Þingmaður pírata handtekin... ehe...

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
appel
Stjórnandi
Póstar: 5496
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1018
Staða: Ótengdur

Þingmaður pírata handtekin... ehe...

Pósturaf appel » Sun 26. Nóv 2023 17:05

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2023 ... andtekinn/

Trúi ekki þessari "tilefnislaust" staðhæfingu.

Fólk er ekki snúið niður af dyravörum, og lögregla kölluð til, nema að vera með svakaleg læti, leiðindi og vera alveg ölvuð svo þú veist ekki einu sinni nafnið þitt. Greinilega vill hún ekki viðurkenna þetta fyrir sjálfri sér. Þú ert ekki handtekin fyrir að vera mínútu lengur að pissa.

Erlendis hafa þingmenn sagt af sér fyrir minni ástæður. En hey, þetta er jú pírati, þeir haga sér einsog píratar!! ay ay !! :crazy


*-*

Skjámynd

Moldvarpan
Vaktari
Póstar: 2307
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Reputation: 393
Staða: Ótengdur

Re: Þingmaður pírata handtekin... ehe...

Pósturaf Moldvarpan » Sun 26. Nóv 2023 17:23




Skjámynd

Höfundur
appel
Stjórnandi
Póstar: 5496
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1018
Staða: Ótengdur

Re: Þingmaður pírata handtekin... ehe...

Pósturaf appel » Sun 26. Nóv 2023 17:30

Moldvarpan skrifaði:Útvarp Saga

Píratar hafa nú verið háværastir um ýmsa hluti og kallað eftir afsögnum, hvernig væri að þeir stunduðu nú það sem þeir predika?


*-*

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16273
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1995
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Þingmaður pírata handtekin... ehe...

Pósturaf GuðjónR » Sun 26. Nóv 2023 17:51

Ekkert óeðlilegt við það að hringja á lögregluna og láta snúa þig niður og handjárna ef þú ert of lengi á klósettinu. :guy



Skjámynd

Nariur
Of mikill frítími
Póstar: 1825
Skráði sig: Sun 08. Jún 2008 01:18
Reputation: 179
Staða: Ótengdur

Re: Þingmaður pírata handtekin... ehe...

Pósturaf Nariur » Sun 26. Nóv 2023 18:28

Þú þarft nú oft ekki að gera meira en að segja eitthvað sem fer rangt ofan í dyravörð til að byrja eitthvað, svo þetta eru ekki nægar upplýsingar til að segla til um hvað átti sér stað.
Svo sýnist mér hún nú ekki hafa verið handtekin ef henni var bara skutlað heim. Alltaf klassa fréttaflutningur hjá mbl.


AMD Ryzen 9 5950X | Noctua NH-D15 | Nvidia Geforce RTX 3080Ti HOF | MSI MAG X570 Tomahawk | 32GB Corsair Vengeance RGB 3600MHz DDR4 | Corsair RM1000i | Samsung 950 Pro 512GB| Fractal Define R5 | LG CX 48" OLED

Skjámynd

einarhr
Of mikill frítími
Póstar: 1986
Skráði sig: Þri 27. Maí 2008 10:12
Reputation: 263
Staðsetning: 110 Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Þingmaður pírata handtekin... ehe...

Pósturaf einarhr » Sun 26. Nóv 2023 19:02

appel skrifaði:https://www.mbl.is/frettir/innlent/2023/11/26/thingmadur_pirata_var_handtekinn/

Trúi ekki þessari "tilefnislaust" staðhæfingu.

Fólk er ekki snúið niður af dyravörum, og lögregla kölluð til, nema að vera með svakaleg læti, leiðindi og vera alveg ölvuð svo þú veist ekki einu sinni nafnið þitt. Greinilega vill hún ekki viðurkenna þetta fyrir sjálfri sér. Þú ert ekki handtekin fyrir að vera mínútu lengur að pissa.

Erlendis hafa þingmenn sagt af sér fyrir minni ástæður. En hey, þetta er jú pírati, þeir haga sér einsog píratar!! ay ay !! :crazy


En hvað með þingmenn og ráðherra SJálfstæðisflokksins sem hafa brotið lög, þeir öxluðu ekki ábyrð, sbr. Bjarni Ben og félagar að brjóta samkomutakmarkanir í Covit. Eða selja banka til pabba og axla ábyrgð með því að skipta um ráðuneyti !!!

Það hefur enginn þingmaður á Íslandi axlað ábyrgð og Sjalla og Frammarar í forustunni


| Ryzen 7 5800X 32GB |RTX 3070Ti| Server i7 6700K 16GB |

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7076
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1009
Staða: Tengdur

Re: Þingmaður pírata handtekin... ehe...

Pósturaf rapport » Sun 26. Nóv 2023 19:09

Hér er tækifæri fyrir xP til að sýna hvernig þau tækla skandala og hvort eitthvað sé gert öðruvísi hjá þeim en öðrum.

Hafa ekki einhverjir farið í meðferð og/eða hætt hjá xS í vegna óviðeigandi hegðunar undir áhrifum?

Mun xP gera eitthvað til að koma í veg fyrir að svona endurtaki sig?

Finnst hvítþvottur xP á eigin asnaskap alltaf að verða augljósari.
t.d að taka klukkutíma fyrirlestur í borgarstjórn þar sem umferðarljós í borginni voru sögð vera snjallljós en svo var engri snjallvirkni lýst og á kortinu sem fylgdi á glærunum sást að Miklabraut og Sæbraut voru með elstu og verstu gerð ljósastýringa.




littli-Jake
Skrúfari
Póstar: 2377
Skráði sig: Sun 06. Sep 2009 18:19
Reputation: 148
Staðsetning: Árbærinn
Staða: Ótengdur

Re: Þingmaður pírata handtekin... ehe...

Pósturaf littli-Jake » Sun 26. Nóv 2023 19:56

Hér er smá plot twist handa ykkur.

Það var sjálfur yfir dyravörðurinn sem snéri hæstvirtann þyngmann niður og hélt. Þessi yfir dyravörður á og rekur fyrirtækið sem sér um gæsluna á Kíki sem og fleiri stöðum. Við höfum þekkst í mörg ár og ég hef sjálfur unnið þarna talsvert, þó ekki eftir COVID.

Yfir dyravörðurinn er 37. ára með um 15 ára reynsla af gæslu. Er um 165cm á hæð og lesbia.


i5 3570K - Gigabyte z77x - GTX 1070 OC - Crucial M4 128 GB - 16GB DDR3 - Toughpower XT 675W - BenQ GW2450HM - Antec-P180

Skjámynd

Moldvarpan
Vaktari
Póstar: 2307
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Reputation: 393
Staða: Ótengdur

Re: Þingmaður pírata handtekin... ehe...

Pósturaf Moldvarpan » Sun 26. Nóv 2023 19:59

Geggjað klósett drama.



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16273
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1995
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Þingmaður pírata handtekin... ehe...

Pósturaf GuðjónR » Sun 26. Nóv 2023 20:05

littli-Jake skrifaði:Hér er smá plot twist handa ykkur.

Það var sjálfur yfir dyravörðurinn sem snéri hæstvirtann þyngmann niður og hélt. Þessi yfir dyravörður á og rekur fyrirtækið sem sér um gæsluna á Kíki sem og fleiri stöðum. Við höfum þekkst í mörg ár og ég hef sjálfur unnið þarna talsvert, þó ekki eftir COVID.

Yfir dyravörðurinn er 37. ára með um 15 ára reynsla af gæslu. Er um 165cm á hæð og lesbia.

Var þetta þá forleikur hjá þeim? :lol:



Skjámynd

Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3107
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 527
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Þingmaður pírata handtekin... ehe...

Pósturaf Hjaltiatla » Sun 26. Nóv 2023 20:11

Áramótaskaupið skrifar sig ekki sjálft :megasmile


Just do IT
  √

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16273
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1995
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Þingmaður pírata handtekin... ehe...

Pósturaf GuðjónR » Sun 26. Nóv 2023 21:25

Hjaltiatla skrifaði:Áramótaskaupið skrifar sig ekki sjálft :megasmile

Er ekki bannað að gera grín af trukkunum? :lol:



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7076
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1009
Staða: Tengdur

Re: Þingmaður pírata handtekin... ehe...

Pósturaf rapport » Sun 26. Nóv 2023 21:35

Það er fátt meira pirrandi en fólk sem hangir á klósettinu á skemmtistöðum.



Skjámynd

Langeygður
Fiktari
Póstar: 67
Skráði sig: Fim 12. Des 2019 00:04
Reputation: 16
Staða: Ótengdur

Re: Þingmaður pírata handtekin... ehe...

Pósturaf Langeygður » Sun 26. Nóv 2023 23:53

Dyraverðir á þessum stað henda þér út með ofbeldi ef að þú dansar of mikið við stelpurnar ef þú ert gaur.
Síðast breytt af Langeygður á Sun 26. Nóv 2023 23:54, breytt samtals 1 sinni.


Fractal Design Pop Air - Intel I9-9900K - 32GB DDR4 3600Mhz - ASUS TUF Z390M-PRO GAMING - Asus TUF RTX4080 OC 16GB Gaming - Samsung 970 PRO 500GB M.2 - Samsung 990 EVO 2TB M.2 - Samsung 870 EVO 4TB SSD - Seagate 4TB HDD


Sinnumtveir
spjallið.is
Póstar: 473
Skráði sig: Fim 28. Sep 2017 09:44
Reputation: 149
Staðsetning: 105
Staða: Ótengdur

Re: Þingmaður pírata handtekin... ehe...

Pósturaf Sinnumtveir » Mán 27. Nóv 2023 03:24

Róa sig alle sammen. Við höfum ekkert haldfast um að hér sé eitthvert hneyksli á ferð
og ef svo er hver hefur hagað sér hneykslanlega. Amk, er ekkert sem bendir til neinna
formlegra brota þingmannsins, sem var þarna í einkaerindum í eigin tíma. Án meiri
upplýsinga þá gleymum við þessu bara.



Skjámynd

gRIMwORLD
FanBoy
Póstar: 710
Skráði sig: Fös 19. Des 2008 21:19
Reputation: 38
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Re: Þingmaður pírata handtekin... ehe...

Pósturaf gRIMwORLD » Mán 27. Nóv 2023 10:13

2023-11-27_08-51-16.png
2023-11-27_08-51-16.png (464.01 KiB) Skoðað 1364 sinnum


eitthvað til að hugsa um


IBM PS/2 8086

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7076
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1009
Staða: Tengdur

Re: Þingmaður pírata handtekin... ehe...

Pósturaf rapport » Mán 27. Nóv 2023 10:48

Í Noregi segja ráðherrar af sér ef þeir nota óvart fyrirtækjakort þegar þeir eru útí búð að kaupa bleyjur.

En það verður alltaf erfiðara og erfiðara að sjá eitthvað öðruvísi við Pírata og hvernig þeir höndla hlutina, þá í samanburði við aðra flokka.

En er þetta rétt fyrirsögn hjá MBL? Var hún handtekin?



Skjámynd

CendenZ
Stjórnandi
Póstar: 2814
Skráði sig: Fös 04. Apr 2003 08:54
Reputation: 203
Staðsetning: Á þessu spjalli
Staða: Ótengdur

Re: Þingmaður pírata handtekin... ehe...

Pósturaf CendenZ » Mán 27. Nóv 2023 11:06

rapport skrifaði:Í Noregi segja ráðherrar af sér ef þeir nota óvart fyrirtækjakort þegar þeir eru útí búð að kaupa bleyjur.

En það verður alltaf erfiðara og erfiðara að sjá eitthvað öðruvísi við Pírata og hvernig þeir höndla hlutina, þá í samanburði við aðra flokka.

En er þetta rétt fyrirsögn hjá MBL? Var hún handtekin?


Ég er nú fæddur og uppalinn á veitingahúsum, hótelum og starfaði við slíkt í 14 ár.. Löggan hirðir viðkomandi, það er réttara orðið. Viðkomandi er ekki handtekinn og settur í steininn fyrir það að fá sér aðeins of mikið og láta eins og asni. Menn hafa oft sagt að hinn og þessi var handtekinn og "svo sleppt út á næsta horni" en það er augljóslega ekki handtaka, heldur bara tiltal.

Það að menn séu hirtir í áfengisrugli og keyrt eitthvað, út á horn, gista í klefa, spítala eða heim til sín, hefur verið daglegt brauð hjá löggunni svo lengi sem elstu menn muna. Mér finnst rosalega líklegt að þessi þingmaður hafi bara drukkið ótæpilega, reynt að gubba þessu upp úr sér, drekka vatn og reyna ná áttum á salerninu.. Svo leið bara hálftími og pissuröðin orðin 20 manns skiljið þið. Þá kemur dyravörðurinn og nær í viðkomandi, sér að hann er í andlegu ójafnvægi og hringir á lögguna og segir "Já þetta er á Kíkí ...getiði komið og hirt þennan" :snobbylaugh :lol:

Svo er þessu slengt upp í fyrirsögn á eins dramatískan hátt og hugsast getur, og látið eins og aðrir stjórnmálamenn hafi aldrei gert slíkt. Ég man eftir því þegar maður stillti upp fyrir veislur sjálfstæðisflokksins og framsókn að heilu vodkaflöskunum var stillt upp á borð eins og rauðvínsflöskum. Þá drukku menn þangað til engin var heima og menn gátu ekki talað. Þá var það bara alveg eins... menn keyrðir heim í Maríu, sem voru nokkurs konar lögreglu-sendibíll fyrir þá sem fengu sér of mikið í tánna, jafnvel báðar. Þetta þótti bara hinn eðlilegasti hlutur ;)

edit mynd af Maríu og aftaní henni voru sæti fyrir 6 ofurölvaða minnir mig:
maria.jpg
maria.jpg (67.46 KiB) Skoðað 1317 sinnum
Síðast breytt af CendenZ á Mán 27. Nóv 2023 11:11, breytt samtals 2 sinnum.




dadik
Tölvutryllir
Póstar: 614
Skráði sig: Lau 14. Sep 2002 11:21
Reputation: 103
Staðsetning: Reykjavik
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Þingmaður pírata handtekin... ehe...

Pósturaf dadik » Mán 27. Nóv 2023 12:43

CendenZ skrifaði:Þetta þótti bara hinn eðlilegasti hlutur ;)



Þótti kannski en þykir ekki lengur.


ps5 ¦ zephyrus G14

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7076
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1009
Staða: Tengdur

Re: Þingmaður pírata handtekin... ehe...

Pósturaf rapport » Mán 27. Nóv 2023 13:22

Mynd



Skjámynd

CendenZ
Stjórnandi
Póstar: 2814
Skráði sig: Fös 04. Apr 2003 08:54
Reputation: 203
Staðsetning: Á þessu spjalli
Staða: Ótengdur

Re: Þingmaður pírata handtekin... ehe...

Pósturaf CendenZ » Mán 27. Nóv 2023 13:39

dadik skrifaði:
CendenZ skrifaði:Þetta þótti bara hinn eðlilegasti hlutur ;)



Þótti kannski en þykir ekki lengur.


Það er ekki alveg rétt hjá þér, lögreglan fer reglulega í slík útköll og margir gista í klefa þegar ekkert næst upp úr þeim og veskið týnt með símanum osfr og besta leiðin er einfaldlega sofa úr sér undir eftirliti þar sem svoleiðis getur valdið köfnun.

Þótt þetta sé ekki beint eðlilegasti hlutur í dag, þá er þetta partur af samfélaginu. Bara eins og svo margt annað sem er óheppilegt og óþægilegt :happy




dadik
Tölvutryllir
Póstar: 614
Skráði sig: Lau 14. Sep 2002 11:21
Reputation: 103
Staðsetning: Reykjavik
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Þingmaður pírata handtekin... ehe...

Pósturaf dadik » Mán 27. Nóv 2023 13:58

CendenZ skrifaði:
dadik skrifaði:
CendenZ skrifaði:Þetta þótti bara hinn eðlilegasti hlutur ;)



Þótti kannski en þykir ekki lengur.


Það er ekki alveg rétt hjá þér, lögreglan fer reglulega í slík útköll og margir gista í klefa þegar ekkert næst upp úr þeim og veskið týnt með símanum osfr og besta leiðin er einfaldlega sofa úr sér undir eftirliti þar sem svoleiðis getur valdið köfnun.

Þótt þetta sé ekki beint eðlilegasti hlutur í dag, þá er þetta partur af samfélaginu. Bara eins og svo margt annað sem er óheppilegt og óþægilegt :happy


Það þótti kannski eðlilegt að þingmenn væru að rassgatinu allar helgar hér í den. Ég held að þolinmæðin gagnvart slíku sé mun minni í dag. Sérðu t.d. fyrir þér að forsætisráðherra væri blindfullur í móttökuathöfn á Keflavíkurflugvelli eins og gerðist hér í den (Bermúdaskálin góða)? Svo við tölum ekki um Jón Baldvin. Þetta myndi einfaldlega aldrei fljúga í dag.

Núna eru þingmenn með siðareglur. Þetta er úr 5. grein:

"Alþingismenn skulu sem þjóðkjörnir fulltrúar:

a- rækja störf sín af ábyrgð, heilindum og heiðarleika,
b- taka ákvarðanir í almannaþágu,
c - ekki kasta rýrð á Alþingi eða skaða ímynd þess með framkomu sinni, "

Mér finnst það rýra ímynd Aþingis þegar þingmaður drepst áfengisdauða inni á klósetti á skemmtistað og sé í þannig ástandi að dyraverðir kalli til lögreglu til að koma honum út. Svo er reynt að koma með einhvern spuna - "var of lengi inni á salerni" - common, hélt fólk virkiega að enginn myndi sjá í gegnum þetta :S


ps5 ¦ zephyrus G14

Skjámynd

worghal
Kóngur
Póstar: 6302
Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
Reputation: 442
Staðsetning: fyrir aftan þig
Staða: Ótengdur

Re: Þingmaður pírata handtekin... ehe...

Pósturaf worghal » Mán 27. Nóv 2023 14:19

dadik skrifaði:Núna eru þingmenn með siðareglur.


kanntu annan betri? :lol:


CPU: Intel Core i7 12700KF MB: Gigabyte Z690 Gaming X GPU: EVGA RTX 3080 FTW3 ULTRA 12Gb RAM: Corsair Vengeance RGB Pro 2x16Gb 3600Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Topping DX7s - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Corsair 4000D Airflow


JReykdal
FanBoy
Póstar: 704
Skráði sig: Lau 04. Des 2004 18:59
Reputation: 163
Staða: Ótengdur

Re: Þingmaður pírata handtekin... ehe...

Pósturaf JReykdal » Mán 27. Nóv 2023 14:40

dadik skrifaði:
CendenZ skrifaði:
dadik skrifaði:
CendenZ skrifaði:Þetta þótti bara hinn eðlilegasti hlutur ;)



Þótti kannski en þykir ekki lengur.


Það er ekki alveg rétt hjá þér, lögreglan fer reglulega í slík útköll og margir gista í klefa þegar ekkert næst upp úr þeim og veskið týnt með símanum osfr og besta leiðin er einfaldlega sofa úr sér undir eftirliti þar sem svoleiðis getur valdið köfnun.

Þótt þetta sé ekki beint eðlilegasti hlutur í dag, þá er þetta partur af samfélaginu. Bara eins og svo margt annað sem er óheppilegt og óþægilegt :happy


Það þótti kannski eðlilegt að þingmenn væru að rassgatinu allar helgar hér í den. Ég held að þolinmæðin gagnvart slíku sé mun minni í dag. Sérðu t.d. fyrir þér að forsætisráðherra væri blindfullur í móttökuathöfn á Keflavíkurflugvelli eins og gerðist hér í den (Bermúdaskálin góða)? Svo við tölum ekki um Jón Baldvin. Þetta myndi einfaldlega aldrei fljúga í dag.

Núna eru þingmenn með siðareglur. Þetta er úr 5. grein:

"Alþingismenn skulu sem þjóðkjörnir fulltrúar:

a- rækja störf sín af ábyrgð, heilindum og heiðarleika,
b- taka ákvarðanir í almannaþágu,
c - ekki kasta rýrð á Alþingi eða skaða ímynd þess með framkomu sinni, "

Mér finnst það rýra ímynd Aþingis þegar þingmaður drepst áfengisdauða inni á klósetti á skemmtistað og sé í þannig ástandi að dyraverðir kalli til lögreglu til að koma honum út. Svo er reynt að koma með einhvern spuna - "var of lengi inni á salerni" - common, hélt fólk virkiega að enginn myndi sjá í gegnum þetta :S


Klaustursrónarnir sitja allir enn á sínum stað er það ekki? Amk. flestir.
Síðast breytt af JReykdal á Mán 27. Nóv 2023 14:41, breytt samtals 1 sinni.


Vinsamlegast athugið: Skoðanir mínar sem birtast hér eru mínar og mínar einar en ekki
vinnuveitenda minna,vina og vandamanna, gæludýra og húsgagna nema annað sé tekið fram.

Skjámynd

CendenZ
Stjórnandi
Póstar: 2814
Skráði sig: Fös 04. Apr 2003 08:54
Reputation: 203
Staðsetning: Á þessu spjalli
Staða: Ótengdur

Re: Þingmaður pírata handtekin... ehe...

Pósturaf CendenZ » Mán 27. Nóv 2023 14:43

dadik skrifaði:
CendenZ skrifaði:
dadik skrifaði:
CendenZ skrifaði:Þetta þótti bara hinn eðlilegasti hlutur ;)



Mér finnst það rýra ímynd Aþingis þegar þingmaður drepst áfengisdauða inni á klósetti á skemmtistað og sé í þannig ástandi að dyraverðir kalli til lögreglu til að koma honum út. Svo er reynt að koma með einhvern spuna - "var of lengi inni á salerni" - common, hélt fólk virkiega að enginn myndi sjá í gegnum þetta :S


Jú sko það er einmitt orsök þess sem þú nefnir, viðkomandi er að reyna ná áttum þannig hann líti ekki út fyrir að vera óáttaður - til þess að líta ekki út fyrir að vera eins og Davíð á flugvellinum í góðum gír \:D/

Ég hef nú marg-marg-marg oft lent í þessum aðstæðum sem yfirmaður á einum vinsælasta skemmtistað hér á árum áður. Að fínt fólk drekki of mikið og reynir að redda sér á klósettinu, "gubba, sódavatn og bara hálftími hér og þá verð ég góður" - pæling.

Auðvitað er best að þekkja sín mörg, en ef fólk er ekki vant að drekka þá kemur þetta fyrir - fara langt út fyrir sín mörg, það hljóta allir sem hafa dottið svona í það að vita og muna (sumir muna það kannski ekki) og þá þekkir það sín einkenni þegar síðasti drykkur kikkar inn. Já það er vatn næsta klukkutímann :oops:

Ég er alls ekki pírati (og verð aldrei), en finnst þessi frétt gera ansi stóran úlfalda úr þessari mýflugu.