Síða 1 af 1

tryggingar vesen RANT

Sent: Mán 18. Júl 2022 20:54
af Semboy
Eg keypti eithvad randyrt fyrirbaeri hja origo og eg missti thad a golfid. Eg fer til tryggingar og their segja, thu thart ad fara med thetta a
vidgerdarstad sem vid vaerum satt med. Eg geri thad naesta dag og afhendi theim gripin. Eg er med helling af spam emails og stein gleymdi ad stadfesta thad a email um ad tryggingarnir eru reidubuinn til ad greida fyrir thessu. Nu eru tveir manudir komnir og eg hringi i tha til ad heyra i theim hvernig thad gengi, their svara.. hey vid fengum aldrei stadfestingu fra ther a email svo vid gerdum ekkert i thessu, eg svara bara afsakid thid megid ganga i malid. Tveir og halfur mandum seinna sem er i dag og spyr hvernig gengur? Ihluturinn sem vantar i verkid er enn ekki komin en vid vonumst ad fa thetta i naestu viku. Svo baetir hann vid thessari settningu thad gaeti kannski verid vid munum ekki geta gert vid thessu en vid reynum okkar besta.

Er thetta edlilegur bidtimi?

Re: tryggingar vesen RANT

Sent: Mán 18. Júl 2022 21:07
af Klemmi
Nú veit ég ekki hvernig þessi samskipti voru.
Baðst þú þá um að bíða eftir því að þú fengir á hreint hvort tryggingarnar ætluðu að greiða fyrir þetta eða ekki?

Ef þú gafst þeim tilefni til að bíða eftir staðfestingu, þá finnst mér ekkert við verkstæðið að sakast fyrir að gera ekkert. En ef þú fórst bara og baðst um að fá þetta viðgert, þá er þetta auðvitað ekki eðlilegur biðtími.

Re: tryggingar vesen RANT

Sent: Mán 18. Júl 2022 21:37
af codemasterbleep
Biðin eftir varahlut er ekkert einsdæmi núna á þessum síðustu og verstu tímum þannig að það er erfitt að ætla sér eitthvað að lasta verkstæði fyrir það.

Re: tryggingar vesen RANT

Sent: Mán 18. Júl 2022 23:07
af Semboy
Klemmi skrifaði:Nú veit ég ekki hvernig þessi samskipti voru.
Baðst þú þá um að bíða eftir því að þú fengir á hreint hvort tryggingarnar ætluðu að greiða fyrir þetta eða ekki?

Ef þú gafst þeim tilefni til að bíða eftir staðfestingu, þá finnst mér ekkert við verkstæðið að sakast fyrir að gera ekkert. En ef þú fórst bara og baðst um að fá þetta viðgert, þá er þetta auðvitað ekki eðlilegur biðtími.


Eg tok thad vel fram thegar eg hitti tha hvad thetta kostadi, svo thad er gefid mal tryggingarnir verda vidbuinn ad borga hvad sem er svo lengi thau geta sparad a tvi en samt thurtu their adra stadfestingu gegnum email thegar vidgerdar kostnadurinn ekki nalaegt verdid a taekinu.
Eg meina their hefdu getad hringd i mig og sagt ja thu ert med eithvad dot hja okkur i x vikur, hvad viltu lata gera ?

Re: tryggingar vesen RANT

Sent: Mán 18. Júl 2022 23:28
af codemasterbleep
Þegar ég les þetta þá hugsa ég bara Sá yðar sem syndlaus er kasti fyrsta steininum.

Þú fékkst tölvupóst sem þú svaraðir ekki. Síðan líður tíminn og verkstæðið fær önnur verk sem þeir sinna og þeir hætta að spá í þínum hlut.

Ég hef ákveðinn skilning á því að fyrirtæki noti bara tölvupósta í þetta. Þá eru sönnunargögn í málinu ef svo skyldi vera að viðskiptavinur neitaði að borga fyrir viðgerð.

Dragðu bara andann djúpt og róaðu þig aðeins.

Við erum öll mannleg og getum gert mistök. Þú líka eins og sannaðist í þessu tilfelli.

Re: tryggingar vesen RANT

Sent: Þri 19. Júl 2022 10:11
af rapport
Verkstæðið hefði átt að gera meira en að senda einn póst, sérstaklega þar sem þetta verkstæði er valið af tryggingafélaginu þá ætti það að vera framlenging af þjónustu tryggingafélagsins og ganga í verkið og bæta tjónið.

Re: tryggingar vesen RANT

Sent: Þri 19. Júl 2022 18:54
af elv
Í fullkomnum heimi væri sendur tölvupóstur, reynt að hringja og sent sms ef það yrði ekki svarað. En á mörgum verkstæðum er þetta sami starfmaðurinn sem er að gera við og er í samskiptum við viðskiptavini. Og þá er nú betra að hann noti tíman í viðgerðir en a eltast við fólk.
En samt fúlt að lenda i þessu.

Re: tryggingar vesen RANT

Sent: Þri 19. Júl 2022 18:57
af Dúlli
Sökin eru algjörlega á þér, í stað þessi að gleyma þessu hefðir þú átt að vera með eftirfylgni.

Varðandi varahlutinn það eru allir í vandræðum þessa daga og mikill skortur á öllu og lítið sem verkstæðið getur gert.

Skil heldur ekki hvernig það er hægt að gleyma "rándýru fyrirbæri".

Re: tryggingar vesen RANT

Sent: Þri 19. Júl 2022 20:10
af Semboy
elv skrifaði:Í fullkomnum heimi væri sendur tölvupóstur, reynt að hringja og sent sms ef það yrði ekki svarað. En á mörgum verkstæðum er þetta sami starfmaðurinn sem er að gera við og er í samskiptum við viðskiptavini. Og þá er nú betra að hann noti tíman í viðgerðir en a eltast við fólk.
En samt fúlt að lenda i þessu.


Eg er svo osammala thessu. En to each his own. Thad a alltaf ad vera fullkominn heimur vid svona vidskipti.

Re: tryggingar vesen RANT

Sent: Mið 20. Júl 2022 09:50
af Dropi
Semboy skrifaði:
elv skrifaði:Í fullkomnum heimi væri sendur tölvupóstur, reynt að hringja og sent sms ef það yrði ekki svarað. En á mörgum verkstæðum er þetta sami starfmaðurinn sem er að gera við og er í samskiptum við viðskiptavini. Og þá er nú betra að hann noti tíman í viðgerðir en a eltast við fólk.
En samt fúlt að lenda i þessu.


Eg er svo osammala thessu. En to each his own. Thad a alltaf ad vera fullkominn heimur vid svona vidskipti.

Heimurinn er svo langt frá því að vera fullkominn, það er ekkert nema tómt vesen og margra mánaða bið eftir öllum varahlutum í dag. Þeir hefðu mátt hringja í þig og ég hefði gert það þegar ég vann á verkstæði áður, en fyrir utan það er þetta bara staðan á heiminum í dag.

"Það á alltaf að vera fullkominn heimur við svona viðskipti" - þetta er kjánalegt viðhorf og ekki tengt við raunveruleikann.

Fylgdu þessu eftir við tryggingarnar ef þeir gera ekki við hlutinn og þú færð þá vonandi nýjan eins hlut.