Síða 1 af 1

Leikjafelagid.is

Sent: Fim 22. Feb 2024 13:28
af Haflidi85
Sælir

Rakst á þetta áðan þ.e. http://www.leikjafelagid.is sé að lagerinn er erlendis og afhending up to 12 dagar, ég gat ekki séð að verðin væru neitt betri en verslanir hérna heima en hvað segiði your thoughts ?

Re: Leikjafelagid.is

Sent: Fim 22. Feb 2024 14:40
af Dúlli
Myndi ekki treysta þessu. Kennitala kemur hvergi fram ekki einu sinni undir skilmálum. Eigandi er falinn inná Who.is, engin tengiliður á heimasíðu.

Svo eru aðrir hlutir sem eru rauð flögg á þeirra vef.

Re: Leikjafelagid.is

Sent: Fim 22. Feb 2024 14:41
af Atvagl
Mér sýnist þessi verslun vera að miklu leyti AI-generated eða a.m.k. vélþýdd.

Sérlega skemmtilegt finnst mér þetta myndband sem þeir beina á m.a. á Um Okkur síðunni þeirra.

Re: Leikjafelagid.is

Sent: Fim 22. Feb 2024 14:44
af Haflidi85
já sammála þessu, þetta lítur allt frekar sjoppulega út, en er látið líta út fyrir að vera voða pro, en verður gaman að sjá, ætla allavega ekki að vera fyrstur til að panta frá þeim :D

Re: Leikjafelagid.is

Sent: Fim 22. Feb 2024 15:28
af hfwf
VAT númer skráð á Möltu á búð sem heitir Carini Stores Ltd sem selur flísar og baðherbergisdæmi.

Re: Leikjafelagid.is

Sent: Fim 22. Feb 2024 17:20
af JReykdal
Atvagl skrifaði:Mér sýnist þessi verslun vera að miklu leyti AI-generated eða a.m.k. vélþýdd.

Sérlega skemmtilegt finnst mér þetta myndband sem þeir beina á m.a. á Um Okkur síðunni þeirra.

Virðist vera tappinn sem Sýn er að kæra fyrir IPTV dreifingu.

Re: Leikjafelagid.is

Sent: Fim 22. Feb 2024 23:24
af worghal
1þús+ ánægðir viðskiptavinir

jahá, síðan 12 febrúar, helvíti gott business :lol:

Re: Leikjafelagid.is

Sent: Fös 23. Feb 2024 15:44
af tommimb
Prófaði að sendaeim skilaboð, þeir, samkvæmt þeim, flytja hlutina inn gegnum Icetransport, og það eru 5 einstaklingar þjónustuaðilar hér á landi.

Re: Leikjafelagid.is

Sent: Fös 23. Feb 2024 17:37
af Henjo
Ég held að það sé sniðugara allan daginn að beina viðskiptum sínum að alvöru verslun eins og Kísildal. Mér finnst það ekki skemmtileg tilhugsun að sjá svona netbúðir taka yfir. Tala nú ekki um það að þessi netverslun er ekki einusinni ódýrari en venjulegu tölvubúðirnar.

Re: Leikjafelagid.is

Sent: Fös 23. Feb 2024 18:59
af tommimb
Allveg sammála