Síða 1 af 1

Vandræði með að uppfæra app.vegna eldri iphone

Sent: Lau 07. Maí 2022 17:35
af straumar
Hæ, nú fer að koma að eurovision og maður getur kosið á úrslitakvöldi og þegar við keppum með eurovision appinu en til þess þarf maður að sækja nýustu uppfærslu appsins. Er með iphone 6s og þar er ekki hægt að installera nýjasta IOS eða IOS 13 og uppur.

Og eurovision krefst þess að maður hafi IOS 13 til að ná í appið.

Hef reynt að gúggla en ekki kominn inn á góða kennslu í því hvernig maður getur downloadað nyjustu utgafu með eldri IOS.
Einhver sem getur hjalpað þá meina ég án þess að jail breika

kv

Re: Vandræði með að uppfæra app.vegna eldri iphone

Sent: Lau 07. Maí 2022 17:51
af Njall_L
Hvaðan hefuru að iPhone 6s styðji ekki IOS 13 og uppúr?

Samkvæmt þessari (https://support.apple.com/en-is/guide/i ... a5df43/ios) grein er iPhone 6s elsti síminn sem styður IOS 15.4 sem er nýjasta útgáfa.

Re: Vandræði með að uppfæra app.vegna eldri iphone

Sent: Sun 08. Maí 2022 12:49
af straumar
Njall_L skrifaði:Hvaðan hefuru að iPhone 6s styðji ekki IOS 13 og uppúr?

Samkvæmt þessari (https://support.apple.com/en-is/guide/i ... a5df43/ios) grein er iPhone 6s elsti síminn sem styður IOS 15.4 sem er nýjasta útgáfa.


Hæ takk svar.
málið er ég man það nú þegar þú segir þetta ég reyndi að downloada uppfærslu en það gekk aldrei í gegn svo ég taldi að það hlyti að vera af því að iphone 6s ekki styðji það en ég hafði einmitt gúgglað og séð skv. apple síðu ætti að vera hægt að uppfæra í það.

kom alltaf einhver txt þegar ég reyndi að uppfæra :(

Re: Vandræði með að uppfæra app.vegna eldri iphone

Sent: Sun 08. Maí 2022 22:45
af Viktor
Gætir þurft að uppfæra með iTunes

Re: Vandræði með að uppfæra app.vegna eldri iphone

Sent: Þri 10. Maí 2022 14:47
af straumar
Viktor skrifaði:Gætir þurft að uppfæra með iTunes

þegar ég fer í itunes og fer í update þá kemur txt "This version of the iPhone software (12.3.1) is the current version.

er með gamla útgáfu af itunes installeraða í tölvunni og get ekki uppfært í nýjasta þá kemur texti um að þurfi að update tölvuna í nýjustu version af windows (er með win 7)

svo held sé best að leita upp hvernig ég get uppfært nýjasta eurovision með að nota itunes það gekk einu sinni með app sem ekki gekk að ná í i iphone af því það var krafist nýjustu version af IOS.

ég finn bara ekki kennslu video i því lengur :(

kv

Re: Vandræði með að uppfæra app.vegna eldri iphone

Sent: Þri 10. Maí 2022 15:14
af russi
Þú segist hafa reynt uppfærslu en ekki gengið, er síminn þinn bara ekki fullur af gögnum þannig að ekki sé pláss fyrir uppfærslu fælin?

iPhone 6s styður nýjustu útgáfu af iOS eins hefur komið fram, líklega mun hann samt ekki styðja næstu stóru uppfærslu, þ.e.a.s iOS 16

Re: Vandræði með að uppfæra app.vegna eldri iphone

Sent: Þri 10. Maí 2022 15:24
af straumar
síminn er jú fullur en ég var búinn að setja niður í 2 gb laus sem átti að vera nóg samt gekk það ekki.

ég get bara tekið af ca 3 gb (myndir og video) veit ekki hvernig ég get gert meira hvað annað ég get hreinsað. síminn er bara 16 gb

Re: Vandræði með að uppfæra app.vegna eldri iphone

Sent: Þri 10. Maí 2022 16:24
af russi
straumar skrifaði:síminn er jú fullur en ég var búinn að setja niður í 2 gb laus sem átti að vera nóg samt gekk það ekki.

ég get bara tekið af ca 3 gb (myndir og video) veit ekki hvernig ég get gert meira hvað annað ég get hreinsað. síminn er bara 16 gb


Ertu með photos stillt á optimize?
Finnur það Settings-Photos-Optimize iPhone Storage

Re: Vandræði með að uppfæra app.vegna eldri iphone

Sent: Þri 10. Maí 2022 17:12
af straumar
Það er stillt á optimize já

Re: Vandræði með að uppfæra app.vegna eldri iphone

Sent: Þri 10. Maí 2022 21:16
af russi
straumar skrifaði:Það er stillt á optimize já


Þá er líklega eina leiðin fyrir þig er taka afrit af honum og bara formata(factory default), uppfæra og keyra svo afritið inn.

Þú færð aðeins sprækari síma eftir factory default

Re: Vandræði með að uppfæra app.vegna eldri iphone

Sent: Þri 10. Maí 2022 21:29
af straumar
Nú tókst mér að setja upp itunes sem var ekki uppsett hjá vini sem er með win 10 og gekk að uppfæra símann en nú eru allar myndir farnar :( Reyndar stendur í album núna "uppfærir"... Er þá allt að uppfærast það var á einu þrepi sem var beðið um að encrypta og ég gerði já og svo átti að gera eitthvað password og þá gerði ég cancel. Var það mistök. Er síminn að uppfæra og ná í allar myndir og video eða? ég sé að plássið á disknum er það sama það er það var 14.9 fyrir uppfærslu er nuna 15.9 ekki segja mér að ég sé búin að tapa öllum myndum?

Re: Vandræði með að uppfæra app.vegna eldri iphone

Sent: Mið 11. Maí 2022 10:47
af Jón Ragnar
Eru myndinar í icloud hjá þér??

Re: Vandræði með að uppfæra app.vegna eldri iphone

Sent: Fim 12. Maí 2022 21:30
af straumar
Jón Ragnar skrifaði:Eru myndinar í icloud hjá þér??



hæ hef ekki ennþá downloadað icloud i þessari tölvu hja vini minum. ég sé að nú segir síminn að diskurinn er fullur en samt koma bara upp 3 myndir af um 100 sem voru inni og voru um 6 video og koma bara upp 2 video.

sá þetta hér er þetta einhver hjálp :

https://www.ubackup.com/data-recovery-p ... -8975.html