Síða 1 af 1

Ástþór bannaður af Facebook og Instagram

Sent: Fim 09. Maí 2024 00:33
af appel
https://www.visir.is/g/20242568237d/fac ... d-aug-lysa

Maður veltir fyrir sér hverslags þetta er, hvað býr þarna á baki.

Er það virkilega svo að bandarísku netfyritækin eru að banna frambjóðanda til embættis forseta Íslands að koma sínu máli á framfæri?

Ég er ekkert sammála hans rökræðu, en hann hefur fullan rétt á að tjá sig.


Afskipti af forsetakosningum á Íslandi???

Re: Ástþór bannaður af Facebook og Instagram

Sent: Fim 09. Maí 2024 00:44
af gunni91
Er ekki bara bara búið að reporta öll þessi samsæris- og áröðursmyndbönd um vopnakaup og kjarnorkustrið

Það er mjög auðvelt að vera bannaður á Facebook marketplace þessari daganna. Mikið talað um það inná reddit og fleiri stöðum.

Re: Ástþór bannaður af Facebook og Instagram

Sent: Fim 09. Maí 2024 01:18
af appel
Er hann ekki búinn að vera halda þessu fram í áratugi? Hví bannaður núna?

En fylgist bara með hvernig ENGINN í stjórnvaldinu á Íslandi mun fordæma svona ritskoðun og enginn heldur af forsetaframbjóðendunum.

Ástþór er doldið "klikkaði frændinn" en hann er okkar frændi :)

Re: Ástþór bannaður af Facebook og Instagram

Sent: Fim 09. Maí 2024 08:20
af rostungurinn77
appel skrifaði:Er hann ekki búinn að vera halda þessu fram í áratugi? Hví bannaður núna?

En fylgist bara með hvernig ENGINN í stjórnvaldinu á Íslandi mun fordæma svona ritskoðun og enginn heldur af forsetaframbjóðendunum.

Ástþór er doldið "klikkaði frændinn" en hann er okkar frændi :)


Facebook/Meta hefur væntanlega sína skilmála um hvað má eða má ekki segja og ef það er ítrekað brotið að þá er fólki bannað að auglýsa. Geri ég ráð fyrir.

Spurningin er hins vegar hvað Ástþór var bannaður fyrir og hvort það var réttlætanlegt að banna hann eða ekki.

Þar sem þetta er einu sinni Ástþór Magnússon þá má því miður ætla að hann hafi fyllilega verðskuldað þetta bann.

Re: Ástþór bannaður af Facebook og Instagram

Sent: Fim 09. Maí 2024 09:21
af Mossi__
Ertu að halda því fram að bandarísk einkafyrirtæki séu farin að hnoðast í og skipta sér af.. forsetakosningunum á Íslandi ?!?

Af hverju í ósköpunum ætti einhver að gera það?


Ástþór hefur brotið einhverja skilmála og fengið reports á sig. Hann hefur ekki meiri rétt en næsti maður af því hann er í framboði.

#kjósumástþór

Re: Ástþór bannaður af Facebook og Instagram

Sent: Fim 09. Maí 2024 13:48
af Henjo
Ég skil ekki afhverju þessi maður ætti dropa inni af samúð eftir hvernig hann er búin að haga sér í þessum kosningum. Bjó hann ekki til áróðursíður á facebook gegn Baldri, neitaði að hann ætti þær en gleymdi að fjarlægja símanúmerið sitt?

Re: Ástþór bannaður af Facebook og Instagram

Sent: Fim 09. Maí 2024 15:50
af hagur
Held að hann ætti að finna sér nýtt áhugamál, það er greinilega engin eftirspurn eftir honum í þetta embætti eins og öllum er ljóst. Hann nær ekki einu sinni 1% fylgi skv. könnunum.

Re: Ástþór bannaður af Facebook og Instagram

Sent: Fim 09. Maí 2024 17:09
af jonsig
hagur skrifaði:Held að hann ætti að finna sér nýtt áhugamál, það er greinilega engin eftirspurn eftir honum í þetta embætti eins og öllum er ljóst. Hann nær ekki einu sinni 1% fylgi skv. könnunum.


Ef þú hefðir hlustað á hann. Sem mér fannst mjög gaman. Þá vissir þú að hann sá heimsendir 2025 og því yrði þetta síðasta framboðið hans.

Honum dreymdi að hann væri svífandi í geimnum og tók eftir svo miklum bjarma yfir jörðinni. Það var vegna alls fólksins sem var fyrir utan húsin sín með kerti, sko allir í heiminum veifandi kertum að biðja um frið.
En það er eftir að Ísland er núkað af Rússum, og hann hefur það mission að stöðva það. Ísland yrði gert að sýnidæmi því öllum öðrum væri sama um Ísland.
Síðan fékk hann fleirri vitranir, og var að segja frá þeim. En þá var ég búinn að fjara út.

Re: Ástþór bannaður af Facebook og Instagram

Sent: Fim 09. Maí 2024 19:27
af agnarkb
LOL
Hann braut TOS hjá Meta og var sparkað út.

Re: Ástþór bannaður af Facebook og Instagram

Sent: Fös 10. Maí 2024 09:12
af netkaffi
Held að hann hafi verið með myndefni sem sýndi hómófóbíu.

Re: Ástþór bannaður af Facebook og Instagram

Sent: Fös 10. Maí 2024 09:28
af worghal
þú gerir þér grein fyrir því að það ríkir ekkert málfrelsi á einkareknum platform, ekki einusinni hérna.

Re: Ástþór bannaður af Facebook og Instagram

Sent: Fös 10. Maí 2024 13:27
af Mossi__
worghal skrifaði:þú gerir þér grein fyrir því að það ríkir ekkert málfrelsi á einkareknum platform, ekki einusinni hérna.


Samt er alveg órrúlegt hvað fær að viðgangast hér.

Re: Ástþór bannaður af Facebook og Instagram

Sent: Fös 10. Maí 2024 23:24
af jonsig
Mossi__ skrifaði:
worghal skrifaði:þú gerir þér grein fyrir því að það ríkir ekkert málfrelsi á einkareknum platform, ekki einusinni hérna.


Samt er alveg órrúlegt hvað fær að viðgangast hér.


Ský á himninum gæti móðgað þig með að vera triggerandi í útliti.

Re: Ástþór bannaður af Facebook og Instagram

Sent: Fim 16. Maí 2024 23:56
af jonfr1900
Það virðist vera búið að af-banna Ástþór. Ég fékk auglýsingu frá honum á Facebook. Ég var snöggur að fela auglýsinguna.

Re: Ástþór bannaður af Facebook og Instagram

Sent: Fös 17. Maí 2024 00:01
af Mossi__
Ætli hann hafi ekki bara knúsað Facebook starfsfólkinu mússluknúsi!

Re: Ástþór bannaður af Facebook og Instagram

Sent: Fös 17. Maí 2024 00:06
af jonfr1900
Mossi__ skrifaði:Ætli hann hafi ekki bara knúsað Facebook starfsfólkinu mússluknúsi!


Kannski knúsaði hann Facebook með peningum.

Re: Ástþór bannaður af Facebook og Instagram

Sent: Fös 17. Maí 2024 00:11
af Mossi__
jonfr1900 skrifaði:
Mossi__ skrifaði:Ætli hann hafi ekki bara knúsað Facebook starfsfólkinu mússluknúsi!


Kannski knúsaði hann Facebook með peningum.


Krónuknús er knúsímús engu að síður!