: Síminn's scam

Sent: Fös 14. Jún 2024 10:39
af rostungurinn77
Íslenskan er ekki góð en það er hætt við því að þetta gæti sloppið í gegn miðað við hver markhópurinn er.

Eldra fólk með simnet netföng (tvítekning)

Re: Síminn's scam

Sent: Fös 14. Jún 2024 11:33
af thorhs
Úfff.... aaaafhverju er þetta video? Kanski unga kynslóðin sem kann ekki á static myndir :D

En, því miður er allt of mikið af fólki sem fellur fyrir svona og það er ekki bara gamla fólkið. Ég myndi segja að amk 50% þjóðarinar er í hættu að falla fyrir svona gildrum, þótt íslenskan sé ekki góð. Nógu margir í kringum mig hafa hringt oft til að tékka, ekki ólíklegt að viðkomandi hefðu fallið fyrir þessu ef þau hefðu engann tölvulæsan til að hringja í.

Ástæðan fyrir að það er svo mikið af þessum póstum er að hellingur af fólki er að falla í gryfjuna, nógu oft sér/heyrir maður af fólki sem smellir á link og missir facebook aðganginn oþh. Það þarf ekki nema 0.01% af fólki að smella á linkinn til að þetta borgi sig, það kostar svo gott sem ekkert að senda póstana.

Re: Síminn's scam

Sent: Fös 14. Jún 2024 11:44
af Stuffz
thorhs skrifaði:Úfff.... aaaafhverju er þetta video? Kanski unga kynslóðin sem kann ekki á static myndir :D

En, því miður er allt of mikið af fólki sem fellur fyrir svona og það er ekki bara gamla fólkið. Ég myndi segja að amk 50% þjóðarinar er í hættu að falla fyrir svona gildrum, þótt íslenskan sé ekki góð. Nógu margir í kringum mig hafa hringt oft til að tékka, ekki ólíklegt að viðkomandi hefðu fallið fyrir þessu ef þau hefðu engann tölvulæsan til að hringja í.

Ástæðan fyrir að það er svo mikið af þessum póstum er að hellingur af fólki er að falla í gryfjuna, nógu oft sér/heyrir maður af fólki sem smellir á link og missir facebook aðganginn oþh. Það þarf ekki nema 0.01% af fólki að smella á linkinn til að þetta borgi sig, það kostar svo gott sem ekkert að senda póstana.


Já bara að æfa mig í videógerð og er fljótari að gera það á android.

En s.s. eldri ættingi fékk þetta, ég sagði honum að hringja í símann og staðfesta, aldrei trúa bara einum email..

Og svo hringdi ég sjálfur 2 dögum seinna þótt ég sé ekki hjá símanum sjálfur fyrst ekkert var aðhafst og jú þeir staðfestu þetta.

Svona scammerar væru ekki í business ef eitthverjir tækniheftir væru ekki að fóðra þá.. svo margt eldra fólk of stolt/skammast sýn um of að tala um ef slíkt hendir það að mig grunar.