Síða 1 af 1

Andskotans BANK í ofninum

Sent: Sun 26. Des 2021 14:51
af SolidFeather
Hvað í andskotanum veldur þessu helvítis andskotans banki í helvítis ofninum???

Tók hérna smá vídjó af hljóðinu þegar það vakti mig klukkan 6 um morgun. Það heyrist fínt í myndbandinu þegar ég spila það í símanum en það heyrist mjög lítið þegar ég spila það í browser, bara FYI.

Svona hljóð kom af og til en fór svo að koma oftar og oftar eftir að skipt var um ofna í íbúð tveim hæðum fyrir ofan mig. Mér finnst þetta hljóð oft koma líka úr veggnum þar sem inntakið og úttakið er.



Ofninn er annars funheitur og virðist virka eðlilega. Ég prófaði að lofttæma hann og það kemur bara vatn út. Skiptir máli hvort það sé "kveikt" á ofninum þegar lofttæmt er eða þarf að vera skrúfað fyrir rennslið?

Þetta er gamall pottjárnsofn með retúrloka.

Re: Andskotans BANK í ofninum

Sent: Sun 26. Des 2021 14:55
af krat
1-2 atriði sem eru líkleg er að ofninn er að dragast saman og þenjast í hita breytingum, líklegast festur með rörum í útvegg og þetta er stál í stál að nuddast saman, myndir myndu hjálpa til að greina þetta

Re: Andskotans BANK í ofninum

Sent: Sun 26. Des 2021 15:02
af GuðjónR
Hversu „fersk“ er steikin í ofninum? :lol:

Re: Andskotans BANK í ofninum

Sent: Sun 26. Des 2021 16:02
af Onyth
Á éééég að gera það?

Re: Andskotans BANK í ofninum

Sent: Sun 26. Des 2021 20:31
af ColdIce
A6E3B0B7-0AD7-4FD0-B5F9-1B5A27BA3C81.jpeg
A6E3B0B7-0AD7-4FD0-B5F9-1B5A27BA3C81.jpeg (68.85 KiB) Skoðað 3136 sinnum

Re: Andskotans BANK í ofninum

Sent: Sun 26. Des 2021 23:31
af Stuffz
Fannst þetta videó einu sinni hjálplegt..

Re: Andskotans BANK í ofninum

Sent: Mán 27. Des 2021 17:38
af ÓmarSmith
Fékk nýjan ofn í stofuna núna í Nóvember og þarf að díla við þetta bank í hvert einasta skipti sem ég opna svalahurðina ;)

þetta virðist vera bara kuldi og hiti, en ég þarf ekki annað en rétt snerta hann, setja þrýsting í hvaða átt sem er þá snar hættir þetta.En kemur leið og ég sleppi puttanum af honum.


Átti alltaf eftir að spyrja píparann út í þetta.

Re: Andskotans BANK í ofninum

Sent: Mán 27. Des 2021 18:36
af JReykdal
Eftir þetta fóstbræðraskets þá þorir enginn að hringja í pípara út af banki í ofnum.