Síða 1 af 1

1.5 metra rafmagnskapall á 900 þús ....

Sent: Fim 21. Sep 2023 20:21
af hagur
https://stereo.is/vara/chord-music-rafmagnskapall-1m/

Hvað er að frétta.

Audiophiles eru greinilega sérstakur þjóðflokkur. Þarna má líka fá stutta hátalarakapla á nokkra hundrað þúsund kalla og fleira í svipuðum dúr. Ég bara trúi ekki að einhver sé að kaupa þetta.

Chord og AudioQuest ... kannski líka Monster cables, einhver er nú framlegðin á þessu drasli.

Sorry, varð bara að "segja" einhverjum frá þessu :crazy :sleezyjoe

Re: 1.5 metra rafmagnskapall á 900 þús ....

Sent: Fim 21. Sep 2023 20:53
af SolidFeather
Ert ekki maður með mönnum nema þú sért með þennan: https://stereo.is/vara/chord-music-streaming-kapall-1m/

Re: 1.5 metra rafmagnskapall á 900 þús ....

Sent: Fim 21. Sep 2023 20:59
af B0b4F3tt
Þetta kallar maður góða snákaolíu :megasmile

Re: 1.5 metra rafmagnskapall á 900 þús ....

Sent: Fim 21. Sep 2023 21:02
af Viggi
Hlýtur nú að vera gerður úr hreinu rhodeum

Re: 1.5 metra rafmagnskapall á 900 þús ....

Sent: Fim 21. Sep 2023 21:32
af CendenZ
Minnir mig á þegar James Randi gerði veðmál við Pear Audio upp á milljón dollara og það árið 2006ish.
Hvort þeir gætu sjálfir heyrt mun á mörg þúsund dollara hátalaraköplum og Monster köplum úr Best buy

Þeir hótuðu og gerðu allskyns gloríur og rugl en hættu svo við á síðustu stundu því það var engin marktækur munur með þessum tveimur mælitækjum sitthvoru meginn á hausnum á okkur :lol:

ps, ef einhver vill kaupa handa sér "audiophile" kapla, bara kaupa sér Hosa-snúrur. Hágæða stöff sem endist ógeðslega lengi og kostar ekkert svo mikið. Held að mínir kaplar séu örugglega hátt í 18-20 ára :happy

Re: 1.5 metra rafmagnskapall á 900 þús ....

Sent: Fim 21. Sep 2023 21:53
af jonsig
Ég nota bara 2x1.5q lampasnúru í martin logan hátalarana mína.

Hugsa að flestar kindur kaupi sér nú samt hátalara snúru án þess að pæla í því. Og jafnvel fræði mig um Oxygen-free copper (OFC :lol:

Re: 1.5 metra rafmagnskapall á 900 þús ....

Sent: Fim 21. Sep 2023 22:19
af audiophile
Ekki er öll vitleysan eins. Skil ekki að það sé til fólk sem láti plata sig svona.

Ég á nokkra turnhátalara og hef tengt þá með Monster hátalarasnúrum sem ég fékk gefins og einnig ódyrustu gerð af vír úr Heimilistækjum og heyri andskotann engan mun.

Re: 1.5 metra rafmagnskapall á 900 þús ....

Sent: Fös 22. Sep 2023 09:01
af Hauxon
Það skiptir líka höfuðmáli þegar maður er kominn með svona dýra kapla að nota "cable risers"!
Mynd

Re: 1.5 metra rafmagnskapall á 900 þús ....

Sent: Fös 22. Sep 2023 10:05
af appel
Eru englahár í þessu?

Re: 1.5 metra rafmagnskapall á 900 þús ....

Sent: Fös 22. Sep 2023 11:26
af Peacock12
Fyrsta sem maður gerir er að skipta um kló…
Klóin fer svo í tengilinn sem er að fá sitt rafmagn í gegnum 100 kr lagnavír.
Þannig að það eina sem þessi snúra gæti hugsanlega tryggt er að rafmagnið tapi engum eiginleikum frá tengingu við kló að græju.
Veit ss ekki hvaða eiginleikar það gætu verið.
Ekki nema þú búir 150 sm frá Kárahnjúkum…

Re: 1.5 metra rafmagnskapall á 900 þús ....

Sent: Fös 22. Sep 2023 13:57
af axyne
það versta við þessa snúru að maður þarf annaðhvort að nota millistykki eða klippa hausinn af og skrúfa nýja kló á :sleezyjoe

Edit:
Ég var að búast við þetta væri íslensk verðlagning og fór að tjekka á verðum í Danmörku, en það var nákvæmlega sama bilunin...
Fann meira segja annann kapall á 3.5 milljón ISK! https://high-performance.dk/nordost-odin-2-power

Re: 1.5 metra rafmagnskapall á 900 þús ....

Sent: Lau 23. Sep 2023 19:50
af Hlynzi
Minnir mig á þegar ég og pabbi vorum að dunda okkur að smíða flata hátalara frá grunni (ekki electro-statíska) heldur keilu sem er búið að fletja út, það var alveg áberandi skír hljómur í þeim og hann spilaði bæði hljóð að framan og fyrir aftan af sama skírleika.

Ég prófaði þá einmitt einhverja massíft þykka kapla sem kostuðu 500 kr. meterinn (fyrir 20 árum kannski) örugglega 6-10q , svo skellti ég 1,5q ídráttarvír í þá og ég get svo svarið það að hann hljómaði betur þannig.
Uppáhaldið mitt í þessu eru samt svona ultra high quality digital kaplar...digital þolir svo miklu meira noise, eina réttlætingin er oftast að fara í kapla sem kosta 2x-3x ódýrustu (það eru betri gæði, betri tengi aðallega), eftir það batnar ekkert.

Re: 1.5 metra rafmagnskapall á 900 þús ....

Sent: Sun 24. Sep 2023 00:27
af Sinnumtveir
SolidFeather skrifaði:Ert ekki maður með mönnum nema þú sért með þennan: https://stereo.is/vara/chord-music-streaming-kapall-1m/


Heyrðu góði, vertu ekki að gera a grín að þessu. Þú tókst nottla ekkert eftir því að þetta er STAFRÆNT (það sem við innanbúðarmenn köllum cutting-edge digital).

Og þið sem, greinilega, megið ekki heyra á neitt vísindalegt minnst, athugið að: "In almost every case it appeared to bring new layers of musical detail, transforming the sound."

Nei ég ætla ekki að þýða þetta fyrir ykkur, kaupið bara ykkar eigin skjalaþýðingu eins og ég.

Aðalatriðið er að verðið á kaplinum er gjöf en ekki gjald. Hann færir þeim sem er fær um að meta, einstæða og óviðjafnalega tónlistarupplifun.