Síða 1 af 1

Breyting á Laptop.is

Sent: Þri 21. Sep 2021 09:36
af Klemmi
Sælir félagar,

ég var að endurskrifa Laptop.is, þar sem líkt og einhverjir hafa mögulega tekið eftir, þá hef ég verið latur við að uppfæra leitarniðurstöðurnar þar undanfarið, sem var að sökum tæknilegra vanhaga á hönnun kerfisins frá upphafi sem gerði það að verkum að það var óþarflega mikið maus og illa hægt að láta þær uppfærast sjálfkrafa. Núna keyrir scraper sjálfkrafa og uppfærir verð nokkrum sinnum á dag og hendir út óvirkum tölvum.

Útlitið er snarbreytt og mun kannski sumum finnast það til hins verra, en það var aðallega gert til þess að síðan virkaði betur í símum og öðrum smátækjum.

Nú er auðveldara að deila niðurstöðum, en urlið í vafra uppfærist sjálfkrafa í samræmi við síurnar.

Það vantar einhverja fítusa sem voru á gömlu síðunni, kannski helst það að velja ákveðnar tölvur til samanburðar, en ég var ekki viss um að margir væru að nota þann fítus...

Ég veit að niðurstöður líta ekki fullkomnlega út í mobile, en þetta ætti að virka og ef einhverjum leiðist rosalega, þá má sá hinn sami alveg taka snúning á git-repoinu og skella í pull request með stýliseringum eða breytingum :)
https://github.com/Klemminn/laptop-client/

Annars látið þig mig vita ef þið takið eftir einhverjum böggum, eða ef allar breytingarnar eru ómögulegar :fly

Bestu kveðjur,
Klemmi

Re: Breyting á Laptop.is

Sent: Þri 21. Sep 2021 09:54
af Mossi__
Þetta er bara hin argasta snilld.

10/10.

Re: Breyting á Laptop.is

Sent: Þri 21. Sep 2021 15:15
af Plushy
Mjög flott!

Væri gaman ef síðan gæti sýnt verðsögu á vélunum

Mögulega þá líka tekið eftir því ef vara er á tilboði sömuleiðis

Flott að það sýni verð hærra verð á sömu vöru hjá öðrum fyrirtækjum ef hún er til þar líka.

Edit: svipað og svona:

Mynd

Mynd

og mögulega haft smá thumbnail af myndinni á síðunni?

Raða eftir: Nýjast, Tilboð, Mesti afsláttur í %, Mesti afsláttur í KR. aukalega eftir hinar síurnar :happy

Re: Breyting á Laptop.is

Sent: Þri 21. Sep 2021 15:42
af Klemmi
Plushy skrifaði:Mjög flott!


Takk fyrir :hjarta

Plushy skrifaði:og mögulega haft smá thumbnail af myndinni á síðunni?


Ég skil ekki alveg, thumbnail af hvaða mynd? :D

Finnst mjög góð hugmynd að hafa verðsögu og kannski einhvern sýnileika varðandi hana ef verð hafa raunverulega lækkað, en ég er ekki alveg viss um að ég sé hrifinn af afsláttar fítusunum, þar sem ég vil ekki verðlauna verslanir fyrir að hafa há verð til að geta boðið mikinn afslátt :megasmile

Re: Breyting á Laptop.is

Sent: Þri 21. Sep 2021 15:48
af Lexxinn
Hef oft farið inn á þessa síðu bara til að leika mér í leitinni og skoða. Virkilega skemmtilegt project og flott framlag!
Nýja lúkkið fýla ég enn betur.
Var ekki slider fyrir verð á gamla?

Re: Breyting á Laptop.is

Sent: Þri 21. Sep 2021 15:57
af Klemmi
Lexxinn skrifaði:Var ekki slider fyrir verð á gamla?


Haha jú, ég ákvað að sleppa honum til að byrja með og sjá hvort einhver myndi óska eftir honum, þar sem ég var ekki viss um notagildið :D

Lítið mál að bæta honum við aftur ef hann er nytsamur :)

Re: Breyting á Laptop.is

Sent: Þri 21. Sep 2021 16:01
af Lexxinn
Klemmi skrifaði:
Lexxinn skrifaði:Var ekki slider fyrir verð á gamla?


Haha jú, ég ákvað að sleppa honum til að byrja með og sjá hvort einhver myndi óska eftir honum, þar sem ég var ekki viss um notagildið :D

Lítið mál að bæta honum við aftur ef hann er nytsamur :)


Gæti verið gagnlegt til að sigta út ef fólk ætlar ekki að spreða yfir t.d. 200k í tölvu að losna þá við allar niðurstöður umfram það.
Keyri enn á Macbook vagninum svo hef ekki persónuelga þurft að nota síðuna í annað en hnísast um pc laptop markaðinn en virkilega sniðug síða.

Re: Breyting á Laptop.is

Sent: Fim 23. Sep 2021 10:07
af Dropi
Ég notaði síðuna þína mjög reglulega í vinnuni við að aðstoða menn varðandi fartölvukaup, núna er ég að skipta um vinnu svo að í framtíðinni færðu minni traffík frá mér því miður. En það sem ég fílaði einmitt mest var að allir takkarnir voru berir vinstra megin og ég gat snögglega hakað í þá sem ég vildi án þess að fara í gegnum flettilista, skrolla eða þess háttar.

Kannski er ég bara með ofnæmi fyrir dropdown listum (sjá bilasolur.is ... ugh...) en mér fanst gamla viðmótið argandi snilld. En það nýja er virkilega flott.

Edit: vá ok, vel gert, núna ertu með mörg verð á sömu tölvunni í sama item án þess að sama tölvan komi oft frá mismunandi söluaðilum.. virkilega flott!

Re: Breyting á Laptop.is

Sent: Fim 23. Sep 2021 10:38
af Klemmi
Dropi skrifaði:En það sem ég fílaði einmitt mest var að allir takkarnir voru berir vinstra megin og ég gat snögglega hakað í þá sem ég vildi án þess að fara í gegnum flettilista, skrolla eða þess háttar.

Kannski er ég bara með ofnæmi fyrir dropdown listum (sjá bilasolur.is ... ugh...) en mér fanst gamla viðmótið argandi snilld.


Haha, ég skil þig fullkomnlega!

Ég var aðallega hræddur um hvað þetta var orðið yfirþyrmandi magn af tökkum, 10 búðir, 11 framleiðendur, 14 örgjörva "fjölskyldur". En kannski prófa ég næst þegar ég er í stuði að setja takkana aftur inn og sjá hvernig það kemur út, lofa þó engu :)

Það er auðvitað eitthvað fínpúss eftir... þarf að setja loader, hún er of lengi að sækja tölvurnar til að hafa svona auðan skjá.

Re: Breyting á Laptop.is

Sent: Fim 23. Sep 2021 12:12
af Viktor
Klemmi skrifaði:
Dropi skrifaði:En það sem ég fílaði einmitt mest var að allir takkarnir voru berir vinstra megin og ég gat snögglega hakað í þá sem ég vildi án þess að fara í gegnum flettilista, skrolla eða þess háttar.

Kannski er ég bara með ofnæmi fyrir dropdown listum (sjá bilasolur.is ... ugh...) en mér fanst gamla viðmótið argandi snilld.


Haha, ég skil þig fullkomnlega!

Ég var aðallega hræddur um hvað þetta var orðið yfirþyrmandi magn af tökkum, 10 búðir, 11 framleiðendur, 14 örgjörva "fjölskyldur". En kannski prófa ég næst þegar ég er í stuði að setja takkana aftur inn og sjá hvernig það kemur út, lofa þó engu :)

Það er auðvitað eitthvað fínpúss eftir... þarf að setja loader, hún er of lengi að sækja tölvurnar til að hafa svona auðan skjá.


Held að þetta sé rétt ákvörðun.

Það er talað um að viðmiðið sé í kringum 3-5 atriði. Ef þú ert kominn með fleiri en fimm, þá viltu fara að skipta út radio fyrir select list.

Re: Breyting á Laptop.is

Sent: Fim 23. Sep 2021 17:26
af netkaffi
Djus snills.

Re: Breyting á Laptop.is

Sent: Lau 25. Sep 2021 04:04
af Brimklo
Mjög flott!

Re: Breyting á Laptop.is

Sent: Lau 25. Sep 2021 06:50
af Climbatiz
ef þú ert að leita af inspiration þá finnst mér þessi gríska (anything you want to find) sölusíða með góða eiginleika þegar kemur að tölvuvörum >>> https://www.skroutz.gr/c/1269/technolog ... m=families

Re: Breyting á Laptop.is

Sent: Sun 26. Sep 2021 10:01
af Hizzman
Frábært!

það væri alveg gott að hafa möguleika á að sía/raða eftir þyngd.

fæ líka eina lenovo þegar ég vel acer