Síða 1 af 1

Review á Extremetech, AMD vs Intel í leikjum

Sent: Mið 02. Nóv 2005 22:08
af kristjanm
Extremetech voru að gera review þar sem þeir etja saman Pentium 4 640 (3.2GHz/2MB L2) og AMD Athlon64 3500+.

Þeir nota aðeins betri aðferð að mínu mati við að bera örgjörvana saman þó að hún sé ekki alveg jafn nákvæm og hefðbundnar aðferðir.

Ég vissi að AMD væru hraðari, en ekki með svona svakalegum mun.

http://www.extremetech.com/article2/0,1 ... 733,00.asp

Sent: Fim 03. Nóv 2005 08:46
af hahallur
Hefði ekki verið sniðugara að bera hann saman við 3400mhz P4.

Sent: Fim 03. Nóv 2005 09:17
af MezzUp
hahallur skrifaði:Hefði ekki verið sniðugara að bera hann saman við 3400mhz P4.
Nei, það finnst mér ekki. Ef eitthvað er hafði átt að bera hann saman við 3.0GHz P4(630) sem kostar 16.950 á móti 17.250 kr. sem 3500+ kostar. Verðmunurinn á örgjörvunum í þessari prófun er þó ásættanlegur(17.250 kr. og 20.450 kr.), en 7.200 kr. verðmunurinn á 3500+ og P4 650(sem er 3400MHz) finnst mér óþarflega mikill.
Á endanum snýst þetta allt um bang/buck er það ekki? Mér finnst a.m.k. óþarfi að bera saman örgjörva eftir því hversu mörg MHz þeir eru, eða hversu hraðir þeir eiga að vera.

Sent: Fim 03. Nóv 2005 17:14
af ICM
Það á að bera saman örgjörva eftir verðflokki