Sagan samkvæmt vestrænum fréttamiðlum, hérna koma smá nánari upplýsingar.
GuðjónR skrifaði:Fyrir sólarhring sögðust vagner liðar ætla að steypa Pútín af stóli
Pregosin minntist ekkert á Pútin, hann talaði um Surovikin og Gerasimov, og sakaði þá um að hafa bombað Wagner hermenn þegar þeir sneru til baka frá Bakmut. Einnig þá var verið að þvinga Wagner og aðra málaliða til að skrifa undir samninga við Rússneska herinn í seinasta lagi í byrjun Júlí. Það getur hafa haft einhver áhrif.
GuðjónR skrifaði:tóku yfir stjórnstöðvar Rússlandshers í leiðinni
Þeir umkringdu eina af stjórnstöðum Rússlands sem sjá um stríðið í Úkraínu og aðrar ríkisbyggingar í Rostov, Pregosin fór þar inn og reifst við einn commander á svæðinu og hann heimtaði að Surovikin myndi mæta á svæðið og ræða við sig.
GuðjónR skrifaði:og stormuðu í átt að Moskvu
Já svo var bílalest send af stað til Moskvu þegar enginn vildi tala við hann. Pregosin var í þeirri bílalest og ræddi við nokkra í síma, meðal annars Pútin, Surovikin og Lukashenko sem sá um að leysa úr deilunni. Það hefði tekið þessa bílalest 10-20 klst að komast til Moskvu, og það var ekki ráðist á hana á leiðinni.
GuðjónR skrifaði:Pútin talaði um rýting í bakið og ásakaði Wagnerliða um landráð
Leiðtogi Chechena (góður vinur Pregosin) og fl. töluðu líka um rýting í bakið, enda er það alveg rétt lýsing á þessum aðgerðum.
Og hvað er þetta annað en landráð?
GuðjónR skrifaði:Stuttu síðar berast fréttir af Pútín í neðanjarðarbyrgii í annari borg með kúk í nærbuxum.
Hann var á leiðinni til st. petersburg þegar þetta var í gangi.
GuðjónR skrifaði:Einhverjum mínútum síðar berast fréttir að Wagner liðar séu mættir til Hvítarússlands og séu þar pólitískir flóttamenn. Og þá upp úr þurru fá þeir uppreisn æru frá Pútín.
Lukashenko sá um að miðla málum og væntanlega er það ástæðan fyrir því að þeir enda í Hvítarússlandi. Það hefur ekki komið fram hvað var umsamið en líklega færist Surovikin til í starfi og annar kemur inn í staðinn. Einnig fá þeir Wagner liðar sem tóku þátt í þessu ekki möguleika á því að skrifa undir samninginn við rússneska herinn. Og margir eru búnir að gefa sig fram og afhenda vopn.
GuðjónR skrifaði:Allt á innan við 24 klst. Er fólk að kaupa þessa vitleysu?
Því miður þá bendir flest til þess að Pregosin hafi bara mist vitið og vaðið út í þessa vitleysu.
Það var mjög mikilvægt fyrir Rússland að leysa þetta friðsamlega og fljótt.
Ég held að yfirvöldum í Moskvu hafi verið gerður stór greiði með þessu, núna geta þeir losað sig við þá sem tóku þátt, stigu ekki fram. Það varð allavega frekar augljóst á hvern var hægt að treysta. Það fyrsta sem Pútin gerði var að hringja í alla yfirmenn sem stjórna hermönnum í Úkraínu til að sjá hvar þeir standa í þessu máli.
Töluvert erfiðara fyrir vesturlönd núna að fá sína ósk uppfyllta um að losna við Pútin eftir þetta.