Ferðalög - ferðasögur

Allt utan efnis

Er tímabært að fara ferðast erlendis?

1 - Hell No!
32
15%
1 - Eingöngu fullbólusettir
28
13%
1 - Eingöngu fullbólusettir og börn
17
8%
1 - Já já, allir eiga að ferðast
9
4%
2 - Eingöngu til landa þar sem allt er undir control
26
12%
2 - Ekki Ameríku
5
2%
2 - Ekki Asíu
7
3%
2 - Ekki EU
2
1%
2 - Ekki Afríku
9
4%
2 - Bara innanlands
13
6%
3 - Fara bara varlega, passa persónulegar sóttvarnir
33
16%
3 - Ekki nota almenningssamgöngur, Uber o.þ.h. nema nauðsynlegt sé
6
3%
3 - Ekki fara í skemmtigarða
8
4%
3 - Ekki fara á skyndibitastaði
3
1%
3 - Ekki fara á veitingastaði
2
1%
3 - Ekki fara á íþróttaviðburði, tónleika, leikhús o.þ.h.
12
6%
 
Samtals atkvæði: 212

Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4168
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1301
Staða: Ótengdur

Re: Ferðalög - ferðasögur

Pósturaf Klemmi » Sun 25. Júl 2021 16:06

Graven skrifaði:Finnst engum skrýtið hvað er verið að gera?
Til hvers að opna landamærin uppá gátt þegar þetta var augljóslega niðurstaðan?
Til hvers að byrja á þessum aðgerðum þegar þetta er bara mjög væg flensa?

Tjah, vitum við hvaða áhrif delta afbrigðið hefur á óbólusett 16 ára og yngri börn?
Finnst þér skrítið að sóttvarnarlæknir fari frekar öruggu leiðina heldur en að gambla með líf fólks, þegar í ljós kemur að bólusetningar hafa ekki jafn mikil áhrif of vonast var til þegar kemur að hlutfalli sýktra, þegar rannsóknir benda til þess að 2. og 3. skammtur af bóluefninu muni líklega hafa tilætluð áhrif, ef við bara getum beðið eftir þeim?
Að 97% sýni væg eða engin einkenni þýðir að 3% falla þar utan. Ræður heilbrigðiskerfið við það að slíkt magn af íslensku þjóðinni þurfi aðhald og mögulegar innlagnir á stuttum tíma, ef við missum veiruna í algjöran veldisvöxt?

Auk þess er spurning hvort að 97% hlutfallið sé marktækt, við erum enn með tiltölulega lítið mengi smitaðra, erfitt að fullyrða um að útfæra megi þetta mengi yfir alla þjóðina, hvað þá elsta og viðkvæmasta hópinn.

https://www.visir.is/g/20212136582d/eng ... insdeildir
Síðast breytt af Klemmi á Sun 25. Júl 2021 16:11, breytt samtals 2 sinnum.

Skjámynd

Graven
Nörd
Póstar: 135
Skráði sig: Mán 21. Nóv 2011 21:59
Reputation: 41
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Re: Ferðalög - ferðasögur

Pósturaf Graven » Sun 25. Júl 2021 16:51

Klemmi skrifaði:
Graven skrifaði:Finnst engum skrýtið hvað er verið að gera?
Til hvers að opna landamærin uppá gátt þegar þetta var augljóslega niðurstaðan?
Til hvers að byrja á þessum aðgerðum þegar þetta er bara mjög væg flensa?

Tjah, vitum við hvaða áhrif delta afbrigðið hefur á óbólusett 16 ára og yngri börn?
Finnst þér skrítið að sóttvarnarlæknir fari frekar öruggu leiðina heldur en að gambla með líf fólks, þegar í ljós kemur að bólusetningar hafa ekki jafn mikil áhrif of vonast var til þegar kemur að hlutfalli sýktra, þegar rannsóknir benda til þess að 2. og 3. skammtur af bóluefninu muni líklega hafa tilætluð áhrif, ef við bara getum beðið eftir þeim?
Að 97% sýni væg eða engin einkenni þýðir að 3% falla þar utan. Ræður heilbrigðiskerfið við það að slíkt magn af íslensku þjóðinni þurfi aðhald og mögulegar innlagnir á stuttum tíma, ef við missum veiruna í algjöran veldisvöxt?

Auk þess er spurning hvort að 97% hlutfallið sé marktækt, við erum enn með tiltölulega lítið mengi smitaðra, erfitt að fullyrða um að útfæra megi þetta mengi yfir alla þjóðina, hvað þá elsta og viðkvæmasta hópinn.

https://www.visir.is/g/20212136582d/eng ... insdeildir

Ég spurði líka að þessu í því sem þú vitnar í, þú getur ekki átt kökuna og geymt hana.
Það þarf annaðhvort að leyfa ferðaþjónustunni að deyja að miklu leyti, eða leyfa..tja slatta af íslendingum að deyja.
Ég veit hvað ég hefði valið, mér er alveg sama um einhverja örfáa ríka einstaklinga sem eru að gráta í fjölmiðlum.
Þeir sem missa störf finna sér bara eitthvað annað að gera.

En þetta hefði átt að gera fyrir löngu, annaðhvort að loka landamærunum og halda þeim lokuðum, eða ekki. Þetta jójó ástand gerir ekkert fyrir neinn.

en ég spyr aftur, finnst engum þetta skrýtið? sér enginn neitt að þessu? hverju er stefnt að? ég er með frekar opinn hug, get ekki séð nema að það sé eitthvað nefarious í gangi.

Have never lost an argument. Fact.

machinefart
Ofur-Nörd
Póstar: 288
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2014 12:23
Reputation: 34
Staða: Ótengdur

Re: Ferðalög - ferðasögur

Pósturaf machinefart » Sun 25. Júl 2021 18:24

Graven skrifaði: þú getur ekki átt kökuna og geymt hana.

Jújú, ef ég baka köku og set hana inn í ísskáp. Þá bæði á ég köku og er að geyma hana.

Sorry :megasmile

Skjámynd

Graven
Nörd
Póstar: 135
Skráði sig: Mán 21. Nóv 2011 21:59
Reputation: 41
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Re: Ferðalög - ferðasögur

Pósturaf Graven » Sun 25. Júl 2021 18:32

machinefart skrifaði:
Graven skrifaði: þú getur ekki átt kökuna og geymt hana.

Jújú, ef ég baka köku og set hana inn í ísskáp. Þá bæði á ég köku og er að geyma hana.

Sorry :megasmile

Haha á auðvitað að vera "étið". ég er enn að læra íslensku. Je vous remercie.

Have never lost an argument. Fact.

Skjámynd

Höfundur
rapport
Kóngur
Póstar: 7013
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 986
Staða: Ótengdur

Re: Ferðalög - ferðasögur

Pósturaf rapport » Mán 26. Júl 2021 12:05

Var að heyra að fólki er smalað saman í sömu biðröð við Suðurlandsbraut, bæði þeim sem eru með einkenni og svo þeim sem þurfa PCR eða Antigen próf til að fara úr landi, s.s. allir á leið í flug, bæði Ís- og útlendingar.

Það var ekki skemmtileg lýsingin sem ég fékk úr röðinni og anddyrinu.

Er einhver önnur leið til að fara í próf?

Skjámynd

daaadi
Nýliði
Póstar: 24
Skráði sig: Lau 12. Okt 2019 16:57
Reputation: 4
Staða: Ótengdur

Re: Ferðalög - ferðasögur

Pósturaf daaadi » Mán 26. Júl 2021 12:45

rapport skrifaði:Er einhver önnur leið til að fara í próf?

https://covidtest.is/

Skjámynd

thrkll
Nörd
Póstar: 103
Skráði sig: Sun 01. Mar 2020 00:55
Reputation: 51
Staða: Ótengdur

Re: Ferðalög - ferðasögur

Pósturaf thrkll » Mán 26. Júl 2021 14:42

Graven skrifaði:Þeir sem missa störf finna sér bara eitthvað annað að gera.

Þú ættir nú að senda þetta stórsniðuga ráð á Vinnumálastofnun og Seðlabankann. :guy
Þetta væru ekki nema svona 50 þús manns (apr '20) sem þurfa að finna sér eitthvað annað að gera.

Kannski opna Vapeshop eða byrja á OnlyFans. :D

Tbot
/dev/null
Póstar: 1476
Skráði sig: Þri 01. Nóv 2011 13:42
Reputation: 304
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Re: Ferðalög - ferðasögur

Pósturaf Tbot » Mán 26. Júl 2021 15:13

thrkll skrifaði:
Graven skrifaði:Þeir sem missa störf finna sér bara eitthvað annað að gera.

Þú ættir nú að senda þetta stórsniðuga ráð á Vinnumálastofnun og Seðlabankann. :guy
Þetta væru ekki nema svona 50 þús manns (apr '20) sem þurfa að finna sér eitthvað annað að gera.

Kannski opna Vapeshop eða byrja á OnlyFans. :D

Bara fyrir stuttu þá var ferðaþjonustan að kvarta hversu erfiðlega gengi að ná í starfsfólk aftur.

Skjámynd

Höfundur
rapport
Kóngur
Póstar: 7013
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 986
Staða: Ótengdur

Re: Ferðalög - ferðasögur

Pósturaf rapport » Mán 26. Júl 2021 16:11

Þetta hefur bitnað á öllum og m.v. allt þá er ótrúlegta að sjá atvinnuleysi aukast í sumum flokkum þarna.

https://vinnumalastofnun.is/maelabord-o ... celskjolum

Capture.PNG
Capture.PNG (66.28 KiB) Skoðað 1702 sinnum

Skjámynd

Höfundur
rapport
Kóngur
Póstar: 7013
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 986
Staða: Ótengdur

Re: Ferðalög - ferðasögur

Pósturaf rapport » Mán 26. Júl 2021 16:11

daaadi skrifaði:
rapport skrifaði:Er einhver önnur leið til að fara í próf?

https://covidtest.is/

Þarf PCR þangað sem ég er að fara.

Skjámynd

ZiRiuS
Of mikill frítími
Póstar: 1796
Skráði sig: Þri 08. Nóv 2005 15:19
Reputation: 387
Staðsetning: Við tölvuna
Staða: Ótengdur

Re: Ferðalög - ferðasögur

Pósturaf ZiRiuS » Mán 26. Júl 2021 21:06

rapport skrifaði:
daaadi skrifaði:
rapport skrifaði:Er einhver önnur leið til að fara í próf?

https://covidtest.is/

Þarf PCR þangað sem ég er að fara.

Að fara í þessa röð er langt frá því að vera eitthvað hræðilegt. Á meðan þú ert ekki ofan í næstu manneskju, ert með grímu og hanska að þá þarf ansi mikið til þess að þú smitist. Þú átt ekki að mæta þarna með einkenni og ef svo vill til að þú sért smitaður að þá er mesta biðin úti. Þegar þú ert kominn inn tekur þetta svona 5 mínútur í mesta lagi, ef svo lengi.

Ég fór á föstudaginn fyrir rúmri viku, semsagt ekki jafn mikið um fólk og núna en það var samt biðröð út úr bílastæðinu.

Turn: Cooler Master Mastercase H500M Móðurborð: Asus ROG Maximus XI Hero
CPU: Intel Core i9-9900K 3.6GHz (Coffee Lake) GPU: EVGA GeForce RTX 2080 Super FTW3 Ultra Gaming
RAM: Corsair Vengeance LPX 32GB (4x8GB) DDR4 PC4-28800C18 3600MHz Quad Channel Kit
PSU: Corsair AX850 Titanium 80 Plus Titanium Modular SSD: Samsung 970 PRO 512GB M.2 2280 PCI-e 3.0 x4 NVMe

Skjámynd

Höfundur
rapport
Kóngur
Póstar: 7013
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 986
Staða: Ótengdur

Re: Ferðalög - ferðasögur

Pósturaf rapport » Fim 29. Júl 2021 10:10

Jæja, þetta gekk en ferðalag sem hefði fyrir covid tekið um 10 klst. tók 14-15 klst. frá því að maður gekk út heima hjá sér þangað til maður var kominn inn á áfangastað.

Í KEF þá var auðvelt að koma sér fyrir einhverstaðar til hliðar frá öðru fólki þar sem það er ekki allt á 100% capacity.

Í Budapest fórum við beint út í bíl og keyrðum í um 4 klst. yfir til Serbíu, þrátt fyrir að vera á ferð um miðja nótt þá tók um klukkutíma að bíða á landamærunum.

Hér er ekki grímuskylda nema inni í verslunum, skrítið að sjá fólk í strætó ekki með grímu. En við forðumst allt svona og erum með bíl sjálf, erum með íbúð en ekki á hóteli og munum forðast fjölmenni.

En úff, maður kemur í 37 stiga hita og þornar í hálsinum og fer strax í panic... í hausnum er maður kominn með covid.

Það mun líklega taka einhverja daga að ná að róa hugann smá.

Skjámynd

Höfundur
rapport
Kóngur
Póstar: 7013
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 986
Staða: Ótengdur

Re: Ferðalög - ferðasögur

Pósturaf rapport » Þri 17. Ágú 2021 21:31

Jæja kominn heim og enginn með covid.

Tókst að krækja mér í matareitrun eða einhverja hressilega serbneska flensu sem skemmdi svolítið fyrir fríinu. Fór í tvö covid test úti bara til að vera viss því að það sannarlega skapaði panik að verða veikur á ferðlagi þrátt fyrir að hafa passað upp á allar sóttvarnir.

Að fara yfir landamæri Ungverjalands/Serbíu gekk vel en bara langur biðtími og blesunarlega vorum við með bílstjóra sem valdi rólega lita landamærastöð með 30min bið + 30 min auka akstri þegar internatið varaði við allt að 4 klst. bið á landamærastöðinni sem hraðbrautin fer í gegnum.

Í Serbíu var grímuskylda allstaðar inni en úti gekk fólkum án grímu. Í Ungverjalandi var hvergi grímuskylda en í morgunmat á hótelinu var öllu pakkað, ein ostsneið á disk undir heimilisplasti o.þ.h. þannig að mjög var vandað til verka.

Var annars á bíl og keyrði helling (þurfti að panta nokkra daga hjá sitt hvorri leigunni því enginn átti bíl allan tímann, Avis sökkaði í öllu og bíllinn hræ, Europcar sló í gegn, fékk nýlegan FIAT 500L sport (made in Serbia) og geggjaða þjónustu.

Skoðaði bæinn Subotica, Palic vatn, Petrovaradin virkið í Novi Sad þar sem EXIT festival er haldið (fórum út að borða þar fancy fancy). Heimsóttum víngerðina KIS í Sremski Karlovci og skoðuðum bæinn og útivistasvæðið fyrir utan hann í jaðri Fruska Gora þjóðgarðarins. Heimsóttum æskuheimili vinar okkar í Rakovac og skoðuðum Kamenički park. Keyrðum um Fruska Gora og til Ruma að skoða smá og fórum svo dagsferð til Pozarevac þar sem dóttir mín var að hitta vinkonu sína.

Geggjað ferðalag og hefði verið perfect ef ég hefði ekki krækt í þennan flensu viðbjóð.
20210809_133908.jpg
20210809_133908.jpg (178.74 KiB) Skoðað 1299 sinnum
20210811_150251.jpg
20210811_150251.jpg (502.71 KiB) Skoðað 1299 sinnum
20210811_201735.jpg
20210811_201735.jpg (156.11 KiB) Skoðað 1299 sinnum

Skjámynd

Dropi
FanBoy
Póstar: 770
Skráði sig: Fim 10. Júl 2008 20:54
Reputation: 223
Staða: Ótengdur

Re: Ferðalög - ferðasögur

Pósturaf Dropi » Mið 18. Ágú 2021 10:37

rapport skrifaði:Jæja kominn heim og enginn með covid.

Frábært að heyra. Ég verð í Króatíu næstu 3 vikurnar og hef farið þangað nær árlega í mörg ár. Aldrei komið til Serbíu en hef farið og fengið mér vín við landamærin. Verð í Pula, svo Cres, svo Osijek, og flýg á Zagreb í gegnum Frankfurt, en venjulega fer ég beint til Budapest og þaðan keyrt niður til Osijek nema við séum eingöngu að fara á ströndina.

Hlakka til að skoða Serbíu og Svartfjallaland næst.

34UC98 3440x1440p80Hz Curved - Logitech G5 mkII - dasKeyboard Professional 4
Xiaomi Mi Notebook Pro 15 i7/16/256
R5 5600 - 32GB DDR4@3200 - ASRock B450M-Pro4 - Zotac RTX 3080Ti Holo Amp
Unraid Xeon E5 2637 v4 - 256GB DDR4 ECC - Huananzhi F8 X99 - 4x 4TB Seagate Exos SAS

Skjámynd

Höfundur
rapport
Kóngur
Póstar: 7013
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 986
Staða: Ótengdur

Re: Ferðalög - ferðasögur

Pósturaf rapport » Mið 18. Ágú 2021 11:43

Dropi skrifaði:
rapport skrifaði:Jæja kominn heim og enginn með covid.

Frábært að heyra. Ég verð í Króatíu næstu 3 vikurnar og hef farið þangað nær árlega í mörg ár. Aldrei komið til Serbíu en hef farið og fengið mér vín við landamærin. Verð í Pula, svo Cres, svo Osijek, og flýg á Zagreb í gegnum Frankfurt, en venjulega fer ég beint til Budapest og þaðan keyrt niður til Osijek nema við séum eingöngu að fara á ströndina.

Hlakka til að skoða Serbíu og Svartfjallaland næst.

Kjánalega stutt á milli okkar þarna. Ertu ekkert að kafna í þessum hita sem hefur verið?

Capture.PNG
Capture.PNG (1.05 MiB) Skoðað 1214 sinnum

Skjámynd

Dropi
FanBoy
Póstar: 770
Skráði sig: Fim 10. Júl 2008 20:54
Reputation: 223
Staða: Ótengdur

Re: Ferðalög - ferðasögur

Pósturaf Dropi » Mið 18. Ágú 2021 12:58

rapport skrifaði:
Dropi skrifaði:
rapport skrifaði:Jæja kominn heim og enginn með covid.

Frábært að heyra. Ég verð í Króatíu næstu 3 vikurnar og hef farið þangað nær árlega í mörg ár. Aldrei komið til Serbíu en hef farið og fengið mér vín við landamærin. Verð í Pula, svo Cres, svo Osijek, og flýg á Zagreb í gegnum Frankfurt, en venjulega fer ég beint til Budapest og þaðan keyrt niður til Osijek nema við séum eingöngu að fara á ströndina.

Hlakka til að skoða Serbíu og Svartfjallaland næst.

Kjánalega stutt á milli okkar þarna. Ertu ekkert að kafna í þessum hita sem hefur verið?

Capture.PNG

Ég fer út á sunnudaginn, verð á ströndinni fyrstu 2 vikurnar fer svo í svitabaðið inni í landi á þessari mynd ;) ég er hættur að fara þangað í júlí/ágúst, þoli bara september/október og apríl/maí