Síða 1 af 1

Borðlampi fyrir ungling

Sent: Mið 20. Des 2023 23:12
af GuðjónR
Var að spá í að kaupa borðlampa fyrir ungling, mætti þes vegna vera vegglampi ef það er snyrtilegt.
Birtan er til að vega á móti björtum skjá, lampinn þarf að vera fyrirferðalítill og smekkelgur.
Góðar hugmyndir vel þegnar.

Re: Borðlampi fyrir ungling

Sent: Mið 20. Des 2023 23:21
af SolidFeather
Ég er með no-name lampa úr "JYSK" og Hue peru, það er alveg bone apple tea combo.

Re: Borðlampi fyrir ungling

Sent: Mið 20. Des 2023 23:21
af appel
Ég hef verið með 2x af svona veggljósum yfir borðinu mínu:

https://www.ikea.is/is/products/lysing/ ... t-70415218

Mynd

Það er dimmer á því, en þú getur einnig keypt svona tradfri ljósaperur með mismunandi kelvin stig ásamt ljósstyrk.

Kosturinn við þetta er:
- tekur ekki borðpláss
- MJÖG stillanlegt og færanlegt, hægt að beina kastaranum annað eða beina ljósi allt annað á borðinu
- gott að setja upp fyrir ofan tölvuskjáinn til að fá borðlýsingu á allt borðið