Vávv hvað þú hlýtur að vera skemmtilegur í partíum jonsig
Hvers vegna að tuða yfir þessu? Líklega er þetta ekki að fara ganga vel, engu að síður þurfum við þessa þekkingu og þetta verkefni og önnur sem eru "dauðadæmd" er nauðsýnlegt að gera til læra. Við sem erum tæknilega þenkandi vitum vel að Trial-and-Error leiðin er áhrifarík leið til að læra.Ísland er vissulega öðruvísi en mörg önnur lönd og ef við ætlum að skapa okkur einhvern sess þá verðum við að finna okkar leið að hlutunum.
Ég er nokkuð viss að um yfir sumartíman gæti þetta orðið hægstætt, nú ef hægt er að senda þá umframorku sem skapast þá inná orkunetið erum við í þokkalegum ef þetta er síðan gert á fleiri stöðum. Fyrir vikið þá sparast það sem þarf að hleypa úr lónum sem nýtist þegar dimmt er.
Við skulum athuga það að þetta eru engir bjánar sem eru í þessu verkefni með Bjargi, allar fréttir sem um það draga úr kolefni eru góðar og gildar svo framarlega að því fylgi minni spjöll.
Hér er til dæmis ein áhugaverð frétt og tilraun sem fór af stað fyrir nokkrum vikum:
https://www.rafal.is/nullorkuhus/Hér er verið að blansa saman Sólarorku og Vindorku.
Sólarorka er notuð hér til að knyja veðurstöðvar og aðrar eftirlitsstöðvar. Ég hef sett upp myndavélakerfi þar sem er ekki rafmagn og keyrir á Sólarorku og rafhlöðum og hafa ekki misst straum og verið keyrandi í 4+ ár, vissulega ekki svo hrikaleg orkuþörf þar, enda valin sólarspegill með það í huga.
Sólarspeglar eru ná töluvert meiri nýtni í dag en fyrir nokkrum árum, þróunin er nokkuð hröð þar.
Síðan að því neikvæða í þessu, ef áætlað er að hús taki 49.500 kWst ári og setja spegla fyrir 52.000 kWst til að kóvera það, þá erþað líklega ekki að fara ganga nema það sé starfsfólk þarna 24/7 að þrífa speglana.
Allavega mín tvö sent til þeirra sem eru neikvæðir gegn svona tilraunaverkefnum, venjið ykkur á það hafa glasið hálf-fullt, ekki hálf-tómt