Síða 3 af 3

Re: Norskur eldislax í íslenskum ám

Sent: Fim 02. Nóv 2023 22:06
af vesley
Manager1 skrifaði:Það kemur líka stundum upp riða í íslenska fjárstofninum og þá þarf að farga öllu fénu á viðkomandi bæ og jafnvel á næstu bæjum, ekki sé ég fólk kalla það dýraníð að það þurfi að drepa þessar kindur.

Það er verið að farga fiskinum sem er svona lúsugur, það er það eina rétta í stöðunni.


Það er alveg magnað hvað fiskveiðiþjóðinni Íslandi þykir vænt um laxinn. Við drepum fleiri milljón (milljarða?) fiska á ári og nákvæmlega enginn kippir sér upp við það, en laxinn er greinilega sérstakur?



Ef ein kind greinist með riðu er öllu fé á þeim bæ fargað og mjög strangar reglugerðir tengt förgun og að koma upp fé á þeim bæ aftur. Í raun ekki möguleiki á að hefja aftur rækt fyrr en búið er að útiloka að riða sé enn þar.

Allar rollunar liggja ekki með hálfétið höfuð eða dauðar rotnandi dögum saman inn í fjárhúsinu eins og í laxeldi.

Eigum við þá ekki að setja bara sömu reglu, ef lús kemst í eldislax þá skal öllu fargað, ef eldislax sleppur þá skal settar miklar sektir eða afturköllun starfsleyfis ótímabundið.

Bóndi væri ekki lengi að missa reksturinn ef hann reglulega missti alla stjórn á sínum búskap.

Re: Norskur eldislax í íslenskum ám

Sent: Lau 04. Nóv 2023 01:16
af Tóti

Re: Norskur eldislax í íslenskum ám

Sent: Lau 11. Nóv 2023 00:46
af Tóti

Re: Norskur eldislax í íslenskum ám

Sent: Sun 17. Des 2023 18:02
af Tóti
Mig langaði að benda á þessa frétt.
Kannski margir búnir að sjá hana en mig langar að halda þessu á lofti um þetta.
https://www.visir.is/g/20232504254d/is- ... gar-haettu

Re: Norskur eldislax í íslenskum ám

Sent: Sun 17. Des 2023 20:09
af GuðjónR
Tóti skrifaði:Mig langaði að benda á þessa frétt.
Kannski margir búnir að sjá hana en mig langar að halda þessu á lofti um þetta.
https://www.visir.is/g/20232504254d/is- ... gar-haettu

Skaðinn er skeður.

Re: Norskur eldislax í íslenskum ám

Sent: Sun 17. Des 2023 21:34
af Manager1
Allt sjókvíaeldinu að kenna... eða þannig.

Re: Norskur eldislax í íslenskum ám

Sent: Sun 17. Des 2023 21:36
af GuðjónR
Manager1 skrifaði:Allt sjókvíaeldinu að kenna... eða þannig.

Eða þannig?
Hverju öðru er um að kenna? Óbólusettum? :face

Re: Norskur eldislax í íslenskum ám

Sent: Sun 17. Des 2023 23:00
af Tóti
GuðjónR skrifaði:
Tóti skrifaði:Mig langaði að benda á þessa frétt.
Kannski margir búnir að sjá hana en mig langar að halda þessu á lofti um þetta.
https://www.visir.is/g/20232504254d/is- ... gar-haettu

Skaðinn er skeður.


Út af hverju er skaðinn skeður? GuðjónR?
Ekkert eftirlit.
Kannski hlýnun jarðar, kannski léglegt eftirlit með allt þetta laxeldi hér og annað.
Þarf ekki að endursegja allt nenni því ekki en bara ef menn hafa áhuga á þessu málefni og styrkja það að breiða það út
að þetta er alvarlegt.

Re: Norskur eldislax í íslenskum ám

Sent: Mán 18. Des 2023 07:44
af dadik
Hlýnun jarðar er aðalástæðan samkvæmt greininni.

Re: Norskur eldislax í íslenskum ám

Sent: Þri 19. Des 2023 19:31
af Manager1
GuðjónR skrifaði:
Manager1 skrifaði:Allt sjókvíaeldinu að kenna... eða þannig.

Eða þannig?
Hverju öðru er um að kenna? Óbólusettum? :face

Loftlagsbreytingar eiga sennilega stærsta þáttinn, en eins og kemur fram í fréttinni þá er Kyrrahafslaxinn að þrengja að Atlantshafslaxinum og hrygningarstöðum fer fækkandi, þannig að sjókvíaeldinu er ekki einu um að kenna og reyndar efast ég stórlega um að það eigi mikinn hlut í fækkuninni.

Re: Norskur eldislax í íslenskum ám

Sent: Mið 20. Des 2023 20:02
af Manager1

Re: Norskur eldislax í íslenskum ám

Sent: Lau 09. Mar 2024 22:36
af Tóti
Vona að þið lesið þetta og skiljið að þetta er alvarlegt ef þið hafið áhuga.

https://www.mbl.is/frettir/veidi/2024/0 ... skyggileg/

Re: Norskur eldislax í íslenskum ám

Sent: Lau 09. Mar 2024 22:53
af Tóti
Manager1 skrifaði:https://www.bb.is/2023/12/bylgjan-og-visir-is-dregid-i-land/?fbclid=IwAR1UWRPncUpJBUQu2lZOJMqHRiKNca1LG9ffvU9wTlYYC9-INRRpZTT1k_M

Ekki er allt sem sýnist.

Það sjá allir í gegnum þetta hjá BB :)
Ef ekki þá bara ....

Re: Norskur eldislax í íslenskum ám

Sent: Sun 10. Mar 2024 14:54
af Manager1
Tóti skrifaði:Vona að þið lesið þetta og skiljið að þetta er alvarlegt ef þið hafið áhuga.

https://www.mbl.is/frettir/veidi/2024/0 ... skyggileg/

Magnað að það skuli vera talað um lélega stöðu stofnsins og laxveiði í sömu fréttinni, væri ekki réttast að banna veiðar á laxinum ef hann er í svona mikilli útrýmingarhættu?

Re: Norskur eldislax í íslenskum ám

Sent: Sun 10. Mar 2024 16:23
af vesley
Manager1 skrifaði:
Tóti skrifaði:Vona að þið lesið þetta og skiljið að þetta er alvarlegt ef þið hafið áhuga.

https://www.mbl.is/frettir/veidi/2024/0 ... skyggileg/

Magnað að það skuli vera talað um lélega stöðu stofnsins og laxveiði í sömu fréttinni, væri ekki réttast að banna veiðar á laxinum ef hann er í svona mikilli útrýmingarhættu?



Fjöldi laxa sem eru drepnir í stangveiði er sáralítill. Enda í gott sem öllum ám verður að sleppa öllu yfir 60cm.