Engin ávinningur af rafbílavæðingu !

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
brain
vélbúnaðarpervert
Póstar: 976
Skráði sig: Lau 19. Apr 2014 10:11
Reputation: 134
Staða: Ótengdur

Engin ávinningur af rafbílavæðingu !

Pósturaf brain » Þri 28. Nóv 2023 20:56

Segir framkvæmdastjóri Storm Orku.

Vegna þess að fiskimjölsverksmiðjur landsins þurfa að brenna olíu vegna raforkuskorts. Sú aukna olíunotkun sem af þessu leiddi síðastliðinn vetur þurrkaði upp allan loftslagsávinning af öllum innfluttum rafmagnsbílum frá upphafi

https://www.visir.is/g/20232495874d/oli ... avaedingar

Fáránlegt !



Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4979
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 873
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Engin ávinningur af rafbílavæðingu !

Pósturaf jonsig » Þri 28. Nóv 2023 21:14

Úff, núna ertu kominn á hálan ís.



Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5496
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1018
Staða: Ótengdur

Re: Engin ávinningur af rafbílavæðingu !

Pósturaf appel » Þri 28. Nóv 2023 22:16

Heimska manna er ómælanleg. Ég hef enga trú á að það takist að bjarga mannkyni frá "hamfarahlýnun", þannig að "why bother".
Öll þessi sjálfsköðun í ákvörðunum varðandi loftlagsmál er einsog kaþólskur prestur að hýða sjálfan sig.
Náttúruvernd á Íslandi snýst um að koma í veg fyrir virkjun á grænum orkukostum og einnig erum við að hýða okkur sjálf til að draga úr jarðefnaeldsneytisnotkun.

Mynd


Svo hlæja öll önnur ríki að okkur í vesturlöndum fyrir að fremja harakiri efnahagslega séð, á meðan olíulöndin, Kína og fleiri eru að auka framleiðslu og notkun
https://www.cnbc.com/2023/11/27/climate ... deals.html

Nettó er enginn ávinningur að kála verksmiðjum hér í nafni mengunarvarna og svo opna nýja verksmiðju í Kína sem mengar þar í staðinn. Þetta virðist snúa meira um sjálfsblekkjandi tölfræði um eigið ágæti frekar en að skoða heilt yfir hvernig er hægt að leysa þennan vanda.

Svo hjálpar ekki að "aflátsbréf" svokölluð séu selt úr landi, þannig að bókhaldslega séð eru íslendingar að menga með kolum og kjarnorku að stórum hluta í stað grænni orku. Svo er algjör kleppur að rýna í allar tölur um þetta því bjögunin og reality-distortionið er orðið svo mikið því það má ekki lengur segja sannleikann um orkuframleiðslu á Íslandi virðist vera.
Síðast breytt af appel á Þri 28. Nóv 2023 22:19, breytt samtals 3 sinnum.


*-*

Skjámynd

ekkert
Nörd
Póstar: 115
Skráði sig: Mán 05. Apr 2021 11:23
Reputation: 63
Staða: Ótengdur

Re: Engin ávinningur af rafbílavæðingu !

Pósturaf ekkert » Þri 28. Nóv 2023 22:37

Sammála appel. Held að mannkynið sé að fara dæla upp allri olíu úr helvíti á meðan það er hagstætt. Rafbílar skipta engu máli þegar næsti iðnaður fær olíudrulluna á lægra verði. Grænt Ísland skiptir engu máli ef það verður eins til þess að önnur lönd noti lengur olíu í staðinn.


AMDip boii
Jarðeldsneytis- og koníaklaust Ísland 2030

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16274
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1995
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Engin ávinningur af rafbílavæðingu !

Pósturaf GuðjónR » Þri 28. Nóv 2023 22:39

Hvað varð um blautu sæstrengs draumana og orkusölu til útlanda? :megasmile :megasmile :megasmile



Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5496
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1018
Staða: Ótengdur

Re: Engin ávinningur af rafbílavæðingu !

Pósturaf appel » Þri 28. Nóv 2023 22:49

GuðjónR skrifaði:Hvað varð um blautu sæstrengs draumana og orkusölu til útlanda? :megasmile :megasmile :megasmile


Vonandi mun sæstrengur aldrei verða að veruleika. Það er forsendubrestur í raun fyrir búsetu hérna, að þurfa borga sömu verð með orku og á meginlandi evrópu.


*-*


G3ML1NGZ
Græningi
Póstar: 29
Skráði sig: Fim 22. Sep 2022 21:21
Reputation: 39
Staða: Ótengdur

Re: Engin ávinningur af rafbílavæðingu !

Pósturaf G3ML1NGZ » Þri 28. Nóv 2023 23:19

Eins og ég nefndi í fyrri þræði. Vaxtarverkir í infrastructure.




littli-Jake
Skrúfari
Póstar: 2377
Skráði sig: Sun 06. Sep 2009 18:19
Reputation: 148
Staðsetning: Árbærinn
Staða: Ótengdur

Re: Engin ávinningur af rafbílavæðingu !

Pósturaf littli-Jake » Þri 28. Nóv 2023 23:24

Umhverfisvernd á Íslandi snýst að mestu um að það sé ekki reikur á eftir þér. Þá ertu að bjarga öllu.

Það er alveg frábær þessi rembingur að það megi alls ekki virkja neitt eða stækka þær virkjanir sem þegar eru til staðar. Það er eins og fólk skilji ekki að þessi góða græna orka okkar verður ekki bara til afþví að Ísland sé svo frábært.

Orkuskortur fyrir stóriðju á íslandi er ekkert nýtt. En það er allt í lagi ef allir kaupa bara rafmagnsbíla.


i5 3570K - Gigabyte z77x - GTX 1070 OC - Crucial M4 128 GB - 16GB DDR3 - Toughpower XT 675W - BenQ GW2450HM - Antec-P180


axyne
Of mikill frítími
Póstar: 1780
Skráði sig: Fim 12. Jún 2003 17:16
Reputation: 75
Staðsetning: DK
Staða: Ótengdur

Re: Engin ávinningur af rafbílavæðingu !

Pósturaf axyne » Mið 29. Nóv 2023 09:16

Djöfull er þetta sorglegt :face


Electronic and Computer Engineer


Mossi__
Geek
Póstar: 800
Skráði sig: Þri 21. Nóv 2017 22:49
Reputation: 316
Staða: Tengdur

Re: Engin ávinningur af rafbílavæðingu !

Pósturaf Mossi__ » Mið 29. Nóv 2023 09:41

M.v. Tölur síðasta árs framleiðir Ísland 0,009% af gróðurhúsaloftegundum heimsins.

Eflaust inn í þeim tölum eru aflátsbréfin okkar, svo rauntölur okkar eru þónokkuð lægri.

Á meðan við þrefum gefa helstu mengunarþjóðir bara í.



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7077
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1009
Staða: Ótengdur

Re: Engin ávinningur af rafbílavæðingu !

Pósturaf rapport » Mið 29. Nóv 2023 10:40

Af hverju er ekki fokdýrt fyrir svona fyrirtæki að menga?

Það er endalaust verið að rukka almenning fyrir mengun þegar það eru fyrirtækin sem menga...

Það er ríkisins að tryggja að aðrir valkostir en að menga séu hagstæðari t.d. að þurrka þennan fisk og kurla í áburð eða fóður... en ekki bræða í lýsi með tilheyrandi mengun.




Hizzman
Geek
Póstar: 800
Skráði sig: Fös 22. Apr 2016 18:48
Reputation: 136
Staða: Ótengdur

Re: Engin ávinningur af rafbílavæðingu !

Pósturaf Hizzman » Mið 29. Nóv 2023 11:37

rapport skrifaði:Af hverju er ekki fokdýrt fyrir svona fyrirtæki að menga?

Það er endalaust verið að rukka almenning fyrir mengun þegar það eru fyrirtækin sem menga...

Það er ríkisins að tryggja að aðrir valkostir en að menga séu hagstæðari t.d. að þurrka þennan fisk og kurla í áburð eða fóður... en ekki bræða í lýsi með tilheyrandi mengun.


'fyrirtæki' , 'ríki' - þessi tvö orð eru bara hugtök, þetta eru hvorki persónur eða auðlind



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7077
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1009
Staða: Ótengdur

Re: Engin ávinningur af rafbílavæðingu !

Pósturaf rapport » Mið 29. Nóv 2023 11:51

Hizzman skrifaði:
rapport skrifaði:Af hverju er ekki fokdýrt fyrir svona fyrirtæki að menga?

Það er endalaust verið að rukka almenning fyrir mengun þegar það eru fyrirtækin sem menga...

Það er ríkisins að tryggja að aðrir valkostir en að menga séu hagstæðari t.d. að þurrka þennan fisk og kurla í áburð eða fóður... en ekki bræða í lýsi með tilheyrandi mengun.


'fyrirtæki' , 'ríki' - þessi tvö orð eru bara hugtök, þetta eru hvorki persónur eða auðlind


Hvað áttu við?

Ríkið er náttúrulega löggjafarvald, framkvæmdarvald og dómsvald = setur samfélagi manna á Íslandi skorður og dregur fólk til ábyrgðar sem fer ekki eftir settum reglum og venjum.

Fyrirtæki eru umgjarðir sem fá stöðu lögaðila, þar sem hópur fólks leggur fram fé, önnur verðmæti eða skuldbindingar til "félagsins" gegn því að eignast hlutdeild í félaginu, eigum þess og þeim ábata/virði sem það skapar, hvort sem ábatinn er greiddur út í formi arðs eða er ráðstafað af félaginu til aukins vaxtar (sem hækkar þá virði félagsins).

En óháð því...

Það sem gerðist var að það var hægt að græða meiri pening á því að brenna olíu til að bræða síld... s.s. ef það hefði verið dýrara að menga þá hefði þetta hráefni líklega verið notað í eitthvað annað, umhverfisvænni framleiðslu sem fyrirtækið hefði ekki grætt jafn mikið á.

Þarna er samfélagslegur ábati seldur ódýrt og hreinlega ætti að banna þetta, en ef það er ekki hægt að banna þetta þá þarf að gera þetta dýrt svo að samfélagið fái a.m.k. tekjur af svona ógeði og geti nýtt féið til að skapa umhverfisvernd á örðum vettvangi, t.d. niðurgreiða fleiri rafmagnsbíla.



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6423
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 284
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Engin ávinningur af rafbílavæðingu !

Pósturaf gnarr » Mið 29. Nóv 2023 12:04

Reikningsdæmið er semsagt að þessi verksmiðja notar meiri orku á einum vetri en allir rafmagnsbílar Íslands hafa notað til samans frá byrjun. Semsagt meiri orku en þeir hafa allir notað til samans í rúmlega 10 ár. Sem þýðir það að þessi verksmiðja notar margfalda orku á við rafbílaflota Íslands.

Það er því nokkuð ljóst að þessi verksmiðja er vandamálið, en ekki rafmagnsbílar. Vegna þess að hún hefði þurft að nota þessa orku hvort sem rafmagnsbílar eru til eða ekki og samkvæmt greininni nota rafmagnsbílar bara brot af orkunni sem þessi verksmiðja notar.

Þetta eru álíka rök og að segja að það sé engin ávinningur af öryggisbelta notkun Íslendinga vegna þess að Ísraelar drápu 14.500 manns síðustu 2 mánuði.


"Give what you can, take what you need."


Mossi__
Geek
Póstar: 800
Skráði sig: Þri 21. Nóv 2017 22:49
Reputation: 316
Staða: Tengdur

Re: Engin ávinningur af rafbílavæðingu !

Pósturaf Mossi__ » Mið 29. Nóv 2023 12:28

Þarf alltaf að strámanna upp rifrildi og þvaður?



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16274
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1995
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Engin ávinningur af rafbílavæðingu !

Pósturaf GuðjónR » Mið 29. Nóv 2023 13:38

Gaf ekki VG leyfi fyrir tveim kísiliðjuverum sem brenna kolum? Hræsni much?



Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4979
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 873
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Engin ávinningur af rafbílavæðingu !

Pósturaf jonsig » Mið 29. Nóv 2023 14:52

appel skrifaði:Heimska manna er ómælanleg. Ég hef enga trú á að það takist að bjarga mannkyni frá "hamfarahlýnun", þannig að "why bother".
Öll þessi sjálfsköðun í ákvörðunum varðandi loftlagsmál er einsog kaþólskur prestur að hýða sjálfan sig.
Náttúruvernd á Íslandi snýst um að koma í veg fyrir virkjun á grænum orkukostum og einnig erum við að hýða okkur sjálf til að draga úr jarðefnaeldsneytisnotkun.



Ég held núna að það sé engin þörf fyrir jonsig lengur. Kalla það gott að vera kominn í jonsig level í illkynja hugsunarhætti.




Mossi__
Geek
Póstar: 800
Skráði sig: Þri 21. Nóv 2017 22:49
Reputation: 316
Staða: Tengdur

Re: Engin ávinningur af rafbílavæðingu !

Pósturaf Mossi__ » Mið 29. Nóv 2023 16:06

jonsig skrifaði:
Ég held núna að það sé engin þörf fyrir jonsig lengur.


Ég held að það hafi bara aldrei verið þörf fyrir jonsig.



Skjámynd

cmd
Nýliði
Póstar: 20
Skráði sig: Fös 17. Júl 2020 21:39
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Engin ávinningur af rafbílavæðingu !

Pósturaf cmd » Mið 29. Nóv 2023 18:06

Ætla ekki örugglega allir að kolefnisjafna jólagjafirnar í ár



Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4979
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 873
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Engin ávinningur af rafbílavæðingu !

Pósturaf jonsig » Mið 29. Nóv 2023 18:39

Mossi__ skrifaði:
jonsig skrifaði:
Ég held núna að það sé engin þörf fyrir jonsig lengur.


Ég held að það hafi bara aldrei verið þörf fyrir jonsig.


Oft kemur svona úr hörðustu átt :guy

Skrítið hvað alltaf einhver úr vogum á vatnsleysu byrjar eitthvað beef við mig. (og halda að þeir vinni :sleezyjoe )
Síðast breytt af jonsig á Mið 29. Nóv 2023 19:00, breytt samtals 1 sinni.




Mossi__
Geek
Póstar: 800
Skráði sig: Þri 21. Nóv 2017 22:49
Reputation: 316
Staða: Tengdur

Re: Engin ávinningur af rafbílavæðingu !

Pósturaf Mossi__ » Fim 30. Nóv 2023 10:34

Ætli það sé nú ekki frekar þannig að fólk almennt bara gefst upp á að vera í samskiptum við þig :)

Teflandi dúfan.

Ef þú ert nálægt táningsaldrinum er þessi framkoma afsakanleg, en því fjarri sem þú ert frá honum þeim mun alvarlegra er vandamálið.

En ég hef alla trú að þú getir tekið þig á. Ást og friður :*




Manager1
Tölvutryllir
Póstar: 604
Skráði sig: Þri 16. Mar 2004 21:28
Reputation: 86
Staða: Ótengdur

Re: Engin ávinningur af rafbílavæðingu !

Pósturaf Manager1 » Fim 30. Nóv 2023 18:33

Með sömu hugsun og gaurinn í fréttinni notar ættum við Íslendingar bara að hætta að spá í umhverfinu, Kína, Indland og fleiri lönd menga hvort eð er milljónfalt á við það sem við spörum.



Skjámynd

Moldvarpan
Vaktari
Póstar: 2308
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Reputation: 393
Staða: Ótengdur

Re: Engin ávinningur af rafbílavæðingu !

Pósturaf Moldvarpan » Fim 30. Nóv 2023 18:41

Þetta er stupid. Ein vitleysa réttlætir ekki aðra. Og nafnið á þessum þræði er villandi, því það er vissulega ávinningur af rafbílavæðingu.

Olían í bræðslunum þurrkaði upp á­vinning rafbílavæðingar

Væri meira lýsandi titill, þó er fáranlegt að bera saman bræðslur við bíla. Orkuskorturinn veldur þessu og það er annað vandamál.

Við þurfum að drullast til að virkja meira, þyrfti helst 1 kárahnjúkavirkjum fyrir hvern landsfjórðung.



Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4979
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 873
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Engin ávinningur af rafbílavæðingu !

Pósturaf jonsig » Fim 30. Nóv 2023 18:49

Mossi__ skrifaði:Ætli það sé nú ekki frekar þannig að fólk almennt bara gefst upp á að vera í samskiptum við þig :)

Teflandi dúfan.

Ef þú ert nálægt táningsaldrinum er þessi framkoma afsakanleg, en því fjarri sem þú ert frá honum þeim mun alvarlegra er vandamálið.

En ég hef alla trú að þú getir tekið þig á. Ást og friður :*


Þú ert bara eins og leiðinlegur karakter í bíómynd, gjammandi og bullandi útí eitt með engu skemmtigildi. Tækir þú pásu frá vaktinni í ca.3ár sem væri æðislegt, þá væri örugglega enginn að spyrja um þig.



Skjámynd

Moldvarpan
Vaktari
Póstar: 2308
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Reputation: 393
Staða: Ótengdur

Re: Engin ávinningur af rafbílavæðingu !

Pósturaf Moldvarpan » Fim 30. Nóv 2023 20:27

Eeelsku karlinn, viltu knús? :baby