Síða 2 af 2
Re: Er lögbundin skilda að flokka?
Sent: Fös 08. Sep 2023 11:37
af Daz
Nokkuð viss um að þú sért að snúa orsakasamhenginu við.
Þá er bara meiri hvati á mann að minnka sorpið sem fellur til frá heimilin.
Re: Er lögbundin skilda að flokka?
Sent: Fös 08. Sep 2023 11:56
af MrIce
Kemur þetta virkilega á óvart? Það er ekkert svona gert nema til að hækka helvítis kostnaðinn.
Tími til að skila þessum tunnum, sækja sér stáltunnu og byrja brenna allt sorp bara í garðinum -.-
Re: Er lögbundin skilda að flokka?
Sent: Fös 08. Sep 2023 11:58
af GuðjónR
MrIce skrifaði:Kemur þetta virkilega á óvart? Það er ekkert svona gert nema til að hækka helvítis kostnaðinn.
Tími til að skila þessum tunnum, sækja sér stáltunnu og byrja brenna allt sorp bara í garðinum -.-
Kemur alls ekki á óvart, því miður.
Re: Er lögbundin skilda að flokka?
Sent: Fös 08. Sep 2023 13:11
af falcon1
Borga meira og vinna kauplaust fyrir sorphirðufyrirtækin. Frábært.
Re: Er lögbundin skilda að flokka?
Sent: Fös 08. Sep 2023 20:13
af thorhs
Daz skrifaði:Nokkuð viss um að þú sért að snúa orsakasamhenginu við.
Þá er bara meiri hvati á mann að minnka sorpið sem fellur til frá heimilin.
Ég var búinn að vera með safnhaug í mörg ár, flokkaði plast og fór samviskulega með það út í sorpu. Safna enn málmum ofl.
Get ég losnað að við þessa tunnu sem ég þarf ekki og kemst ekki fyrir, og sparað þá fjármuni sem fara í þessa hækkun, vinnuna og eldsneyti sem fer í að hirða og plastið sem fór í framleiðslu tunnunar?
Hélt ekki. Tími til að borga fyrir það sem ég þarf ekki og hef ekki áhuga á.
Re: Er lögbundin skilda að flokka?
Sent: Mán 11. Sep 2023 17:51
af jonsig
littli-Jake skrifaði:Vinur minn býr í vogunum og eftir að þetta nýja flokkunar kerfið var sett af stað hefur ástandið snar versnað. Tunnurnar eru ekki tæmdar vikum saman. Síðan kom tilkynning fyrir nokkrum dögum að þar sem að íbúar í blokkinni hjá honum væru að flokka svo illa stæði til að taka ruslið bara ekki.
Nú spyr ég er þetta löglegt?
Harðar tekið á þessu heldur en svartri atvinnustarfsemi.

Re: Er lögbundin skilda að flokka?
Sent: Mán 11. Sep 2023 20:20
af Semboy
Ég sé að sorpa er að reyna ráða þriðja aðila til að aðstoða við sorphirðun.
Virðist vera þeim vantar fleiri starfsmenn.
samkvæmt útboð hjá reykjavikurborg.
Re: Er lögbundin skilda að flokka?
Sent: Mán 11. Sep 2023 22:01
af littli-Jake
jonsig skrifaði:littli-Jake skrifaði:Vinur minn býr í vogunum og eftir að þetta nýja flokkunar kerfið var sett af stað hefur ástandið snar versnað. Tunnurnar eru ekki tæmdar vikum saman. Síðan kom tilkynning fyrir nokkrum dögum að þar sem að íbúar í blokkinni hjá honum væru að flokka svo illa stæði til að taka ruslið bara ekki.
Nú spyr ég er þetta löglegt?
Harðar tekið á þessu heldur en svartri atvinnustarfsemi.

Mikið ofboðslega ofboðslega átt þú bátt.
Re: Er lögbundin skilda að flokka?
Sent: Mán 11. Sep 2023 22:05
af appel
Muniði eftir RÚV löggunni?
Ég fékk hana einu sinni til mín, heimtaði að fá inngöngu í íbúðina mína. Þetta var ekki svo langt síðan, þannig að ég trúi alveg að stjórnvöld gæti endurtekið sama leik.
Re: Er lögbundin skilda að flokka?
Sent: Fim 10. Okt 2024 11:16
af styrmirjons
Re: Er lögbundin skilda að flokka?
Sent: Fim 10. Okt 2024 11:29
af mikkimás
Ég hata ekki að flokka. Finnst það bara fínt.
En sorphirðan sjálf frá stjórnvöldum mætti vera mun tíðari.
Stjórnvöld eru að skjóta sig í fótinn með því að predika flokkun en hirða sorpið jafn sjaldan og þau gera.
Re: Er lögbundin skilda að flokka?
Sent: Fim 10. Okt 2024 21:58
af rapport
Það er af því það er ekki búið að skapa markað fyrurcrusl sem hráefni innanlands og þetta er enn bara 100% kostnaður.
Ef þessu væri öllu brennt þá væri komið rafmagn fyrir rafmagnsbílana og það er mun betri kostur en borga fyrir flutning til útlanda og láta brenna þessu annarstaðar.
Orkuendurvinnsla er umhverfisvænn kostur, betri en urðun sem skapar metan sem enginn notar og er skelfileg gróðurhúsalofttegund.
En það væri gott að safna gasinu og selja á bíla eða nota til að vrenna sorpið heitar og fullkomna orkuendurvinnsluna...