Síða 1 af 1

iColus kominn á markað

Sent: Mán 05. Jún 2023 23:30
af rapport
https://www.mbl.is/frettir/taekni/2023/ ... _gleraugu/

500þ. !!!

Nú er ég orðinn forvitinn, verður Apple fyrst til að láta NFT í einhverjum metaverse fylgja með gleraugum og reyna að skapa umique umhverfi fyrir Apple notendur?

Re: iColus kominn á markað

Sent: Þri 06. Jún 2023 00:28
af Semboy
nft er langt fra tvi astaedan eg hef mikin ahuga a thessu.
Ahyggjur minar er nuna hvort haegt se ad tengja thetta vid bordtolvuna :baby

Re: iColus kominn á markað

Sent: Þri 06. Jún 2023 06:24
af Kjarri81
more like 750 - 800 þús komið hingað með tollum og shit...

Þetta er dautt dæmi, aaaaalltof dýrt. :thumbsd

Engin hefur trú á þessu, sést á apple hlutabréfunum.

Re: iColus kominn á markað

Sent: Þri 06. Jún 2023 06:51
af Hjaltiatla
Kjarri81 skrifaði:more like 750 - 800 þús komið hingað með tollum og shit...

Þetta er dautt dæmi, aaaaalltof dýrt. :thumbsd

Engin hefur trú á þessu, sést á apple hlutabréfunum.


Mér fannst nýju Meta Quest pro VR gleraugun dýr, en þetta er auðvitað rugl :lol:

Re: iColus kominn á markað

Sent: Þri 06. Jún 2023 07:54
af Njall_L
Ætla að vera jákvæði Jói, mér finnst þetta GEGGJAÐ! Ef það sem sýnt var í kynningunni er í takti við raunverulega getu græjunnar þá sé ég fyrir mér að þetta sé búnaður sem gæti gjörbreytt mörgu í okkar umhverfi í framtíðinni og hvernig við eigum samskipti við tölvubúnað og umheiminn. Miðað við hvernig þetta var kynnt þá er þetta það sem ég vonaði alltaf að Microsoft Hololens yrði, en varð aldrei.

Verðið á þessari fyrstu kynslóð er auðvitað langt út fyrir það sem flestir einstaklingar eru til í að eyða í svona en miðað við að fyrst um sinn verði gleraugun bara í boði í US á ég von á að þetta verði svipað og þegar Apple Watch kom fyrst út. Series 0 kom út 2015 á $349 og var hugsað meira sem developer útgáfa sem allir gátu keypt en ári síðar kom síða Series 1 á $269 og var hugsað sem fyrsta consumer græjan.

Ég er því virkilega spenntur að sjá fyrstu hands-on kynningarnar og hvernig þessi græja þróast!

Re: iColus kominn á markað

Sent: Þri 06. Jún 2023 08:31
af Viktor
Mjög spennandi. Hlakka til að prófa.

Ekki skrítið að þetta sé dýrt, þetta er standalone tölva með M2 örgjörva.

Kjarri81 skrifaði:Engin hefur trú á þessu, sést á apple hlutabréfunum.


lol

IMG_5935.jpeg
IMG_5935.jpeg (267.47 KiB) Skoðað 8373 sinnum

Re: iColus kominn á markað

Sent: Þri 06. Jún 2023 08:40
af Kjarri81
Screenshot_2023-06-06-06-26-01-287_com.android.chrome-edit.jpg
Screenshot_2023-06-06-06-26-01-287_com.android.chrome-edit.jpg (144.74 KiB) Skoðað 8365 sinnum

Re: iColus kominn á markað

Sent: Þri 06. Jún 2023 08:43
af Kjarri81
þetta sýnir gærdaginn þegar þetta var kynnt, ekki árið eins og þú sýndir Viktor.

Re: iColus kominn á markað

Sent: Þri 06. Jún 2023 08:46
af Mossi__
Kjarri81 skrifaði:þetta sýnir gærdaginn þegar þetta var kynnt, ekki árið eins og þú sýndir Viktor.


Apple er practically orðið gjaldþrota eftir þennan dag.

Re: iColus kominn á markað

Sent: Þri 06. Jún 2023 08:56
af Kjarri81
Mossi__ skrifaði:
Kjarri81 skrifaði:þetta sýnir gærdaginn þegar þetta var kynnt, ekki árið eins og þú sýndir Viktor.


Apple er practically orðið gjaldþrota eftir þennan dag.


Sagði það aldrei, ef markaðurinn hefði trú á þessu væru hlutabréfin að rjúka upp, ekki lækka eða standa í stað

Sagði aldrei að þetta mundi gjaldþrota apple, ekki einu sinni að þetta skipti apple nokkru máli. Bara að þetta væri dautt dæmi. Eða helduru að þetta seljist kannski vel á 750.000 - 800.000 krónur? Veit ekki um neinn sem ég þekki sem mundi eyða svona pening í svona græju sem missir gimmic gildið eftir mjög stutta notkun :megasmile

Re: iColus kominn á markað

Sent: Þri 06. Jún 2023 09:04
af littli-Jake
Þetta er alveg töff. En djöfull a folk eftir að vera óþolandi með þetta

Re: iColus kominn á markað

Sent: Þri 06. Jún 2023 10:20
af GullMoli
Mér finnst þetta mjög kúl, geggjaður búnaður í þessu M2 chip, 4k MicroLed skjár per auga, spatial audio ofl! Græja sem hefur verið 5+ ár í þróun.

https://twitter.com/sterlingcrispin/sta ... 2914453506

Re: iColus kominn á markað

Sent: Þri 06. Jún 2023 10:27
af Maggibmovie
Flott græja, en verður líklega ekki vinsæl fyrr en í version 2 þegar þeir ná verðinu niður

Re: iColus kominn á markað

Sent: Þri 06. Jún 2023 10:51
af GuðjónR
Ég nenni ekki svona andlitsgrímum. Elon Musk fer að koma með kubb sem græddur er í heila.
Ætla bara að bíða eftir því. Mjög spenntur eftir að hafa horft á þessa seríu, sem er btw. mjög góð!
https://www.rottentomatoes.com/tv/severance

Re: iColus kominn á markað

Sent: Þri 06. Jún 2023 11:16
af Hauxon
Þetta þarf að verða 2-3 cm þykkt og rafhlaðan að endast allan daginn áður en fólk kaupir þetta ...og verðið að fara töluvert niður. Annars bara nokkuð kúl.

Re: iColus kominn á markað

Sent: Þri 06. Jún 2023 15:06
af akarnid
GuðjónR skrifaði:Ég nenni ekki svona andlitsgrímum. Elon Musk fer að koma með kubb sem græddur er í heila.
Ætla bara að bíða eftir því. Mjög spenntur eftir að hafa horft á þessa seríu, sem er btw. mjög góð!
https://www.rottentomatoes.com/tv/severance


Sem er akkúrat framleidd af Apple! Sjúmmsjúmm, steinliggur að koma með product placement fyrir þetta í næstu seríu :)

Re: iColus kominn á markað

Sent: Þri 06. Jún 2023 22:53
af agnarkb
GuðjónR skrifaði:Ég nenni ekki svona andlitsgrímum. Elon Musk fer að koma með kubb sem græddur er í heila.
Ætla bara að bíða eftir því. Mjög spenntur eftir að hafa horft á þessa seríu, sem er btw. mjög góð!
https://www.rottentomatoes.com/tv/severance


Piff, Fóstbræður komu með þetta fyrir 25 árum síðan. Með kallkerfi og svæfingar möguleika

Re: iColus kominn á markað

Sent: Mið 07. Jún 2023 18:14
af urban
Hrikalega töff græja.
Hrikalega dýr græja líka.
Já og einsog einhverjir hérna nefna, almenningur er ekkert að fara að splæsa í þetta núna, hugsanlega version 2 eða 3

Re: iColus kominn á markað

Sent: Mið 07. Jún 2023 19:23
af nidur
Hvað með tímasetninguna, græjan kemur út á næsta ári.

Hvaða annar framleiðandi er með eitthvað svipað sem dettur í búðir fyrir jól?

Re: iColus kominn á markað

Sent: Fös 09. Jún 2023 08:39
af Viktor
Nautin horfin og hlutabréfaverðið komið á sama stað og fyrir kynninguna :roll:

Screenshot 2023-06-09 at 08.38.25.png
Screenshot 2023-06-09 at 08.38.25.png (71.4 KiB) Skoðað 7705 sinnum

Re: iColus kominn á markað

Sent: Sun 09. Júl 2023 12:02
af Hjaltiatla
Apple Is Reportedly Scaling Back Production Plans of Its $3,499 Vision Pro Mixed Reality Headset
https://www.ign.com/articles/apple-is-reportedly-scaling-back-production-plans-of-its-3499-vision-pro-mixed-reality-headset


Production difficulties and the complex design of Apple's $3,499 Vision Pro mixed reality headset have reportedly caused Apple to scale back its internal sales target of 1 million units sold in 2024 as it is worried it won't be able to make enough of its newest device.

As reported by FT, these production issues have also been said to have pushed back the plans for a cheaper version of the Apple Vision Pro, which obviously would be welcome to many as one of the biggest talking points from the headset's reveal was the shocking $3,499 price tag.


Virðist strax vera komið vesen í framleiðslu á Vision Pro eða Apple áttað sig á því að þau þurfi að bjóða uppá ódýrari kost og skala niður framleiðslu á þessum fáránlega dýru mixed reality Gleraugum.

Re: iColus kominn á markað

Sent: Sun 09. Júl 2023 14:28
af rapport
Hjaltiatla skrifaði:Apple Is Reportedly Scaling Back Production Plans of Its $3,499 Vision Pro Mixed Reality Headset
https://www.ign.com/articles/apple-is-reportedly-scaling-back-production-plans-of-its-3499-vision-pro-mixed-reality-headset


Production difficulties and the complex design of Apple's $3,499 Vision Pro mixed reality headset have reportedly caused Apple to scale back its internal sales target of 1 million units sold in 2024 as it is worried it won't be able to make enough of its newest device.

As reported by FT, these production issues have also been said to have pushed back the plans for a cheaper version of the Apple Vision Pro, which obviously would be welcome to many as one of the biggest talking points from the headset's reveal was the shocking $3,499 price tag.


Virðist strax vera komið vesen í framleiðslu á Vision Pro eða Apple áttað sig á því að þau þurfi að bjóða uppá ódýrari kost og skala niður framleiðslu á þessum fáránlega dýru mixed reality Gleraugum.


Þetta er sko plan til að gera þau eftirsóttari... og skapa smá FOMO hjá þeim sem geta og vilja eyða pening í þetta.

Virkilega Apple-legt og var hugsanlega alltaf planið...