Síða 1 af 1

Hagnaður Landsvirkjunar vs Landsbanka.

Sent: Fös 19. Nóv 2021 17:56
af GuðjónR
Svolítið sérstakt að bera saman gullgæs þjóðarinnar Landsvirkjun, við Landsbankann.
Landsvirkjun hagnast um 13 milljarða fyrstu 9 mánuði ársins meðan afkoma Landsbanka er jákvæð um 21 milljarð.
Landsvirkjun framleiðir alla þessa orku meðan Landsbankin framleiðir ekkert...bara "raf-peninga" ... engin raunveruleg verðmæti.


https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/20 ... rda_krona/
https://www.landsbankinn.is/bankinn/fja ... udi-arsins

Re: Hagnaður Landsvirkjunar vs Landsbanka.

Sent: Fös 19. Nóv 2021 18:13
af TheAdder
Það er hrein og bein klikkun hvað fjármálageiranum er leyft að "framleiða" peninga.

Re: Hagnaður Landsvirkjunar vs Landsbanka.

Sent: Fös 19. Nóv 2021 19:25
af Klemmi
Þarf ekki að fara að einkavæða Landsvirkjun?

Við erum að borga allt of lítið fyrir rafmagn, ætti bara að tvöfalda verðið svo við séum nær Evrópu, og best ef að einhverjir klárir viðskiptakallar í einkageiranum fái að sjá um það og borgi sér svo flotta bónusa.

Re: Hagnaður Landsvirkjunar vs Landsbanka.

Sent: Fös 19. Nóv 2021 19:31
af GuðjónR
Klemmi skrifaði:Þarf ekki að fara að einkavæða Landsvirkjun?

Við erum að borga allt of lítið fyrir rafmagn, ætti bara að tvöfalda verðið svo við séum nær Evrópu, og best ef að einhverjir klárir viðskiptakallar í einkageiranum fái að sjá um það og borgi sér svo flotta bónusa.


hahaha þefa smá kaldhæði...
Vandamálið er stóriðjan, hún fær 85% af rafmagninu á gjafprís.
Þessi græna orka ætti að vera dýrari en kola-orkan ekki öfugt.

Re: Hagnaður Landsvirkjunar vs Landsbanka.

Sent: Fös 19. Nóv 2021 20:14
af TheAdder
GuðjónR skrifaði:
Klemmi skrifaði:Þarf ekki að fara að einkavæða Landsvirkjun?

Við erum að borga allt of lítið fyrir rafmagn, ætti bara að tvöfalda verðið svo við séum nær Evrópu, og best ef að einhverjir klárir viðskiptakallar í einkageiranum fái að sjá um það og borgi sér svo flotta bónusa.


hahaha þefa smá kaldhæði...
Vandamálið er stóriðjan, hún fær 85% af rafmagninu á gjafprís.
Þessi græna orka ætti að vera dýrari en kola-orkan ekki öfugt.


Nei nei, við [i] verðum [/i ]að vera með ódýra orku til þess að fá til okkar grunn framleiðslu og geta sent allan hagnað í öruggt skjól hjá erlendum eigendum \:D/