Síða 1 af 1

Er einhver morðbylgja í gangi á Íslandi?

Sent: Mán 10. Okt 2022 14:13
af appel
Hvað er í gangi, morð nánast í hverri viku undanfarið. Búið að vera óhuganlega mikið um þetta svona síðustu 12 mánuði.

Re: Er einhver morðbylgja í gangi á Íslandi?

Sent: Mán 10. Okt 2022 16:16
af GuðjónR
appel skrifaði:Hvað er í gangi, morð nánast í hverri viku undanfarið. Búið að vera óhuganlega mikið um þetta svona síðustu 12 mánuði.

Ég var einmitt að tala um það sama við konuna mína fyrr í dag, tvö drepin á Blönduósi fyrir nokkrum vikum, einn drepinn á Ólafsfirði í síðustu viku og svo ein drepinn í gær. Á sama tíma voru menn að skipuleggja fjöldamorð. Maður spyr sig hvað er í gangi...

Re: Er einhver morðbylgja í gangi á Íslandi?

Sent: Mán 10. Okt 2022 16:26
af codemasterbleep
Þetta eru allt morð þar sem gerandi og fórnarlamb þekkjast eða tengjast.

Tvö eða þrjú morðin falla líklegast undir það sem kallast ofbeldi í nánum samböndum.

Líklegast er um að ræða blöndu af vímuefnanotkun og andlegum erfiðleikum gerenda.

Er eitthvað undirliggjandi sem knýr áfram þessa atburði og tengir þá alla saman? Tæpast.

Líklegast er þetta bara tilviljun að þetta er allt að gerast á stuttu tímabili.

Morðtíðnin á Íslandi er svona rúmlega eitt morð á ári þó svo að það hafi kannski færst nær tveimur morðum á ári síðustu ár. Flest svokölluð "ofbeldi í nánum samböndum" eða framin af fólki í einhverju neyslurússi.

Re: Er einhver morðbylgja í gangi á Íslandi?

Sent: Mán 10. Okt 2022 17:45
af ZiRiuS
Miða við tölur síðustu ár, 2 morð í fyrra, 5 árið 2020 (eldsvoðinn á Bræðraborgarstíg), eitt 2019, þrír 2018, fjórir 2017, eitt 2016... etc...

Að þá myndi ég segja nei. Óeðlilegt kannski að þau gerist á svona stuttum tíma.

Síðan voru afbrotasérfræðingar að tala um aukningu vegna fólksfjölda og eitthvað líka sem kemur inn í.

Re: Er einhver morðbylgja í gangi á Íslandi?

Sent: Mán 10. Okt 2022 20:41
af peer2peer