Síða 1 af 1

Persónuafsláttur tekinn af lífeyrisþegum sem búa erlendis.

Sent: Sun 07. Jan 2024 16:11
af jonsig
Er þetta stefnan hjá ríkinu að djöflast í öllum sem eru að vesenast með Íslenskar krónur í útlöndum ?
Líka í meintum Íslenskum hryðjuverkamönnum sem eru að kaupa sér rafmyntir erlendis líka ?

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024 ... _kopavogs/

Hún gleymdi reyndar að krassa yfir neðstu línuna. Sem er helmingurinn af nauðsynlegu innkaupunum.
Mynd

Re: Persónuafsláttur tekinn af lífeyrisþegum sem búa erlendis.

Sent: Sun 07. Jan 2024 16:26
af dadik
Þetta er stórkostlegur innnkaupalisti :D

Re: Persónuafsláttur tekinn af lífeyrisþegum sem búa erlendis.

Sent: Sun 07. Jan 2024 17:00
af dreymandi
Þetta er ekta TR. En ekki bara það heldur eru bankarnir ekki betra, nú geturðu ekki lengur tekið út sem ferðamaður danskar, norskar eða sænskar krónur.

Re: Persónuafsláttur tekinn af lífeyrisþegum sem búa erlendis.

Sent: Sun 07. Jan 2024 17:43
af Hizzman
pakkinn undir 1þús, hvað kostar hann á íslandi?

Re: Persónuafsláttur tekinn af lífeyrisþegum sem búa erlendis.

Sent: Sun 07. Jan 2024 18:04
af braudrist
Hún er að kaupa 5stk winston blue sennilega carton á tæpar 4.400 kr kostar hér í Fríhöfninni ca. 8000 þús. kr.
Þannig að bara cartonið hérna heima er næstum því verðið á öllum innkaupalistanum :)
Þetta mundi kosta svona 20-30 þús hérna heima örugglega.

Re: Persónuafsláttur tekinn af lífeyrisþegum sem búa erlendis.

Sent: Sun 07. Jan 2024 18:21
af Moldvarpan
Finnst þetta sanngjarnt þar sem þessir lífeyrisþegar skila engu til samfélagsins af þeim tekjum sem þeir fá. Þetta fer allt úr landi.

Tilhvers ættu þeir að eiga rétt á persónuafslátt þegar þau eru ekki á landinu?

Re: Persónuafsláttur tekinn af lífeyrisþegum sem búa erlendis.

Sent: Sun 07. Jan 2024 18:32
af Hizzman
Ættu svíarnir etv að greiða þeim persónuafslátt? Þeir eru að nota peningana þar. Hvað með sænska öryrkja sem búa á íslandi, hvernig er farið með þá, fá þeir íslenskan persónuafslátt, eða sænskan? Eru ekki einhverjar reglur um norrænt samstarf sem eiga að hindra svona skaða?

edit:Er öryrkinn sem býr í Sviþjóð ekki með aðgang að sænska heibrigðiskerfinu? Hver greiðir fyrir þjónustu þar?

Re: Persónuafsláttur tekinn af lífeyrisþegum sem búa erlendis.

Sent: Sun 07. Jan 2024 18:50
af TheAdder
Moldvarpan skrifaði:Finnst þetta sanngjarnt þar sem þessir lífeyrisþegar skila engu til samfélagsins af þeim tekjum sem þeir fá. Þetta fer allt úr landi.

Tilhvers ættu þeir að eiga rétt á persónuafslátt þegar þau eru ekki á landinu?

Eru lífeyrisþegar ekki akkúrat þeir sem eru búnir að skila til samfélagsins alla sina vinnu ævi og eru nú að fá til baka?

Re: Persónuafsláttur tekinn af lífeyrisþegum sem búa erlendis.

Sent: Sun 07. Jan 2024 19:02
af jonfr1900
Þetta er fáránlegt og rökin voru engin.

Þau voru þessi hérna.

"Þá er lögð til breyting þess efnis að fella brott persónuafslátt eftirlaunaþega og lífeyrisþega sem búsettir eru erlendis en persónuafsláttur er almennt eingöngu í boði fyrir þá sem teljast heimilisfastir (búsettir) hér á landi. Ekki er gert ráð fyrir að breytingin hafi mikil fjárhagsáhrif í för með sér þar sem flestir tvísköttunarsamningar Íslands heimila eingöngu heimilisfestarríki skattlagningarrétt á lífeyri.


Tekið héðan (fyrstu drög og röksemdafærsla fyrir þessu er að finna þarna).

Þessi breyting er að ég held ekki lögleg. Þar sem þessu atriði er stjórnað af tvísköttunarsamningum og hefur alltaf verið þannig. Þeir sem eru búsettir á norðurlöndum geta ekki sótt um skattleysi á Íslandi á móti þessari niðurfellingu á persónuafslætti, sem örorku og ellilífeyrisþegar búsettir á Spáni geta vegna þess að tvístköttunarsamningurinn milli Íslands og norðurlandanna bannar slíkt og gangavart Spáni, þá er skattlagningarrétturinn allur á Spáni samkvæmt samningum.