Síða 1 af 5

Hver verður næsti forseti?

Sent: Fim 04. Jan 2024 16:12
af rapport
Það er mikið skrifað og fréttamiðlar hafa eitthvað verið að ritskoða sig og fréttir jafnvel teknar út.

Ef þið viljið sjá nafn á listanum, sendið mér PM og ég bæti því við...

Vaktin hefur ekki verið mjög sannspá um niðurstöður kosninga þannig að það má jafnvel ganga svo langt að segja að ef vaktarar kjósa með hjartanu, þá má útiloka þann aðila frá kjöri :guy

Re: Hver verður næsti forseti?

Sent: Fim 04. Jan 2024 16:27
af mikkimás
Bara ekki einhvern fn rugludall eða djókara...eða bæði.

Re: Hver verður næsti forseti?

Sent: Fim 04. Jan 2024 16:31
af Moldvarpan
Engan af þessum

Re: Hver verður næsti forseti?

Sent: Fim 04. Jan 2024 16:37
af MrIce
Klárlega GuðjónR er næstur á bessastaði!

Re: Hver verður næsti forseti?

Sent: Fim 04. Jan 2024 16:48
af rapport
Æ anskotinn... öll atkvæði þurrkast út ef maður bætir við valkosti

Re: Hver verður næsti forseti?

Sent: Fim 04. Jan 2024 17:24
af mikkimás
Ekki það að ég vilji Tínu J neitt sérstaklega, en hún hefur verið orðuð.

Allavega raunhæfari en Dóri DNA.

Re: Hver verður næsti forseti?

Sent: Fim 04. Jan 2024 19:17
af agnarkb
steina sem forseta  -  forseti sem þorir.png
steina sem forseta - forseti sem þorir.png (673.56 KiB) Skoðað 5959 sinnum

Re: Hver verður næsti forseti?

Sent: Fim 04. Jan 2024 19:51
af appel
Hvernig er það, er Steingrímur Joð alveg horfinn?

Re: Hver verður næsti forseti?

Sent: Fim 04. Jan 2024 23:12
af kornelius
Sennilega mundi Jón Gnarr alveg rúlla þessu upp ef hann færi fram.

K.

Re: Hver verður næsti forseti?

Sent: Fös 05. Jan 2024 09:40
af dadik
Ef GuðjónR verður kosinn, verður þá Lan á Bessastöðum?

Re: Hver verður næsti forseti?

Sent: Fös 05. Jan 2024 13:18
af rapport
dadik skrifaði:Ef GuðjónR verður kosinn, verður þá Lan á Bessastöðum?


Nei, en Vaktarar fá heimboð í jólabjórsmakk og svo verður útbúin sérstök orða sem forsetinn veitir þeim sem eru duglegir í innleggjum, svokölluð Krákuorða :guy

Re: Hver verður næsti forseti?

Sent: Mið 28. Feb 2024 16:24
af rapport
Ég er team Alma... hvað er svalara og íslenskara en að hafa forseta sem vann á þyrlu við að bjarga sjómönnum úr lífsháska?

Re: Hver verður næsti forseti?

Sent: Mið 28. Feb 2024 19:27
af audiophile
rapport skrifaði:Ég er team Alma... hvað er svalara og íslenskara en að hafa forseta sem vann á þyrlu við að bjarga sjómönnum úr lífsháska?


Já veistu ég myndi kjósa hana. Líst einhvernveginn ekki á neinn frambjóðanda fram til þessa.

Re: Hver verður næsti forseti?

Sent: Mið 28. Feb 2024 23:56
af Bassi6
Ég ætlaði nú ekki að bjóða fram krafta mína að þessu sinni.
En ef ég finn mikinn þrýsting þá gæti ég endurskoðað þá ákvörðun

Re: Hver verður næsti forseti?

Sent: Fim 29. Feb 2024 00:29
af appel
Vigdís Finnbogadóttir er enn á lífi. Ég kýs hana.

Re: Hver verður næsti forseti?

Sent: Fim 29. Feb 2024 01:18
af g0tlife
Þetta er svo gallað kerfi að maður missir allan áhuga á þessu. Ef nógu margir gefa kost á sér og komast í úrslit þá getur forseti íslands fengið 10% atkvæða og unnið Þá er ég ekki að tala um 10% þjóðar heldur kosningarbærra manna. Alveg galið að það sé ekki farið í efstu tvo í lokin og láta þjóðina virkilega kjósa.

Re: Hver verður næsti forseti?

Sent: Fim 29. Feb 2024 07:09
af rapport
g0tlife skrifaði:Þetta er svo gallað kerfi að maður missir allan áhuga á þessu. Ef nógu margir gefa kost á sér og komast í úrslit þá getur forseti íslands fengið 10% atkvæða og unnið Þá er ég ekki að tala um 10% þjóðar heldur kosningarbærra manna. Alveg galið að það sé ekki farið í efstu tvo í lokin og láta þjóðina virkilega kjósa.


Sammála

Re: Hver verður næsti forseti?

Sent: Fös 01. Mar 2024 10:32
af frjáls

Re: Hver verður næsti forseti?

Sent: Fös 01. Mar 2024 12:45
af Mossi__
Ég er að íhuga það að velta fyrir mér möguleikanum á hugmyndinni að skoða það að ígrunda að hugleiða það að leggjast undir feld og pæla í að hugsa mig um að spekúlera að meta um að bollaleggja það að leggja til drög að hyggjast hugsanlega melta það að spá í að brjóta heilann um valkostinn að kanna forsetaframboð núna næstkomandi.

Re: Hver verður næsti forseti?

Sent: Fös 01. Mar 2024 20:47
af Climbatiz
margir hér sem mér sýnist vilja Ástþór Magnússon, sem er soldið skrítið þar sem hann fékk bara um 400 kosningar í síðustu kosningu, ég meðal þeirra :Þ kannski eitthvað með tölvunörda og hann sem klikkar vel saman, hann ætti kannski að einbeita sér að þannig fólki ; Þ

Re: Hver verður næsti forseti?

Sent: Fös 01. Mar 2024 21:18
af Mossi__
Climbatiz skrifaði:margir hér sem mér sýnist vilja Ástþór Magnússon, sem er soldið skrítið þar sem hann fékk bara um 400 kosningar í síðustu kosningu, ég meðal þeirra :Þ kannski eitthvað með tölvunörda og hann sem klikkar vel saman, hann ætti kannski að einbeita sér að þannig fólki ; Þ


Friður 2000 gleymist seint!

Re: Hver verður næsti forseti?

Sent: Fös 01. Mar 2024 21:47
af appel
Mossi__ skrifaði:
Climbatiz skrifaði:margir hér sem mér sýnist vilja Ástþór Magnússon, sem er soldið skrítið þar sem hann fékk bara um 400 kosningar í síðustu kosningu, ég meðal þeirra :Þ kannski eitthvað með tölvunörda og hann sem klikkar vel saman, hann ætti kannski að einbeita sér að þannig fólki ; Þ


Friður 2000 gleymist seint!

Það var meiri friður árið 2000 heldur en núna, er þaggi?

Re: Hver verður næsti forseti?

Sent: Fös 01. Mar 2024 21:57
af Mossi__
appel skrifaði:
Mossi__ skrifaði:
Climbatiz skrifaði:margir hér sem mér sýnist vilja Ástþór Magnússon, sem er soldið skrítið þar sem hann fékk bara um 400 kosningar í síðustu kosningu, ég meðal þeirra :Þ kannski eitthvað með tölvunörda og hann sem klikkar vel saman, hann ætti kannski að einbeita sér að þannig fólki ; Þ


Friður 2000 gleymist seint!

Það var meiri friður árið 2000 heldur en núna, er þaggi?


Algjörlega!

Við vitum hvernig heimurinn er án Ástþórs á Bessastöðum, og hann hefur farið versnandi með hverri höfnun á Ástþór.

Vont getur varla versnað, svo er ekki vara kominn tími til að kjósa manninn og sjá hvað gerist?

Re: Hver verður næsti forseti?

Sent: Lau 02. Mar 2024 00:04
af agnarkb
Það voru 2 ár um daginn síðan stríðið í Úkraínu hófst, stríð sem hefur haft víðtæk áhrif á verðlag í álfunni og ekki síst hér á landi, og auðvitað allt mannfallið.
Tveir menn hafa komið fram á alþjóðavettvangi og haldið því fram og standa staðfastlega við þau orð að hefðu þeir verið í valdastöðu í sínum löndum árið 2022 hefði verið hægt að kom í veg fyrir þetta stríð. Það vill svo vel til að þessir menn eru báðir að leitast eftir því að sitjast í stól forseta í sínum löndum, annar í Bandaríkjunum og hinn svo hérna á Íslandi en kosið er í bæði embættin á þessu ári.
Það hlýtur að vera öllum til góðs að þessir menn fái tækifæri til að standa við sín stóru orð og taki við þessum embætti og í sameiningu nái að ljúka þessum ósköpum í Úkraínu.

:fly

Re: Hver verður næsti forseti?

Sent: Lau 02. Mar 2024 00:28
af Stuffz
hvað getur ein forsetahræða svosem gert í valdalausu embætti