Samfélagsleg ábyrgð fjármálafyrirtækja

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
rapport
Kóngur
Póstar: 7076
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1009
Staða: Ótengdur

Samfélagsleg ábyrgð fjármálafyrirtækja

Pósturaf rapport » Þri 08. Ágú 2023 15:03

https://heimildin.is/grein/18568/storu- ... ri-voxtum/

Þegar verst árar hjá almenningi þá er kroppað allt kjöt af beinunum.

Þetta er svo ljót framkoma í garð fólks að ég verð pirraður við lesturinn + þetta spænir upp verðbólguna og lánin okkar í stað þess að stuðla að stöðugleika.




pukinn
Græningi
Póstar: 25
Skráði sig: Lau 09. Maí 2009 23:18
Reputation: 6
Staða: Ótengdur

Re: Samfélagsleg ábyrgð fjármálafyrirtækja

Pósturaf pukinn » Þri 08. Ágú 2023 15:27

Talandi um samfélagslega ábyrgð, þá er það skandall hvað bankarnir eru mikið í að úthýsa IT þjónustu erlendis. Stofna IT deildir í Póllandi og ráða forritara frá Indlandi. Segja svo upp starfsfólki hægri vinstri. Bankar í eigu ríkisins (amk. að hluta) færi störf erlendis í stað þess að byggja upp samfélagið.



Skjámynd

Lexxinn
/dev/null
Póstar: 1450
Skráði sig: Sun 22. Nóv 2009 12:26
Reputation: 163
Staðsetning: Júpíter
Staða: Ótengdur

Re: Samfélagsleg ábyrgð fjármálafyrirtækja

Pósturaf Lexxinn » Þri 08. Ágú 2023 15:43

Mismunandi hvernig ríkisstjórnir taka á þessu, sbr Ítalíu sem lagði 40% skatt á ofurhagnað bankageirans og fyrirtækja sem hafa grætt á vaxtahækkunum.




Skjámynd

Höfundur
rapport
Kóngur
Póstar: 7076
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1009
Staða: Ótengdur

Re: Samfélagsleg ábyrgð fjármálafyrirtækja

Pósturaf rapport » Þri 08. Ágú 2023 16:13

pukinn skrifaði:Talandi um samfélagslega ábyrgð, þá er það skandall hvað bankarnir eru mikið í að úthýsa IT þjónustu erlendis. Stofna IT deildir í Póllandi og ráða forritara frá Indlandi. Segja svo upp starfsfólki hægri vinstri. Bankar í eigu ríkisins (amk. að hluta) færi störf erlendis í stað þess að byggja upp samfélagið.


Er þetta ekki bara það sem öll fyrirtæki og stofnanir á Íslandi þurfa að gera?

Er einhver sem getur eitthvað í IT atvinnulaus í dag?

Veit ekki betur en að það sárvanti fólk og að það sé verið að ráða alla og ömmur þeirra ef einhver vottur af þekkingu er til staðar.

En það er líka mikil frændhygli og networking í þessum geira, maður hefur bæði notið góðs af því og orðið fyrir barðinu af því.



Skjámynd

Höfundur
rapport
Kóngur
Póstar: 7076
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1009
Staða: Ótengdur

Re: Samfélagsleg ábyrgð fjármálafyrirtækja

Pósturaf rapport » Þri 08. Ágú 2023 16:14

Lexxinn skrifaði:Mismunandi hvernig ríkisstjórnir taka á þessu, sbr Ítalíu sem lagði 40% skatt á ofurhagnað bankageirans og fyrirtækja sem hafa grætt á vaxtahækkunum.



Þetta er eina rétta leiðin, að tryggja að enginn sé að hagnast á verðbólgunni nema ríkið sjálft og almenningurinn í landinu.




littli-Jake
Skrúfari
Póstar: 2377
Skráði sig: Sun 06. Sep 2009 18:19
Reputation: 148
Staðsetning: Árbærinn
Staða: Ótengdur

Re: Samfélagsleg ábyrgð fjármálafyrirtækja

Pósturaf littli-Jake » Þri 08. Ágú 2023 16:19

Ég fór nú bara að hlægja þegar ég sá þennan titil.

Allt það sem þessu viðkemur er vandlega útskýrt í þessu litla lagi hér. Ég mæli með að menn lesi textan við hlustun sem er í lýsingu.
https://youtu.be/sCe7Nxao_jE

Skilar sér best í 85% volum eða hærra.


i5 3570K - Gigabyte z77x - GTX 1070 OC - Crucial M4 128 GB - 16GB DDR3 - Toughpower XT 675W - BenQ GW2450HM - Antec-P180


mikkimás
Gúrú
Póstar: 553
Skráði sig: Mán 03. Feb 2014 18:02
Reputation: 103
Staða: Ótengdur

Re: Samfélagsleg ábyrgð fjármálafyrirtækja

Pósturaf mikkimás » Þri 08. Ágú 2023 17:09

Samfélagsleg ábyrgð fjármálafyrirtækja?

Er það ekki svokallað 'oxymoron'?



Skjámynd

nidur
/dev/null
Póstar: 1363
Skráði sig: Fim 18. Ágú 2011 16:50
Reputation: 192
Staðsetning: In the forest
Staða: Ótengdur

Re: Samfélagsleg ábyrgð fjármálafyrirtækja

Pósturaf nidur » Mið 09. Ágú 2023 16:16

100.000 kr. á hvern einstakling í landinu.

Þeir vilja 10% ávöxtun á 700 milljörðunum sínum að lágmarki. Er það ekki bara basic.



Skjámynd

Höfundur
rapport
Kóngur
Póstar: 7076
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1009
Staða: Ótengdur

Re: Samfélagsleg ábyrgð fjármálafyrirtækja

Pósturaf rapport » Mið 09. Ágú 2023 17:31

nidur skrifaði:100.000 kr. á hvern einstakling í landinu.

Þeir vilja 10% ávöxtun á 700 milljörðunum sínum að lágmarki. Er það ekki bara basic.


Þetta er ástæða til að skipta í nýja smábanka, ef maður getur.

Ef Indó mundi bjóða endurgreiðslu, hagnaðarhlutdeild til innistæðueigenda ef hagnaður færi yfir X% líkt og Allianz, þá yrði bankastarfsemi þeirra nær fullkomin.