Síða 1 af 1
Trek 4300 reiðhjól
Sent: Lau 12. Ágú 2023 21:49
af Skari
Er frekar grænn þegar kemur að reiðhjólum en þar sem ég setti hringinn, á pedala-stöngin ekki að leggjast alveg upp að eða hefur mögulega eitthvað brotnað af hjá mér ?
Er amk í smá basli við að koma þessari stöng alveg upp að og hylja þetta bil sem er
Re: Trek 4300 reiðhjól
Sent: Lau 12. Ágú 2023 22:33
af Henjo
Þetta er ekki ósvipað og á mínu trek hjóla (ds1), það er smá svona bill á milli.
Re: Trek 4300 reiðhjól
Sent: Sun 13. Ágú 2023 18:18
af Nariur
Lítur út fyrir að sveifin sé að losna af.
Þú þarft að losa upp á henni, ýta henni upp að og festa aftur.
Re: Trek 4300 reiðhjól
Sent: Mán 14. Ágú 2023 10:42
af demaNtur
Hefði haldið að þarna ætti að vera eitthver pakkdós/rykhlíf, þekki þó reiðhjól alls ekki neitt þannig ég þori ekki að fara með það.
Re: Trek 4300 reiðhjól
Sent: Mán 14. Ágú 2023 18:55
af T-bone
Ef að boltinn sem heldur sveifinni er fastur þá er sveifin föst, svo lengi sem að bottom bracketið (öxullinn á milli sveifanna) eða að sveifin sjalf sé ekki orðið kjagað. Þá losnar alltaf aftur upp á þessu alveg sama hvað þú herðir.
Re: Trek 4300 reiðhjól
Sent: Mán 14. Ágú 2023 19:16
af TheAdder
Skari skrifaði:Er frekar grænn þegar kemur að reiðhjólum en þar sem ég setti hringinn, á pedala-stöngin ekki að leggjast alveg upp að eða hefur mögulega eitthvað brotnað af hjá mér ?
Er amk í smá basli við að koma þessari stöng alveg upp að og hylja þetta bil sem er
Ég var að athuga mitt Trek 4300 hjól, og það er alveg eins. Ég held þetta sé bara eðlilegt.
Re: Trek 4300 reiðhjól
Sent: Mið 23. Ágú 2023 15:38
af Skari
Takk, þá sýnist mér þetta vera eðlilegt, sérstakt að það sé ekki hlíf yfir þetta en takk fyrir aðstoðina
Re: Trek 4300 reiðhjól
Sent: Mið 23. Ágú 2023 15:47
af Henjo
Já, þú myndir eflaust ekki vilja annan pedalan meira innar en hinn. farðu varlega á hjólinu og mundu eftir hjálminum!