Síða 1 af 1

m.2 skrúfur

Sent: Lau 26. Nóv 2022 18:43
af emil40
Sælir félagar.

hvar finn ég m.2 skrúfur til að festa nmve diska við móðurborð ?

Re: m.2 skrúfur

Sent: Sun 27. Nóv 2022 10:18
af krani
eg endaði á því að panta að utan, þar sem engin verslun virtist eiga þessar skrúfur

Re: m.2 skrúfur

Sent: Sun 27. Nóv 2022 16:45
af Templar
Myndi reyna Kísildal, fékk amk. skrúfur þar einu sinni.

Re: m.2 skrúfur

Sent: Sun 27. Nóv 2022 19:08
af kunglao
eg fékk einu sinni M,2 skrúfu hjá Att.is gefins en það var fyrir Gigabyte móðurborð !!!

Re: m.2 skrúfur

Sent: Sun 27. Nóv 2022 20:25
af Benzmann
Getur fengið þannig hjá Fossberg

Best að fara með 1 svona skrúfu til þeirra og segja þeim að þig vantar nkv svona skrúfu og þeir finna hana fyrir þig.

Þeir munu ekki vita hvað þú ert að biðja um ef þú biður um m.2 skrúfu

Re: m.2 skrúfur

Sent: Mán 28. Nóv 2022 12:40
af playman
Ef þú átt gamla fartölvu sem er bara slátur, þá eru góðar líkur á því að þú munir finna skrúfu sem passar.

Re: m.2 skrúfur

Sent: Mán 28. Nóv 2022 12:52
af andarungi
Var í sama veseni fyrir stuttu. Fór í gegnum kassann með gamla tölvudraslinu og fann skrúfu sem passaði í gömlu skjákorti.

Re: m.2 skrúfur

Sent: Mán 28. Nóv 2022 14:29
af Viktor
Þessar skrúfur eru M2×3mm með 0.4mm grófleika (0.4 millimetrar á milli gengjutoppa) :happy